Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 íþróttir Úrslitin í nótt: Charlotte-New York........84-91 Phills 20, Wesley 18, Jones 14 - Sprewell 21, Houston 15, Ward 15. Cleveland-Miami ..........65-90 Anderson 14, Ferry 9, Henderson 8 - Mouming 23, Brown 12, Hardaway 12. Houston-LA Lakers ........102-80 Pippen 26, Barkley 20, Mobley 15 - Shaq 19, Rice 16, Fox 12. Milwaukee-Washington . . . 99-91 Robinson 31, Allen 19, Gatling 13 - Thorpe 18, Strickland 14, Wallace 14. Dallas-Chicago............101-93 Finley 28, Strickland 20, Trent 16 - Kukoc 26, Carr 18, David 17. Utah-Phoenix...............85-99 Malone 21, Russell 13, Homacek 13 - Chapman 23, Kidd 19, Garrity 13. Portland-Denver ...........93-77 Williams 28, Sabonins 14, Stoudamire 10. xx LA Clippers-SA Spurs .... 88-94 Piatkowski 27, Olowokandi 17, Hudson 11 - Duncan 22, Jackson 21, Robinson 17. Golden State-Sacramento . 114-89 Starks 25, Jamson 23, MarshaU 19 - Funderburke 17, Stojovic 17, Wahad 16. Úrslitin í fyrrinótt: Miami-New York.............80-82 Mourning 29, Brown 15, Hardaway 12 - Johnson 23, Houston 17, Camby 15. Phoenix-Houston............95-71 Chapman 22, Kidd 22, Robinson 15 - Pippen 21, Olajuwon 16, Barkley 13. Philadelphia-Orlando .... 103-86 Iverson 38, Geiger 16, Ratliff 12 - Grant 18, Anderson 18, D.Armstrong 18. Utah-Seattle...............98-81 Maione 21, Stockton 11, Anderson 11 - McLean 23, Ellis 10, Crotty 8. New Jersey-Indiana........120-98 Marbury 26, Van Hom 22, Gill 21 - Miller 34, Smits 17, Rose 11. Portland-Minnesota........100-84 B.Grant 24, Rider 22, Wallace 13 - KGamett 30, Smith 17, Brandon 11. Atlanta-Milwaukee..........85-70 Mutombo 18, Blaylock 16, Crawford 16 - Allen 21, Robmson 18, Thomas 12. Boston-Washington.........113-84 Barros 20, Mercer 18, McCarthy 17 - Richmond 18, Thorpe 15, Strickland 14. Toronto-Detroit............83-91 Carter 18, Christie 17, Brown 17 - Stackhouse 24, Hill 18, Dele 16. -GH Ólafur Þórdar- son, þjálfari Fylkismanna, kom þeim í úrslit Reykjavíkur- mótsins í knatt- spyrnu í gær- kvöld með því að skora sigurmark- iö gegn ÍR, 2-1, þegar ein mínúta var eftir. ÍR komst yfir í seinni hálfleik þegar Geir Brynjólfsson skoraði úr vítaspymu en Gunnar Þór Pétursson jafnaði fyrir Fylki 10 mínútum fyrir leikslok. í síöari undanúrslitaleiknum á Reykjavíkurmótinu í gærkvöld lögðu KR-ingar lið Framara, 2-1. Jóhann Þórhallsson og Egill Atlason skoruðu mörk KR í leiknum en Höskuldur Þórhallsson skoraði mark Fram. Það veröa því KR og Fylkir sem leika til úrslita á Reykjavíkurmótinu þann 8. maí. Ragnhildur Siguróardóttir, Islands- meistari í golfi kvenna, hafnaði i 20. sæti á opna skoska meistara- mótinu i golfl sem haldið var um helgina. Ragnhildur spil- aði mjög vel alla dagana. Hún lék hringina þrjá á 234 höggum (78- 77-79) og varð 12 höggum á eftir sigur- vegaranum. Hin 16 ára gamla Kristin Elsa Erlendsdóttir úr GK hafnaði i 33. sæti en hún lék á 236 höggum (83- 