Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Qupperneq 26
38
MANUDAGUR 26. APRÍL 1999
Hver verða úrslit
kosninganna?
(spurt á Siglufirði)
... imiiiii. ..
CX:j
■
Theódór Eggertsson fisksali:
Samfylkingin fær 2 menn, Sjálf-
stæðisflokkur, Framsókn og
vinstri-grænir 1 mann hver.
Eysteinn Aðalsteinsson fisk-
. sali: Framsóknarflokkur og
1 Samfylking fá tvo menn og Sjálf-
V stæðisflokkurinn einn mann.
Berglind Birkisdóttir póst-
dama: Samfylkingin vinnur, ég
vil ekki segja neitt meira.
Ólafur Þór Ólafsson aðalbók-
ari: Þetta verður svipað og síð-
ast, Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur fá tvo menn og
Samfylkingin fær einn mann.
Gunnar Hall sjómaður: Ég hef
ekki hugmynd um það og engan
áhuga á að vita það.
L
Pálína Pálsdóttir fram-
kvæmdastjóri: Þetta verður
svipað og verið hefur en ég vona
að Samfylkingin fái tvo menn.
ÉmmámmmmmÉmámmmM
Kosningabaráttan á Norðurlandi vestra harðnar:
Þrír flokkar geta náð
uppbótarþingsætinu
X
DV, Akureyri:
Mjög mikil spenna hefur hlaupið
í kosningabaráttuna í Norðurlands-
kjördæmi vestra síðustu dagana og
má segja að skoðanakönnun Gallup
í síðustu viku hafi verið sem olía á
eld sem hafði reyndar ekki logað
glatt fram að því. Niðurstöður könn-
unarinnar leiddu í ljós að 5. þing-
sæti kjördæmisins, sem er uppbót-
arþingsæti, getur hafnað hjá Sjálf-
stæðisflokki, Samfylkingunni eða
hjá Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði og frambjóðendur róa nú
lífróður fyrir
þessu sæti.
Reyndar getur
fleira spilað
inn í við úthlut-
un þessa þing-
sætis en ein-
ungis niður-
stöðurnar í
kjördæminu
sjálfu, það gera
flóknar kosn-
ingareglur að verkum, reglur sem
eru varla fyrir aðra en hámenntaða
reiknimeistara að höndla.
Framsóknarmenn unnu stórsigur
í kjördæminu fyrir fjórum árum,
bættu þá við sig 6,4% atkvæða og
fengu 38,7% og örugga kosningu
tveggja manna. Sjálfstæðisflokkur-
inn vann 2,7%, fékk 30,8% og tvo
menn, þar af annan kjördæmakos-
inn. Alþýðubandalag fékk 15,6% og
einn mann á þing. Skoðanakönnun
Gallups á dögunum sýndi tap Fram-
sóknar um rúm 4%, Sjáifstæðis-
Fréttaljós
Gylfi Krlstjánsson
flokkur heldur nokkurn veginn
sínu kjörfylgi, Samfylkingin fær
um 24% sem er um 6% minna en
flokkarnir fengu sem standa að
fylkingunni og vinstri - grænir fá
7,6%. Þessi niðurstaða varð til þess
að hleypa miklu lífi í baráttuna en
samkvæmt þessari niðurstöðu kom
uppbótarsætið í hlut Vilhjálms Eg-
ilssonar, 2. manns Sjálfstæðis-
flokksins. Mjög mjótt er þó á mun-
unum að Samfylkingin hirði það
sæti og Vinstri - grænir eru heldur
ekki langt undan.
Mikil undiralda
Á kosninga-
fundi á Siglufirði í
síðustu viku mátti
vel merkja þá
undiröldu sem er
á milli flokkanna.
Sérstaklega
„gneistaöi" þar á
milli Kristjáns
Norðurland vestra
. V/
j. v-,\ • .u.
