Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Side 4
4
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
Fréttir_______________________________________dv
Alvarlegt vélsleðaslys 1 Möðrudal á Fjöllum:
Hélt ég væri lamaður
- segir Fannar Freyr Bjarnason sem liggur hryggbrotinn á sjúkrahúsi
Fannar Freyr Bjamason, tvítugur
Vopnfirðingur, brotnaði á 5. lendar-
liö - sem er neðsti hryggjarliöurinn -
á laugardag í vélsleðaslysi í Möðru-
dal á Fjöllum. Hann liggur nú á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Vinur hans,
Vilhjálmur Vemharðsson frá Möðra-
dal á Fjöllum, hlaut heilahristing í
slysinu auk þess sem hann finnur
fyrir eymslum í baki og öxlum. Þeir
voru á sama sleða.
„Ég hitti Vilhjálm á Möðmdal og
við ætluðum að rúnta á sleðanum."
Veður var milt og gott. Fannar segir
að síðast þegar hann hafi litið á
hraðamælinn hafi hann sýnt 80 km
hraða á klst. „Ég keyrði sleðann og
allt í einu vomm við í frjálsu falli.
Þetta rann allt saman í eitt en ég
hafði ekki séð neina mishæð. Við
keyrðum fram af gíg sem hefur
myndast þegar sigið hefur undan
vatni. Við lentum fyrst á brúninni
hinum megin. Sleðinn fór þá aftur
upp í loftið og kastaðist síðan tæpa 20
metra. Vilhjálmur datt af sleðanum
en ég hékk í stýrinu og var síðan
kominn hálfur af sleðanum. Þá
sleppti ég stýrinu og lagðist niður og
fann að ég var að dofna niður í fæt-
urna. Þá kallaði ég: Er ég að lamast?
Svo ætlaði ég að reyna að standa upp
og fara aftur á sleðann en fann að ég
gat það ekki. Þá hugsaði ég með mér
að ég væri lamaöur."
Fannar sá Vilhjálm og kallaði til
hans fjórum til fimm sinnum en hann
svaraði ekki. „Ég var byrjaður að
reyna að klóra mig til hans þegar
hann stóð upp og kom til mín. Hann
var allur þrútinn í framan. Hann hafði
bitið í tunguna og var blóðugur. Hann
lyfti mér upp á sleðann og keyrði út á
Möðrudal. Ég hélt mér i sætið og það
var ekkert sérstaklega gott.“
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom
með félagana til Reykjavíkur.
DV-mynd S
Fannar Freyr Bjarnason liggur hryggbrotinn á Sjúkrahúsi Reykjavíkur en hann lamaðist ekki. „Ég er svo þakklátur
fyrir að vera ekki meira slasaður." DV-mynd S
Fannar segir að heimilisfólk á
Möðradal hafi bmgðist rétt við þegar
þeir félagar komu á sleðanum. Hann
var hafður i sömu stellingum og
hringt var í lækni á Egilsstöðum.
Þaðan var hringt í Landhelgisgæsl-
una sem sendi þyrlu sína á staðinn.
Þegar hún kom vora þar tveir sjúkra-
bílar frá Egilsstöðum.
Fannar segir að læknarnir séu
nær búnir að útiloka að hann fari í
uppskurð. „Það eru 99% líkur á að ég
sleppi við það. Ég fer í belti sem nær
frá miðjum lærum og hér um bil upp
á bijóstkassa og ég þarf að vera í því
í þrjá til fjóra mánuði. Svo á ég eftir
að fara í endurhæfingu."
Hann segir að hann hafi alltaf úti-
lokað að eitthvað þessu líkt gæti
komið fyrir hann sjálfan. „Þarna
komst ég að því hvað það er ofsalega
stutt á milli. Ég er svo þakklátur fyr-
ir að vera ekki meira slasaður. Mað-
ur trúir þessu varla.“
-SJ
Velunnarar og fastagestir veitingahússins Rauða Ijónsins á Seltjarnarnesi
gáfu fyrrverandi eigendum staðarins, Árna Björnssyni og Rósu Thorstens-
son, þetta forláta ijón í kveöjugjöf en þau eru nýbúin að selja staðinn. Á
barnum liggur skjal sem þau fá síðar afhent til minningar um staðinn en þar
er hægt að skrifa nafn sitt. Frá vinstri: Ási, Anna, Bóbó, Árni, Rósa og Hinni.