74-79). Árangur Kristínar er mjög góð- ur og á öðrum degi náði hún þeim glæsilega árangri að spila völlirm á pari. Tindastóll vann Hvöt, 7-4, í síðasta leik D-riðils deildabikarsins í knatt- spymu á Sauðárkróki á laugardaginn. Tindastóll endaði í fjórða sæti, á eftir ÍA, Víkingi og Fylki. -VS/JKS/GH DV DV Sveinn Sölvason náði mjög góðum ár- angri á alþjóðlegu badmintonmóti i Chile um helgina. Sveinn komst i undanúrslit en beið þar lægri hlut fyrir Kanadamann- innum Bobby Milroy. Sveinn fékk gefinn sigur í fyrstu umferð, vann Brasiliumann í annarri umferð og Bandarikjamann í þriðju umferðinni og 8-liða úrslitunum. Alexander Arnarson, linumaður úr HK, bættist i hóp þeirra nýliða sem léku með landsliðinu í handbolta gegn Sádi-Arabíu um helgina. Alex- ander (t.h.) lék þriðja og síðasta leikinn og skor- aði tvö mörk. Guöjón Skúli Jóns- son, markvörður frá Akranesi, er genginn til liðs við 1. deildar liö FH i knattspymunni. Guðjón er 21 árs og hefur leikið með u-16 og u-18 ára lands- liðinu og var varamarkvörður Skaga- manna á síðastliðnu smnri. Guðjóni er ætlað að fylla skarð Daða Lárussonar sem nýlega hélt til Bandaríkjanna þar sem hann mun leika i B-deildinni. Knattspyrnusambandiö hefur fallist á beiðni Hauka um að leika í 1. deild kvenna í sumar i stað úrvalsdeildar. Enn fremur hefur verið ákveðið að Fjölnir taki sæti Hauka. Halldór Áskelsson, fyrrrnn landsliðsmað- ur i knattspymu, hefur tekiö fram skóna enn og aftur. Hann hefur skipt yfir til Dal- vikinga, nýliðanna í 1. deild, og ætti að styrkja þá verulega. Hannes Tómasson, SR, sigraði á bikar- móti i loftskammbyssu sem haldið var um helgina. Hannes hlaut samtals 656,6 stig. Anton Konráösson, SKÓ, varð annar með 642,6 stig og í þriðja sæti hafnaði Þor- steinn Guöjónsson, IFL, með 632,8 stig. Carl J. Eiríksson, SÍB, sigraði í keppni með loftriffli en hann hlaut samtals 625,2 stig. Jónas Bjargmundsson, SFK, varð annar með 620,4 stig og í þriðja sæti hafn- aði í Einar ísfeld Steinarsson, SFK, með 619,2 stig. Adolf Ingi Erlingsson, RÚV, var kosinn nýr formaður Samtaka íþróttafrétta- manna á aðalfundi samtakanna á dögun- um. Hann tekur við að ívari Benedikts- syni sem ákvað að gefa ekki kost á sér í embættið. Með Adolf í stjóm vom kjömir Jón Kristján Sigurösson, DV, Björn Ingi Hrafnsson, Morgunblaðinu, Snorri Sturluson, Stöð 2 og Samúel Örn Er- lingsson, RÚV. Rúnar Kristinsson hefur leikið mjög vel með Lilleström í fyrstu þremur um- ferðunum i norsku A-deildinni. í ein- kimnagjöf Verdens Gang er Rúnar í 2.