8 Þingmenn Ö Landskjörnir
Stjórnarandstaöa
Möllers samfylkingarmanns ann-
ars vegar og Jóns Bjarnasonar frá
vinstri-grænum og Árna Gunnars-
sonar framsóknarmanns hins vegar
en Vilhjálmur Egilsson fékk þó sín-
ar „pillur“. Honum er oft legið á
hálsi fyrir að „leika tveimur skjöld-
um“, vera í öðru starfi ásamt þing-
mennskunni og sinna kjördæminu
og þingstörfunum ekki nógu vel en
Vilhjálmur svaraði fullum hálsi og
sagðist geta horft framan í fólkið í
salnum kinnroðalaust og fullyrt að
hann skilaði sínu starfi í þinginu
Stjórnarflokkar
betur en flestir aðrir. Menn hreyttu
hinu og þessu hver í annan og
greinilegt var að „kveikjuþráður-
inn“ var víða stuttur.
Varðandi sum málefnin sem bar á
góma voru menn þó nokkuð sam-
mála, s.s. jarðgöng milli Siglufjarð-
ar og Ólafsfjaröar, og menn voru
sammála um að landbúnaðurinn í
kjördæminu ætti undir högg að
sækja og þyrfti aðstoð. Byggðamálin
almennt, s.s. fólksflóttinn úr kjör-
dæminu, kjör aldraðra og öryrkja,
atvinnuleysið og sámdrátturinn í
sjávarútvegi, sérstaklega í vestur-
hluta kjördæmisins, voru hins veg-
ar þau mál sem menn tókust helst á
um og gekk á ýmsu eins og venju-
lega.
Framboðsmálin sérstök
Framboðsmál flokkanna í kjör-
dæminu hafa verið með nokkuð sér-
stökum hætti. Jón Bjarnason, sem
tók þátt í prófkjöri Samfylkingar-
innar og hafði þar ekki erindi sem
erfiði, gekk til liðs við Vinstrihreyf-
inguna - grænt framboð og tók þar
forustusætið og Sigfús Jónsson,
varaþingmaðm- Sjálfstæðisflokks-
ins, skipar nú efsta sæti Frjálslynda
flokksins. Innan Framsóknarflokks-
ins var geysilega hörð barátta i
prófkjöri um 2. sætið sem Stefán
Guðmundsson hefur skipað og lauk
henni með sigri Áma Gunnarsson-
ar. Sjálfstæðismenn stilltu hins veg-
ar upp á sinn lista án átaka.
Ljóst er að Siglfirðingar munu
flykkja sér um kratann Kristján L.
Möller, fyrrverandi bæjarfulltrúa,
og sjá nú fram á að eignast „sinn
eigin“ þingmann eins og þeir orða
það margir. Kristján sigraði í próf-
kjöri Samfylkingarinnar eftir ævin-
týralega kjörsókn á Siglufirði og
Anna Kristín Gunnarsdóttir Al-
þýðubandcilagskona á Sauðárkróki
varð að gera sér 2. sætið að góðu.
Þessi úrslit voru ekki hagstæð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Vilhjálm Eg-
Um 100 manns sóttu framboðsfundinn á Siglufirði og fylgdust með spennandi umræðum.
DV-mynd gk
Framboðslistar á Norðurlandi vestra
Framsóknarflokk-
urinn
1. Páll Pétursson
félagsmálaráðherra,
A-Húnavatnssýslu.
2. Ámi Gunnarsson,
formaður SUF, Skaga-
firði. gS®j!
3. Herdís Sannumlar-
dóttir pHáúfúlltrúi,
SkagafMKg
4. Birkir Jón Jónsson
nemi, Sigluflrði.
5. Elín R. Lindal
oddviti, Húnabyggð
vestri.
6. Sverrir Sveinsson
veitustjóri, Siglufirði.
7. Valgarður Hilmars-
son oddviti,
A-Húnavatnssýslu.
8. Árborg S. Ragnars-
dóttir sjúkraliði,
Húnabyggð vestri.
9. Elínborg Hilmars-
dóttir bóndi, Skagafirði.
10. Guðjón Ingimund-
arson kennari,
Skagafirði.
