Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
Fréttir
Skoðanakönnun DV um viðhorf til aðildarviðræðna við ESB:
66% vilja viðræður
- mestur vilji meðal sjálfstæðismanna, minnstur meðal „vinstri-grænna“
Viðræður um aðild að ESB Óákveönir/svara ekki
Um tveir af hverjum þremur kjós-
endum eru fylgjandi þvi að hefja að-
ildarviðræður við Evrópusamband-
ið, ESB. Hlutfallslega flestir fylgj-
endur aðildarviðræðna eru í hópi
sjálfstæðismanna og stuðnings-
manna Samfylkingar, meðan and-
staðan er mest meðal stuðnings-
manna Vintrihreyfíngarinnar -
græns framboðs. Þetta eru helstu
niðurstöður skoðanakönnunar DV,
sem gerð var á fimmtudagskvöld.
Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt
á milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar, sem og kynja. Spurt var:
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því að
Islendingar hefji aðildarviðræður
við Evrópusambandið?
Af öllu úrtakinu sögðust 53%
vera fylgjandi aðildarviðræðum,
27,7% sögðust andvíg, 15,2% voru
óákveðin í afstöðu sinni og 4,1%
svöruðu ekki spurningunni.
Sé einungis miðað við þá sem
tóku afstöðu, 80,7%, voru 65,7%
fylgjandi aðildarviðræðum íslend-
inga við ESB en 34,3% andvíg.
Kyn og búseta
í hópi fylgjenda aðildarviðræöna
var ekki marktækur munur á af-
stöðu karla og kvenna, en í hópi
andstæðinga voru 57% karlar en
43% konur.
Þegar afstaðan er skoðuð eftir bú-
setu kemur i ljós að fylgjendur
skiptast jafnt milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar, en 56%
andstæðinga aðildarviðræðna eru
af landsbyggðinni og 44% af höfuð-
bogarsvæðinu.
Flestir fylgjendur meðal
sjálfstæðismanna
Þegar afstaðan til aðildarvið-
ræðna við ESB er skoðuð eftir
stuðningi við flokka, kemur í ljós
að stuðningsmenn eru hlutfalls-
lega flestir meðal sjálfstæðis-
manna, 60%. Þar á eftir kemur
Samfylkingin, en 58% stuðnings-
manna hennar eru fylgjandi aðild-
arviðræðum. Helmingur stuðn-
ingsmanna Frjálslynda flokksins
eru fylgjandi og 48% framsóknar-
manna. Munar þar væntanlega
nokkuð um að formaður Fram-
sóknar hefur opnað á Evrópuum-
ræðuna í flokknum.
Það er einungis í hópi stuðnings-
manna Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs að andstæðingar
aðildarviðræðna eru í meirihluta,
eða 52%.
Hinir óákveðnu
Meðal þeirra sem eru óákveðnir í
afstöðu sinni til stjómmálaflokk-
anna, eða neituðu að gefa upp hvaða
lista þeir myndu kjósa ef þingkosn-
ingar færu fram núna, eru 46%
fylgjandi aðildarviðræðum við ESB,
28% andvíg og 26% óákveðin eða
svara ekki.
-hlh
í gærdag sáu vitni nokkra menn skjóta fugla í varplandi við Andríðsey við Kjalarnes. Haft var samband við lögregluna í Reykjavík og kom hún á staðinn þeg-
ar mennirnir lögðu bát sínum að bryggju í Reykjavík. Mennirnir voru yfirheyrðir og afvopnaðir. DV-mynd S
Lífróöri Vestfirðmga frestað:
Einn i
-en ákveðið að
Ekkert varð af lífróðri sem Vest-
firðingar höfðu boðað til þann 1.
maí. Stefna átti sem flestum á sjó til
veiða á þorski og öðru sjávarfangi.
Þá var áformað að ræsa vélar frysti-
húsa í hverju þorpi til að vinna afl-
ann. Með þessu vildu menn undir-
strika að auðlindir sjávar væm al-
menningseign en ekki eign örfárra
einstaklinga.
Þegar 1. maí rann upp ákváðu
Á sjúkrahús
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eft-
ir frekar harðan árekstur tveggja
fólksbíla á laugardag á Suður-
landsvegi við Landvegamót.