-3. sæti yfir stigahæstu menn en meðal- einkunn hans er 6,67. Andreas Lund hjá Molde er efstur með 7,0. Heióar Helgu- son, félagi Rúnars hjá Lilleström, er í 20. sæti ásamt nokkrum öðrum með 5,33. Bryan Roy, félagi Eyjólfs Sverrissonar í þýska A-deildarliðinu Hertha Berlín, leik- ur ekki meira með á þessu tímabili. Roy, sem hefur átt i meiðslum meira og minna i allan vetur, gekkst undir aðgerð á hásin í gær sem þýðir að hann veröur frá knatt- spymuiðkun næstu mánuðina. HK-ingar leita þessa dagana að eftir- manni Siguröar Sveinssonar, sem er hættur að spila sjálfur og verður „bara“ þjálfari liðsins næsta vetur. Stjómarmað- ur úr handknattleiksdeild HK er nú stadd- ur i Tékklandi þar sem hann skoöar nokkrar örvhentar skyttur. Tómas Ingi Tómasson átti mjög góðan leik með AGF þegar liðið vann Herfólge, 2-1, í dönsku A-deildinni í knattspyrnu á sunnudag. Tómas var óheppinn að skora ekki þvi hann átti stangarskot og mark var dæmt af honum. Ólafur H. Krist- jánsson kom inn á sem varamaður hjá AGF eftir aðeins 20 mínútur. AGF er þar með komið í 8. sætið af 12 liðum og er ekki lengur i teljandi fallhættu. Jóhann B. Guömundsson fékk ekki tæki- færi með Watford í B-deild ensku knatt- spymmmar um helgina. Hann lék hins vegar með varaliðinu og skoraði eitt mark í 5-0 sigri á Northampton. Bjarki Gunnlaugsson fékk að líta rauða spjaldiö í leik með varaliði Brann i norsku knattspyrnunni um helgina. Hann fer í leikbann, og má ekki leika með aðal- liðinu á meðan. Roy Evans, fyrrum knattspymustjóri Liv- erpool, er einn af þeim sem koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri Nott- ingham Forest sem fallið er í B-deildina. -GH/VS/JKS Stjömustúlkur sýndu það og sönnuðu í Ásgarði í gær að þær tefla fram besta handknattieiksliði landsins í kvennaflokki. Þær mættu þá FH i þriðja úrslitaleik liðanna um íslandsmeistaratitilinn og sigruðu sannfærandi, 34-25. Leikurinn fór fjörlega af stað og með örlítilli heppni hefðu FH-stúlkur getað náð góðri forystu eins og þær náðu í fyrstu tveimur leikjunum, en lukkan var ekki með þeim í þessum leik frekar en hinum tveimur og Stjaman, með Ingu Steinunni Björg- vinsdóttur í broddi fylkingar, hafði tveggja marka forskot i hálfleik, 14-12. Gríðarleg stemning Stjörnuliðið kom gríðarlega vel stemmt til seinni hálfleiks og skoraði fimm mörk gegn einu FH-marki á fyrstu mínútum hálfleiksins og lagði grunninn að sigrinum og íslands- meistaratitiinum. FH-liðið var þó ekkert á því að gefast upp og hélt Stjömunni i fimm marka mun allt þar til 12 mínútur vom til leiksloka, en þá komu sjö Stjömumörk í röð og sigur Stjömunnar var í höfn. FH-ingar bám enga virðingu fyrir verðandi íslandsmeistumm, börðust allt til enda og tóku fast á þeim. Það dugði þó ekki til. Stjaman vann ör- uggan og sanngjaman sigur. Vel mannað Stjörnulið Stjaman sýndi það í þessum leik að liðið er afskaplega vel mannað. Liðið, sem varð fyrir miklu áfalli í janúar þegar Herdís Sigurbergsdóttir meiddist, og margir töldu að myndi ekki klára meistarabaráttuna án hennar, sýndi sparisvipinn. Ragnheiði Stephensen, stórskyttu liðsins, var haldið í gíslingu FH-inga í öllum leikjunum þremur en þá komu ungu stelpumar, Inga Stein- unn Björgvinsdóttir, Nína K. Bjöms- dóttir og Anna Blöndal, tóku sinn leikinn hver og sýndu að það era fleiri markaskorarar i liðinu. Varnarleikur Stjörnunnar, þar sem Inga Fríða Tryggvadóttir og