Frjálslyndi
flokkurinn
1. Sigfús Jónsson bóndi,
Húnabyggð vestri.
2. Pálmi Sighvatsson
forstöðumaður,
Skagafirði.
3. Þorstaínn;Sigurgeirs-
son bóndi, Húnabyggð
vestri.
4. Valgéir Sigurðsson
athafnamaður, Siglufirði.
5. Sigurjón Þórðarson
heilbrigðisfulltrúi,
Skagafirði.
6. Guðmundur Þor-
bergsson bóndi,
Húnabyggð vestri.
7. Sigurður Sigurðsson
flakari, Skagafirði.
8. Böðvar Sigvaldason
bóndi, Húnabyggð vestri.
9. Hallmundur Guð-
mundsson stýrimaður,
Húnabyggð vestri.
10. Reynir Jóhannes-
son endurskoðandi,
Húnabyggð vestri.
Sjálfstæðis-
flokkurinn:
1. Hjálmar Jónsson
alþingismaður,
Sauðárkróki.
2. Vilhjáimur Egilsson
alþingismaður,
3. Sigríðw' rngvarsdótt-
ir umboðsjnaðii', Siglu-
4. Adolf H. Berndsen
framkvæmdastjóri,
Skagaströnd.
5. Guðný Helga Bjöms-
dóttir bóndi, Húnabyggð
vestri.
6. Ásdis Guðmunds-
dóttir, form. öldunnar,
Skagafirði
7. Ágúst Sigurðsson
bóndi, A-Húnavatns-
sýslu.
8. Sigríður Ingólfsdótt-
ir verslunarmaður,
Húnabyggð vestri.
9. Bjöm Jónsson spari-
sjóðsstjóri, Siglufirði.
10. Pálmi Jónsson,
fyrrv. alþingismaður, A-
Húnavatnssýslu.
Húmanista-
flokkurinn
1. Aðalsteinn Tryggva-
son ræstitæknir,
Húnabyggð vestri.
2. Ragnar Sverrisson
iámiðnaðarmaður.
Revkjavik.
3. Gunnar Guömunds-
son tiilsijðri. Húnabyggð
vestri.
4. Kristján Dýrfjörð
vélstjóri, Hafnarfirði.
5. Jóhannes Þórðarson
múrari, A-Húnavatns-
sýslu.
Sam-
nesdótt-
u, Siglu-
Samfylkingin
1. Kristján L. Möller
verslunarmaður,
Siglufirði.
2. Anna Kristín
Gunnarsdóttir kennari,
Skagafirði.
3. Vali
mannssi
stöðu, Bjj
4. Sign;
ir, form.
firði.
5. Ágúst Jakobsson
aðstoðarskólastj óri,
Húnabyggð vestri.
6. Eva Sigurðardóttir
bankastarfsmaður,
Skagafirði.
7. Ingibjörg Hafstað
bæjarfulltrúi, Skagafirði.
8. Pétur Hermannsson
matreiðslumaður,
Húnabyggð vestri.
9. Steindór Haraldsson
hótelhaldari,
Skagaströnd.
10. Ragnar Arnalds
alþingismaður,
Skagafirði.
Vinstrihreyfingin
- grænt framboð
1. Jón Bjarnason skóla-
stjóri, Skagafirði.
2. Hjördís Hjartardóttir
félagsmálastjóri, Húna-
byggö vestri.
3. Magnús Jósefsson
bóndi, A-Hlna®tns-
4. Svanhildúr kristins-
dóttir leikskólastjóri,
Skagafirði.
5. Freyr Rögnvaldsson
nemi, Skagafirði.
6. Hannes Baldvinsson
skrifstofumaður, Siglu-
firði.
7. Bjarnfriður Hjartar-
dóttir verkakona, Skaga-
firði.
8. Sigurbjörg Geirsdótt-
ir bóndi, A-Húnavatns-
sýslu.
9. Lúther Olgeirsson
bóndi, A-Húnavatns-
sýslu.
10. Kolbeinn Friðbjarn-
arson skrifstofiunaður,
Siglufirði.