Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
23
U^B8MBBH«
■ ■ ■ ■ ■ ■ VMI ■
■
I
Baráttan um netsímana:
Smáfyrirtæki ógnar Microsoft
- sjötti hluti mannkyns kominn meö síma innan nokkurra ára
Allir þekkja hinn
gríðarlega vöxt á
farsímaeign bæði
hér á landi og er-
lendis. Farsímar
eru án efa einn
helsti vaxtar-
broddur flarskiptatækninnar nú og
ekki sér fyrir endann á þeirri þróun.
Meðal þess sem öll helstu fjarskipta-
fyrirtæki í heiminum keppast við nú
er að tengja farsímana við Netið á að-
gengilegan hátt.
Þeir sem velta fyrir sér framtíðinni
hvað þetta varðar sjá fyrir sér að árið
2005 verði sjötti hluti mannkyns kom-
inn með farsíma og þar af geti flestir
þeirra unnið úr netgögnum. Með
símunum verður m.a. hægt að fylgjast
með almennum fréttum, hreyfingum á
hlutabréfamörkuðum, veðurfréttum,
íþróttaúrslitum, bankareikningum,
hlusta á tónlist, skoða myndir, skrifa
tölvupóst - og að sjálfsögðu tala í
síma.
Ógnun við Microsoft
Svokallaðir netsímar hafa svo sem
verið fáanlegir í nokkur ár, en hafa
hingað til ekki hlotið náð fyrir augum
almennings. Eldri útgáfur þeirra hafa
þótt of dýrar, flóknar og klunnalegar.
En netsímarnir sem byrjað ér að þróa
og setja á markað um þessar mundir
eru minni og hraðvirkari en þeir sem
áður hafa staðið tU boða.
Símar sem þessir þarfnast stýri-
kerfis, alveg eins og tölvur, og stend-
ur einn helsti bardaginn á netsima-
markaðinum um það hvaða stýri-
kerfi skuli nota. Symbian Ltd er
breskt hugbúnaðarfyrirtæki sem hef-
ur sett stefnuna á að ná yfirráðum
yflr þessum markaði. Það hefur þeg-
ar náð gríðarlega góðri stöðu, svo
góðri raunar að sjálfur BUl Gates,
forstjóri Microsoft, nefndi Symbian
sem eina af helstu ógnunum við
veldi Microsoft í minnisblaði sem
hann sendi tU starfsmanna sinna í
haust. Þá var Symbian aðeins 10
mánaða gamalt fyrirtæki með um
260 starfsmenn.
Öflugir bakhjarlar
Það sem hræðir Gates mest er án
efa að Symbian á mjög öfluga bak-
hjarla-: símaframleiðendurna Nokia,
Ericsson og Motorola Inc. auk far-
tölvufyrirtækisins Psion PLC. Þessir
þrír símaframleiðendur stjórna um
tveimur þriðju af farsímamarkaði
heimsins nú og þar að auki hafa
nokkur önnur símafyrirtæki ákveðið
að nota stýrikerfi frá Symbian. Nýleg-
ir samningar við Sun Microsystems
gera það síðan að verkum að símam-
ir munu einnig styðja Java-forritun-
armálið frá Sun.
í kjölfar þessa er staða Symbian
óneitanlega mjög góð á þessum mark-
aði og líklegra að farsímaframleið-
endur muni í framtíðinni frekar nota
stýrikerfi fyrirtækisins heldur en
Windows CE, örstýrikerfið frá
Microsoft.
Enginn ætti þó að afskrifa
Microsoft, verðmætasta fyrirtæki í
heimi. Bill Gates og félagar hafa gert
samning við British Telecommun-
ications og tæknifyrirtækið Qu-
alcomm Inc. um framleiðslu síma
með Windows CE. Það er því ljóst að
baráttan um netsímamarkaðinn er
rétt að byrja.
Símar sem þessir
þarfnast stýríkerfis,
alveg eins og tölvur,
og stendur einn helsti
bardaginn á
netsímamarkaðinum
um það hvaða stýri-
kerfi skuli nota.
Talið er að um sjötti hluti mannkyns verði kominn með handsíma árið 2005,
en það er rúmur milljarður manna. Það er því ekki nema von að baráttan sé
hörð meðal þeirra sem vilja ná yfirráðum á þessum markaði.