Margrét Theódórsdóttir ráða ríkjum, var þéttur í leikjunum öllum og FH, sem hafði náð að leysa þann þátt á köflum 1 fyrstu leikjunum tveimur átti ekkert svar í gærkvöld, til þess var liðsheild Stjömunnar of sterk. FH með framtíðarlið FH-liðið er helsta framtíðarlið ís- lensks kvennahandknattieiks. Þær náðu lengra í þessari úrslitakeppni heldur en nokkur reiknaði með og sýndu á köflum meistaratakta í leik sínum. í gær mxmaði mikið um það að Þórdís Brynjólfsdóttir og Drífa Skúladóttir náðu sér ekki á strik í sóknarleiknum en á móti kom að Dagný Skúladóttir kom sterk inn eftir erflð meiðsli. Kjarkur og þor FH, sem varð fyrir miklu áfalli að ná ekki að jafha metin á lokasekúnd- um fyrsta leiksins, kom tvíeflt til annars leiksins en þar vom von- brigðin ógurleg að ná ekki að sigra, þrátt fyrir að hafa 13 marka forskot. Það þurfti því kjark og þor til að koma til þessa þriðja leiks og mæta með þá trú að geta sigrað Stjörnuna. Það þurftu þær Þórdís, Dagný, Drífa, Guðrún Hólmgeirsdóttir og Gunnur Sveinsdóttir, sem era aðeins 19 ára gamlar, að reyna. Og það gerðu þær og stöflur þeirra allar með glans. FH-ingar geta borið höfuðið hátt eftir keppnina. Það að hafa haldið Stjörnunni, besta liði landsins, við efnið í þremur leikjum er frábært og sýnir að handboltaáhugamenn þurfa að leggja nöfn leikmanna FH á minn- ið fyrir næstu ár. Þær em ekki leng- ur með eitt efnilegasta lið landsins, heldur eitt það besta. -ih - Stjarnan íslandsmeistari kvenna eftir þriðja sigurinn á FH í jafnmörgum leikjum Vantaði trúna Fyririiðar Stjörnunnar. Herdís Sigurbergsdóttir, sem misstí af úrslttakeppninni vegna meiðsla, og Hrund Grétarsdóttir halda á ísiandsbtkarnum á milli sín í Asgarði í gærkvöld. DV-myndir Hilmar Þór ifp~. Liðsheildin „Það er búið að vera alveg hrika- lega erfitt að vera fyrir utan. í dag vann liðsheildin alveg frá a til ö. Al- veg frá því 24. janúar, þegar það varð ljóst að ég yrði ekki meira með liðinu á þessu tímabili, þá varð hug- arfarsbreyting á okkar liði. Stelp- umar ákváðu að gefa aflt sem þær áttu i þetta og tóku bæði deildar- meistaratitilinn og íslandsmeistara- titilinn. Bikarinn gekk okkur úr greipum, en hann kemur bara á næsta ári,“ sagði Herdís Sigurbergs- dóttir, leikmaður Stjörnunnar. -ih FH-ingarnir Þórdís Brynjólfsdóttir og Björk Ægisdóttir voru að v onum daufar í dáikinn í leikslok. Kaflaskil „Ég er rosalega ánægður, ég get ekki verið annað. Þegar á reynir og við erum að spila marga leiki á stuttum tíma undir pressu þá reyn- ast þessar stelpur best. Öll bið hefur reynst okkur rosalega illa. Fyrsti leikurinn var erflður, þar sem við missum hann niður. Annar leikurinn hræðilega erflður en stelpurnar sýndu karakter að klára hann og í kvöld sýndu stelpumar að þær eru bestar. FH-liðið er verðug- ur andstæðingur en við sýndum það bara að við erum betri. Það era komin ákveðin kaflaskil í Stjörnuliðið, það eru nokkrar stelp- ur að hætta og ungar að taka við, eins og Nína og