Tvennt var flutt á sjúkrahús á Sel-
fossi og einn á sjúkrahús í Reykja-
lifroðri
reyna aftur í júlí
forsvarsmenn átaksins að fresta
því vegna veðurs. Þrátt fyrir það
ákvað einn skipstjóri að halda til
veiða og með honum fóru nokkrir
einstaklingar. Ekki fer neinum
sögum af aflabrögðum. Samkvæmt
heimildum DV stendur nú til að
róa á sömu forsendum í júlí í sum-
ar. Þá er talið líklegt að veður
verði skaplegt og fiskur genginn
inn á firði. -rt
eftir árekstur
vík. Lögreglan á Hvolsvelli segir
að þeir sem fóru á sjúkrahúsið á
Selfossi hafi fengið að fara heim
eftir skoðun. Sá sem var fluttur til
Reykjavíkur er meiddur í baki.
-SJ
í gær var undirritaður samningur um kostun á sjónvarpsefninu Mótorsporti
en DV og Vísir.is kosta þættina og munu birta ítarlega umfjöllun um keppn-
isgreinina, bæði í DV-Sport og á Vísi.is. Á myndinni skrifar Óli Björn Kára-
son, ritstjóri DV, undir samninginn. DV-mynd Teitur
Stuttar fréttir r>v
Sjálfstæðismenn sterkir
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
þrjá kjördæmakjörna á Suður-
landi og rúm-
lega 44 pró-
senta fylgi skv.
niðurstöðum
nýrrar Gallup-
könnunar.
Framsóknar-
flokkurinn
fengi tæp 22
prósent og einn mann og Sam-
fylkingin 25 prósent og einn
mann kjörinn. Vinstri hreyfmgin
- grænt framboð fengi 3,7 prósent,
Frjálslyndi flokkurinn 4,6 pró-
sent og Húmanistaflokkurinn 0,7
prósent. Árni Johnsen verður
þar með fyrsti þingmaður Suður-
lands, gangi spáin eftir.
Vísað af leikvelli
Tuttugu íslendingum var vísað
af leikvelli þegar þeir ætluðu að
fylgjast með leik Manchester
United og Aston Villa á Old Traf-
ford í gær. Þeir höfðu framvísað
stolnum miðum við inngang leik-
vangsins. Um hundrað íslending-
ar fóru í skipulagðri ferð á veg-
um ferðaskrifstofunnar Úrvals
Útsýnar til að fylgjast með þess-
um leik.
Góð þátttaka 1. maí
Ræðumenn á 1. maí hátíðar-
höldunum voru Halldór Bjöms-
son, formaður
Eflingar, og
Þuríður Einars-
dóttir, formað-
ur Póstmanna-
félags íslands.
Góð þátttaka
var í kröfu-
göngu og úti-
fundum víða um land í gær. I
Reykjavík flutti Guðrún Gests-
dóttir, formaður Iðnnemasam-
bands Islands, ávarp. Fundar-
stjóri var Guðríður Helgadóttir,
ritari Félags garðyrkjumanna.
Kosta námsgagnagerð
Búlandstindur og Gautavík
hafa undirritað samning við
tölvuskólann Framtíðarbörn um
kostun á námsefni í tölvufræð-
um. Markmiðið er, að sögn
Freyju Friðbjarnardóttur, skóla-
stjóra á Djúpavogi, felur samn-
ingurinn í sér að börnin fái besta
námsefni i tölvufræðum sem völ
er á. Textavarpið greindi frá.
Búfé þvælist fyrir
Slysum af völdum búfjár fjölg-
aði um 30 prósent frá árinu áður
og voru alls 205 á síðasta ári.
37 slys vora vegna árekstra við
hross og 168 vegna árekstra við
sauðfé. 40 manns hafa slasast i
árekstrum á árunum 1988-97, þar
af hafa tveir látist.
Jóns Leifs minnst
Þess var minnst í Berlín í
fyrrakvöld að 100 ár eru liðin frá
fæðingu Jóns
Leifs tónskálds.
Þar var það
Andreas Peer
Kahler hljóm-
sveitarstjóri
sem stóð fyrir
dagskrá þar
sem tónlist, lif
og störf Jóns voru kynnt. Texta-
varpið greindi frá.
Lágmarkslaun 100 þús.
Kjartan Jónsson, talsmaður
Húmanistahreyfmgarinnar, telur
að lágmarkslaun í landinu eigi að
vera eitt hundrað þúsund. Þetta
sagði Kjartan í samtali við frétta-
stofu Ríkisútvarpsins. Húman-
istahreyfingin telur sömuleiðis
að skattleysismörk eigi að
hækka.
Samstarf KEA og KÞ
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaup-
félag Þingeyinga hafa gengið til
samstarfs um stofnun einka-
hlutafélagsins Matbæjar ehf. um
rekstur matvöruverslana KÞ.
Stofnun félagsins er fyrsta skref-
ið í frekara samstarfi KEA og KÞ
á sviði matvöruverslunar og er
síðar stefnt að samruna. -hb