Lí D\1\i
Staðreynda-
banki
Mörgum finnst gríðarlega
gaman að tilgangslausum stað-
reyndum af ýmsu tagi. Heima-
síðan http://www.absolu-
tetrivla.com/ er griðarstórt
samsafn af slíku.
Hristur, ekki
hrærður
Á heimasíðunni httu://
www.geocities.com/HoIlvwood
/Land/4556/ er stærsta safn
tónlistar og hljóða úr James
Bond-myndunum sem finnst á
Netinu. Einnig eru þar vel vald-
ir myndbútar.
Myndasögur
Hann Tom Tomorrow lætur
sér annt um ýmis heimsins
málefni og gerir teiknimynda-
sögur um lífið og tilveruna.
Þær má sjá á slóðinni
http://www.weU.com/user/
tomorrow/
Gagnvirk kosn-
ingaumræða
Starfsfólk Islenskrar upplýs-
ingatækni hefur sett upp gagn-
virkan kosningavef fyrir Vest-
urland. Slóð hans er
http://www.kasmir.is/x99/
Úr leiknum Star Wars Episode One: The Phantom Menace, sem er ævintýra-
leikur sem fylgir söguþræði myndarinnar mjög vandlega.
Star Wars leikir á hverju strái:
Einn kominn og tveir á leiðinni
Nú þegar stytt-
ist óðum í frum-
sýningu nýju
Star Wars-
myndarinnar
The Phantom
Menace hefur
enn einn tölvuleikurinn byggður á
Star Wars myndunum verið gefinn
út. Sá heitir X-Wing Alliance og er
framhald af fjölda Star Wars leikja
sem eru byggðir á því að fljúga
geimflaugum um heima og geima
og skjóta niður geimför Svarthöfða
og hyskis hans.
Leikurinn hefur fengið ágætar
viðtökur gagnrýnenda víðast hvar
og þykir hann ágæt framför frá
fyrri leikjum. X-Wing Alliánce er
gríðarlega stór því í honum er að
finna fimmtíu mismunandi verk-
efni fyrir flugmanninn á fjölda
mismunandi geimfara. í lokin fær
hann svo að fljúga sjálfum Árþús-
undafálkanum hans Hans Solos
sem allir ættu að þekkja úr fyrstu
Star Wars myndinni.
En þeir eru þó sjálfsagt fleiri
sem eru spenntari fyrir leikjunum
sem væntanlegir eru í tengslum
við nýju myndina. Fjöldi leikja
verður gefinn út af því tilefni á ár-
inu en þeir fyrstu tveir koma á
markaöinn skömmu eftir að
Phantom Menace verður frumsýnd
í Bandaríkjunum um miðjan maí.
Annar verður kappakstursleikur
sem mun heita Star Wars: Episode
One Racer. Þar stýrir maður hin-
um undarlegu geimvögnum sem
allir, sem séð hafa auglýsingar fyr-
ir myndina, kannast við. Hinn
leikurinn er einfaldlega samnefnd-
ur myndinni og er þriðju persónu
ævintýraleikur í ætt við Tomb
Raider. Hann fylgir söguþræði
myndarinnar nákvæmlega og er i
raun hugsaður þannig að menn
geti endurupplifað myndina á
tölvuskjánum.
Leikurinn hefur fengið
ágætar viðtökur gagn-
rýnenda víðast hvar og
þykir hann ágæt fram-
för frá fyrrí leikjum.
28" Black • Allar aðgerðir
2x20W magna" 2" cart tengii *
•H^marto'stenú
(slenskur leföa^
Nicam * ■
Fast text
S VHS tei
rca • 16
j . Heyrriai
breiðtjald.
UMBOÐSMENN
Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Kf. Norðurland: V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA Lónsbakka Akureyri.
K(. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Vélsmiðjan Höfn. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
k in^.^ÍAaérðir^skjá
I, • o
ólstengi
FlNLuX
...Aá
fiiml1-**
70Z50
Fl
3r skjár • Ni03?,
ST-w*"'*"
- BRÆÐURNIR
dpyjáPiSk
LágmúTa 8 • Sími 533 2800