Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Síða 44
m
Jókertölur
vikunnar:
Vinningar
Fjöldi Vinnings-
vlnninga upphað
2. 4 af 5
4. 3 af 5
5.747.360
102.870
9.210
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Álftanes:
Snákur lék
lausum hala
Uppi varö fótur og fit á Áiftanesi
í gær þegar fréttist af snáki sem lék
lausum hala í húsgarði. Lögreglan í
Hafnarfiröi var kölluð til og voru
lögreglumennirnir Jón Garðar
Bjarnason og Guðrún Gísladóttir
lengi dags aö eltast við snákinn sem
var snar í snúningum. Að loktun
gripu hafnfirsku lögreglumennimir
til þess ráðs að nota hrífu í barátt-
unni við snákinn og tókst með erfið-
ismunum að „raka“ honum ofan í
þvottafötu. Þar á botninum mátti
snákurinn sín lítils.
Ekki er ljóst hvaðan snákurinn
kom eða hverrar gerðar hann er.
Hann er röndóttur og yfir metri að
lengd. Honum verður eytt. -EIR
Dauðþreyttir á
snjónum
DV, Ólafsfiröi:
Enn er mjög mikiil snjór í Ólafs-
1 firði, þrátt fyrir hlýindi síðustu daga.
Einstök veðurblíða var aila síðustu
viku og mun það vera lengsti blíðviðr-
iskafli síðustu mánaða. Snjóinn tekur
samt hægt upp þrátt fyrir hita og sól á
daginn, því næturfrostið hefur verið
mikið, allt að 15 stig þegar mest var.
Bæjarbúar eru allir orðnir dauðþreytt-
ir á snjónum og hlakka til sumarsins
sem aldrei fyrr.
Mörg öflug tæki voru notuð í vik-
unni við að hreinsa götur bæjarins.
Snjóblásari var notaður til að ráðast á
stærstu skafla og hólana sem hafa
myndast. Þá var snjó mokað á vöru-
bíla til að sturta i höfhina. -HJ
Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, setti í gær kristnihátíð í
Akureyrarkirkju. Biskup íslands,
herra Karl Sigurbjörnsson, predik-
aði. Fjöldi gesta var viðstaddur at-
höfnina, svo sem ráðherrar, vígslu-
biskupar og prófastar. Hér ganga
virðulegir fulltrúar fóiksins út úr
, ^ kirkjunni að athöfn lokinni.
DV-mynd Sigurður Bogi.
Hafnfirsku lögreglumennirnir Jón Garðar og Guðrún Gísladóttir voru að vonum stolt eftir að hafa yfirbugað snákinn
á Álftanesi. DV-mynd S.
Nýr meirihluti
í kvöld?
DV, Borgarbyggð:
„Fundi okkar með sjálfstæðismönn-
um var að ljúka. Viðræðum verður
haldið áfram í kvöld og málin eru í
góðum farvegi. Ég þori ekki að segja
hvenær nýr meirihluti verður mynd-
aður en þetta er í fysta sinn sem ég
segi að málin séu í góðum farvegi.
Málin gætu skýrst í kvöld,“ sagði
Guðrún Jónsdóttir, einn af fjórum
fúiltrúum Borgarbyggðarlistans, við
DV seint í gærkvöld. Guðrún vildi
hins vegar ekkert segja um hvort
sjálfstæðismenn væru búnir að gefa
eftir bæjarstjórastólinn. -DVÓ
Eldsvoöi í
Landbroti
DV.Vík:
Slökkviliðið á Kirkjubæjarklaustri
var kallað að bænum Efri- Vík í Land-
broti um kl. 3 aðfaranótt laugardags.