Inga Steinunn. Ég gerði miklar kröfur til þeirra og þær leystu það vel,“ sagði Aðal- steinn Jónsson, þjálfari Stjörnunn- ar. -ih Systurnar og markverðirnir frá Lit- háen, Jolanta Slapikiene úr FH og Lijana Sadzon úr Stjörnunni, faðm- ast eftir leikinn í gærkvöld. Erum bestar „Ég er alveg rosalega ánægð, þetta er frábært. Ég átti von á hörkuspennandi leik en þær urðu fyrir áfalli í síðasta leik og þegar við náðum fjögurra marka forystu þá datt þetta niður hjá þeim. Við eram búnar að sýna lélega leikkafla í síð- ust tveimur leikjum en við tókum okkur saman í andlitinu og vorum staðráðnar í að sýna góðan leik i kvöld og sýna að við værum bestar og gerðum það. Það var rosaleg taugaspenna í liðinu, við byrjuðum illa í síðustu leikjum og ætluðum ekki að láta það koma fyrir aftur,“ sagði Inga Fríða Tryggvadóttir, leik- maður Stjömunnar. -ih „Við komumst mikið lengra held- ur en nokkur bjóst við, það átti eng- inn von á okkur hér. Ég hefði ver- ið sáttari við það að ná betri árangri í úrslitakeppninni. Við eram ungar og eigum framtíðina fyrir okkur. Við eram búnar að sýna það að við stöndum í þeim og eigum alveg að geta unnið þetta lið, en það vant- aði trúna á þetta, það var eins og við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað væri í húfi. Við erum ekki hættar og komum á fullum krafti í íslandsmótið á næsta ári,“ sagði Hildur Erlingsdóttir, fyrirliði FH. Stjarnan (14)34 FH (12) 25 0-1, 1-3, %A, 4-4, 5-7, 7-9, 10-9, 11-11, 12-12, (14-12), 16-12, 19-13, 21-16, 23-17, 29-20, 31-22, 33-22, 34-25. Mörk Stjörnunnar: Inga St. Björg- vinsdóttir 9, Inga Fríða Tryggvadóttir 6, Ragnheiður Stephensen 5/3, Anna Blöndal 4, Nina K. Bjömsdóttir 3, Hrund Grétarsdóttir 3, GuðnýGunn- steinsdóttir 2, Margrét Theódórsdóttir 1, Margrét Vilhjáhnsdóttir 1. Varin skot: Lijana Sadzon 15/1, Sóley Halldórsdóttir 2. Mörk FH: Dagný Skúladóttir 6, Hildur Erlingsdóttir 4, Björk Ægis- dóttir 4, Þórdís Brynjólfsdóttir 4/3, Drífa Skxiladóttir 2, Guðrún Hólxn- geirsdóttir 2, Gunnur Sveinsdóttir 2, Hafdis Hinriksdóttir 1. Varin skot: Jolanta Slapikiene 12/1, Gyða Úlfarsdóttir 1. Brottvísanir: Stjaman 6 mín., FH 4 mín. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, góðir. Áhorfendur: Um 600. Maður leiksins: Inga Steinunn Björgvinsdóttir, átti frábæran leik. Meistarataktar ^5 íþróttir —-------------------- Frakkinn Dav- id Ginola, leik- maður Totten- ham, hefur verið útnefndur leik- maður ársins í ensku knatt- spymunni af samtökum at- vinnuknatt- spyrnumanna. I öðru sæti varð Dwight Yorke, framheiji Manchest- er United, og i þriðja sæti hafnaði Emmanuel Petit, franski miðvallar- leikmaðurinn hjá Arsenal. David Beckham, Man.Utd, Dennis Berg- kamp, Arsenal, og Roy Keane, Man.Utd, voru einnig tilnefndir. Nicloas Anelka, framherji Arsenal, varð fyrir valinu sem besti ungi leik- maðurinn. Michael Owen, framherji Liverpool, sem hafnaði í efsta sæti i fyrra, varð annar og Ástralinn Harry Kewell hjá Leeds