Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Qupperneq 1
Getnaöar- varnir fyrir karlmenn Bls. 19 íslendingar óhræddir við 2000- vandann Bls. 18 Heimasíður stjórnmála- flokkanna Bls. 20-21 tölvui tækni og vísinda PlayStation Á hinni gríðar- stóru Comdex- tölvusýningu, sem haldin var í Chicago í síð- ustu viku, hélt Bill Gates, for- stjóri Microsoft, ræðu þar sem hann kynnti helstu nýjungar fyrirtækis- ins. Meðal þess sem hann sýndi áheyrendum var þetta gríðarstóra líkan af nýrri mús sem væntanleg er á markaðinn í haust. Þetta er nýjasta útgáfan af In- tellimouse frá Microsoft og helsta nýjung hennar er að hún notast ekki við gúmmíkúlu til að stjóma því hvert bendillinn fer. Hún notast við nýja tækni til að skynja hreyf- ingar músarinnar og senda upplýs- ingar um þær til tölvunnar. Þannig segir Gates að búið sé að leysa vandamál það sem myndast þegar óhreinindi setjast á gúmmíkúluna og músin fer að láta illa að stjórn. Jafnframt. hefur músin fleiri hnappa en hina venjulegu tvo eða þrjá sem nú er að fmna á flestum músum og sagði Gates að hún væri sérhönnuð með það fyrir aug- um að einfalda almenningi vinnu á Netinu. Ofurplöntur í geimnum Visindamenn hafa kómist að því að tilraunir með genabreytingar á plöntum úti í geimnum eru marg- falt líklegri til að heppn- ast en þær sem geröar era á jörðu niðri. Líkurnar á að það takist að koma geni með ákjósanlegum eiginleikum í plöntur eru venju- lega um einn á móti þúsund á jörðu niðri en miðað við tilraunir, sem gerðar hafa verið með nýrri tækni um borð í geimskutlunni Discovery, eru líkurnar á árangri rúmlega tífalt meiri ef plönturnar era í þyngdar- leysi. Með tilraunum af þessu tagi reyna vísinda- menn að bæta eiginleika plantna til að gera þær sig- urstranglegri í lífsbarátt- unni og auka notagildi þeirra fyr- ir mannkyniö. ^Jlujíih Í73'A í Efast um tilvist samkynhneigðargens Visindamenn við Western Ontario háskóla í Kanada segjast hafa komist að þeirri niðurstöðu að hið svokallaða „samkynhneigð- argen“, sem talið var að hefði fund- ist fyrir nokkrum áram, hafi ekkert með samkynhneigð að gera. í fyrri rannsókninni töldu vís- indamenn sig vera búna að finna ákveðið genaeinkenni sem var al- gengara hjá samkynhneigðum karlmönnum en gagnkynhneigð- um. Kanadísku vísindamennirnir segja hins vegar að svo virðist sem samkynhneigðir hafi ekki þessi genaeinkenni í meiri mæli en aðrir karlmenn. Þeir segja að þar sem úrtak þeirra sé stærra en það sem skoðað var í upprunalegu rannsókninni sé líklegra að fyrri rannsóknin hafi gefið rangar niðurstöður. Vísinda- mennirnir vilja þó taka fram að þar sem þeirra rannsókn hafi aðeins beinst að einum hluta x-litningsins sé ekki hægt að útiloka að gen sem ákveður kynhneigð sé að finna ann- ars staðar í genum manna. ÍÍIÍAA SÍlbL)] Langar þig að Iæra tölvu- og kerflsfræði ? Námskynning í Perlunni Ertu á leið í nám eða á námskeið íhaust? Opið frá kl. 12 - 1»

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.