Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
7
JDV
Neytendur
Mikill verðmunur bæði
á papriku og AB-mjólk
Tæplega 60 prósenta munur er á
dýrasta og ódýrasta kílóverði af
grænni papriku, skv. könnun DV
sem náði til stærstu verslana höf-
uðborgarsvæðisins. Dýrust er
paprikan í Nýkaupi og 11-11, 798
kr., en ódýrust er hún í Bónusi, þar
sem kílóið kostar 499 krónur. Auk
þessara þriggja verslana var verð
kannað hjá Hagkaupi, Nóatúni, 10-
11, Nettó og Fjarðarkaupum.
DV kannaði verð á nokkrum teg-
undum af matvöru; auk papriku
var m.a. kannað verð á 1/2 1 af AB-
mjólk, lítra af Nýmjólk, 2 1 af Coca-
Cola og Smjörva. Kók í tveggja lítra
flösku var sömuleiðis ódýrast í
Bónusi, þar kostaði flaskan 163
1 lítri Nýmjólk
kaup
75 kr.
Nýkaup
2 lítra Coca Cola
194 kr. 194 kr. 194 kr.
kaup
krónur, en dýrust var hún í 11-11,
Nóatúni og Nýkaupi, 194 krónur.
Mjólkin kostar það sama í Nettó
og Bónusi, 70 kr. lítrinn, en dýrust
er hún i Nóatúni, Nýkaupum og
11-11, þar sem hún kostar 75 krón-
ur.
Hálfur lítri af AB-mjólk er
ódýrastur í Bónusi, kostar þar 58
krónur og er krónu ódýrari en hjá
Nettó og Nýkaupum. Dýrust er AB-
mjólkin í 11-11 og Nóatúni, á 72 kr.
Smjörvi var ódýrastur í Bónusi,
þar sem hann kostaði 135 kr. Hann
var krónu dýrari í Nettó, en dýrast-
ur, 148 kr., i 11-11, Nóatúni og Ný-
kaupum.
Könnun DV gefur ekki rétt mynd
af því hvaða verslanir hafa lægsta
eða hæsta vöruverð þegar tekið er
tillit til heildarmatarkörfu. Aðeins
var verið að kanna verð nokkurra
hluta. Fjarðarkaup er sú verslun
sem hefur meðalverð á öllum ofan-
greindum vöruflokkum, en Bónus
hafði ódýrasta verðið á vöruflokk-
unum og Nettó var skammt undan.
-hb
Tagliatelli Carbonnara
- réttur fyrir fjóra
1/2 lítri AB-mjólk
69 kr. 69 kr.
58 kr. 59 kr. 59 kr.
Bónus Nettó Fjarðar- Hagkaup 10-11 11-11 Nóatún Nýkaup
kaup £H9
300g Smjörvi
148 kr. 148 kr. 148 kr.
W~
Bónus Nettó Fjaröar- Hagkaup 10-11 11-11 Nóatún Nýkaup
kaup
Undirbúningur: 10 mínútur
Suðutími: 15 mínútur
300 g tagliatefli
30 g smjör eða smjörlíki
120 g beikonsneiðar, saxaðar
smátt
1 msk. olífuolía
4 msk. rjómi
paprika á hnífsoddi
60 g Parmesanostur, riflnn
2 egg
salt og pipar
1. Hitið olíuna á pönnu og steik-
ið beikonbitana við meðalhita þar
til þeir eru ljósbrúnir.
2. Bætið paprikunni í og látið
krauma í 1 mínútu enn.
3. Bætið rjómanum í og pískið
saman.
4. Pískið saman eggin og rifinn
ostinn.
5. Sjóðið tagliatelli í léttsöltu
vatni í 10 mín. eða þar til það er
mátulega soðið.
6. Síið vatnið af pastanu og hellið
því síðan í pottinn aftur, bætið
smjöri, salti og pipar út í og bland-
ið vel.
7. Nú er beikonblöndunni og
eggjablöndunni hrært vel saman
við og bragðbætt með salti. Borið
fram strax.
Hljolnfrutningstæki -v BL. irrf
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sond Morping
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar tvískiptir: 120W • Power Bass
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sond Morping
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar tvískiptir: 120W • Power Bass
3 ára ábyrgð
I • Sími 533 2800
U M ALLT LAN D
begar hljómteekl sklpta máll
It á ~)