Þar hafði kviknað í gömlu húsi sem
var alelda þegar komið var að. Að
sögn Reynis Ragnarssonar, lögreglu-
manns í Vík, er húsið, sem var tvílyft
með steyptum útveggjum en timbur-
gólfi og milliveggjum, ónýtt eftir elds-
voðann. Undanfarið hafði verið unnið
að endurbótum á húsinu. Talið er að
eldurinn hafi kviknað út frá blástur-
sofni. -NH
Deilurnar innan verkalýðsforystunnar halda áfram:
Hættir í öllum nefndum ASÍ
- segir formaður Rafiðnaðarsambands íslands
Rafiðnaðarsamband íslands hef-
ur hætt öllum nefndarstörfum inn-
an Alþýðusambands íslands og
mun segja sig úr heildarsamtökun-
um á næsta þingi þeirra, verði
samþykkt um skil milli faglærða
og ófaglærðra innan ASÍ ekki dreg-
in til baka. Á nýafstöðnu þingi Raf-
iðnaðarsambandsins var lögum
þess breytt á þann veg að það geng-
ur úr ÁSÍ hafi fyrrgreind sam-
þykkt heildarsamtakanna ekki
verið dregin til baka.
„Boltinn liggur hjá ASÍ núna,“
sagði Guðmundur Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsambands ís-
lands. „Ef þeir draga ekki sam-
þykktina til baka munum við
ganga úr ASÍ á næsta þingi þess.
Við erum í mörgum nefndum inn-
an ASÍ og munum tiikynna þeim í
dag að við séum hættir störfúm í
þeim öllum, svo lengi sem sam-
þykkt þeirra er í gildi. Þessar
ákvarðanir voru teknar á þingi
okkar sl. fostudag."
Guðmundur sagðist hafa sagt í
Veðrið á morgun:
Skúrir fyrir
sunnan og
vestan
Á morgun verður suðvestan-
gola eða kaldi og skúrir, einkum
sunnan og vestan til, en þurrt að
mestu norðaustanlands. Hiti
verður á bilinu 3 til 10 stig, hlýj-
ast sunnan til.
Veðrið í dag er á bls. 53.
lokaræðu á þingi Rafiðnaðarsam-
bandsins að menn skyldu búa sig
undir að þurfa að sitja undir „skít-
kasti frá ASÍ og forystumönum í
ákveðnum félögum“. Það væru
þeirra vinnubrögð þegar kæmi að
því að fjalla um alvörumál, s.s.
skipulagsmál.
„Framhaldið er algerlega undir
ASÍ komið, hvort það vill vera
samtök launamanna í landinu eða
ekki. Þeir halda fyrir utan samtök-
in samböndum sem eru að reyna
að komast þar inn. Þeir vissu að
samþykkt þeirra sl. miðvikudag
þýddi að verið væri að reka okkur
úr ASÍ. Ef það er þeirra stefna hafa
þeir völd til þess. En þessi stefna
er áfall fyrir verkalýðshreyfinguna
og íslenska launamenn, en mest er
þó áfallið fyrir þá sem síst skyldi,
þá ófaglærðu sem eru innan sam-
banda verslunarmanna og verka-
fólks.“ -JSS
Forseti ASÍ:
Reynum að setja deiluna niður
„Það er viðfangsefni að reyna að
setja þessa deilu niður,“ sagði Grétar
Þorsteinsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, „en ég kann ekki að
svara því á þessu augnabliki hvemig
að því verður staðið eða hvemig til
tekst."
Grétar sagði að fyndist niðurstaða
sem allir málsaðilar gætu unað væri
búið að leysa málið. Aðspurður um
hvort til greina kæmi að draga sam-
þykktina um skilin milli
faglærðra og ófaglærðra í
ASÍ til baka, sagði Grétar að
málið snerist ekki bara um
það. Skiptar skoðanir væra
í hreyfingunni um þann
grandvallarágreining sem
endurspeglaðist þama. Að-
alatriðið væri aö finna nið-
urstöðu sem allir gætu
unað, einnig félagsmenn í Þorsteinsson.
Rafiðnaðarsambandi ís-
lands.
Forystumenn ASÍ munu
hitta fúlltrúa Matvís á
morgun, en aðild þess að
ASÍ var samþykkt sl. mið-
vikudag. Grétar sagði að
forysta ASÍ myndi örugg-
lega ræða við rafiðnaðar-
menn á næstunni, eins og
aðra sem málið snerti. -JSS