varö i þriðja sæti. Lee Bowyer, Leeds, Lee Hendrie, Aston Villa og Alan Smith, Leeds, voru einnig tilnefndir. í lió ársins vom valdir: Nigel Mar- tyn, Leeds, Gary Neville, Man.Utd, Denis Irwin, Man.Utd, Patrick Vie- ira, Arsenal, Sol Campbell, Totten- ham, Jaap Stam, Man.Utd, David Beckham, Man.Utd, Dwight Yorke, Man.Utd, Nicolas Anelka, Arsenal, Emmanuel Petit, Arsenal, David Ginola, Tottenham. Hermann Hreiðarsson var valinn i lið ársins í D- deildinni en hann var eini leikmaðurinn frá Brentford sem var valinn í liðið. Hermann og félagar unnu Southend úti, 4-1, um helgina og eiga alla möguleika á sæti í C- deildinni. íslendingaliöiö Walsall er komið með annan fótinn upp í B-deildina eftir útisigur á Lincoln, 0-1, á laugar- dag. Walsall þarf aðeins tvö stig í sið- ‘ ustu þremur leikjunum til að fylgja Fulham upp. Næstu lið, Preston og Manchester City, em fimm stigum á eftir Walsall sem á leik til góða að auki. Bjarnólfur Lárusson fór af velli á 68. minútu gegn Lincoln en Siguröur Ragnar Eyjólfsson kom inn á sem varamaður á 90. mínútu. Stoke er hins vegar úr leik eftir skell heima gegn Gillingham, 1-4. Lárus Orri Sigurösson átti sök á einu marka Gillingham þegar hann lét sóknarmann hirða af sér boltann í öftustu vöm. Kevin Keegan, landsliðseinvaldur Englendinga, hefur kallað á Francis Jeffers, hinn 18 ára gamla framherja Everton, inn i landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Ungverjum á morgun, svo og félaga hans Michael • Ball og Jamie Carragher hjá Liver- pool. Sex leikmenn sem voru valdir i hópinn detta út vegna meiðsla en þaö eru Andy Cole, Paul Scholes, Sol Campbell, Graem Le Saux, Gareth Southgate og Jonathan Woodgate. David O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds, sagði eftir leikinn gegn Man- chester United í fyrradag að United myndi hampa Englandsmeistaratitl- inum í ár. „Eg sagði við upphaf tíma- bilsins að Únited myndi vinna og ég stend enn við það,“ sagði O’Leary. Ruud Gullit, stjóri Newcastle, hefur boðið Dynamo Kiev 230 mUljónir í hinn 30 ára gamla bakvörð Oleg Luzhny, fyrirliða úkrainska lands- liðsins. Middlesbrough hefur einnig augastað á Luzhny og það stefnir allt í slag á milli félaganna I að krækja í' þennan sterka vamarmann. George Graham, stjóri Tottenham, er að undirbúa 550 milljóna króna til- boð i ástralska framherjann Mark Viduka sem leikur með Celtic. Viduka er 23 ára gamall framherji sem kom til Celtic i vetur frá Croatia Zagreb. Celtic keypti Viduka fyrir 330 mifljónir króna fyrir 5 mánuðum og gerði kappinn þriggja ára samning. Hann er sagður frekar ósáttur við líf- ið í Skotlandi og vill frekar spila á Englandi. Þorvaldur Örlygsson, fyrrum lands- liðsmaður, hef- ur fengið frjálsa sölu frá C-deild- arliði Oldham en þar hefur hann leikið und- anfarin 4 ár. Þorvaldur er 32 ára og hefur leikið tæpa 200 deildaleiki með Oldham, Stoke og Nottingham Forest. -GH/Vf^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.