DV-mynd S
Með stolna miða
Dui'fa/j
sem þýðir að ferðaskrifstofur hér á landi eru á
þönum eftir aðgöngumiðum og verða að grípa til
örþrifaráða til að sinna þörfum og kröfum að-
gangsharðra fylgismanna þeirra félaga í
Englandi sem keppa hverju sinni.
Þetta er skýringin á því hvers vegna tuttugu Is-
lendingar voru leiddir út af Old Trafford um helg-
ina vegna þess að þeir voru sagðir vera með
stolna miða. Ekki það að þeir hafi stolið miðun-
um sjálfir og heldur ekki vegna þess að ferða-
skrifstofan hafði endilega stolið miðunum sjálf en
það hefur greinilega einhver séð ástæðu til að
stela miðunum til að útvega íslendingum tuttugu
aðgöngumiða að kappleik í Manchester. Sem er
sjálfsögð kurteisi gagnvart fólki sem er komið
langa leið til að sjá leik sem það hefur að vísu
ekki fengið miða til að sjá en vill sjá og þarf að
sjá og fær svo ekki að sjá vegna þess að það er
sakað um að hafa stolið miðunum.
Veslings fararstjórinn frá ferðaskrifstofunni
sem útvegaði miðana var með í ferðinni. Það
hefði hann aldrei átt að gera enda er það síðasta
sem fréttist af honum að hann var leiddur á brott
í lögreglufylgd. Hvers konar trakteringar eru
þetta á þjónustuglöðum fararstjóra sem gerði það
eitt að útvega miða á völlinn?
Það er lágmark, þegar búið er að stela miðum
á kappleik, að fólkið fái að minnsta kosti að sjá
leikinn áður en stuldurinn kemst upp! Sem sýnir
að þetta var ekki nægilega vandaður þjófnaður.
Dagfari
íslendingar láta ekk-
ert stöðva sig þegar fót-
bolti er annars vegar.
Ekki kannski fótbolti
hér heima enda nennir
enginn lengur að fylgj-
ast kappleikjum hjá ís-
lenskum liðum. Þeir
vinnast allir. Guðjón
Þórðarson sér um það.
Hann sér meira að
segja líka um það að
framleiða stráka í
landsliðið til að skora
fyrir sig mörkin.
Nei, íslendingar eru
búnir að fá sig
fullsadda af sínum eig-
in liðum. Nú eru það
liðin á Englandi sem
trekkja og hér heima
eru stofnaðir stuðn-
ingsmannaklúbbar
með öðru hverju liði í
Englandi og svo eru
opnaöir pöbbar með fullkomnustu móttökugræj-
um þar sem hundruð áhugasamra knattspyrnu-
unnenda geta safnast saman og horft á uppá-
haldslið sín etja kappi hvert við annað á risastór-
um skjám og bjórinn vellur og freyðir á meðan.
Sum knattspyrnufélögin hér á landi eru jafnvel
að færa út kvíarnar með því að leggja niður eig-
in fótboltastarfsemi en stofna þess i stað hlutafé-
lög til að kaupa ölstofur til afþreyingar fyrir með-
limi sína.
Og svo þyrpast þessir sömu áhugamenn til út-
landa og þó einkum að sjálfsögðu til Englands til
að sækja liðin „sín“ heim og komast færri að en
vilja. Það komast líka færri inn á vellina en vilja
sandkorn
Ráðherraefni
Á Austurlandi hefur Arnbjörg
Sveinsdóttir ekki hikað við að gagn-
rýna hálfvelgju Halldórs Ásgríms-
sonar sem rembst hefur við að halda
því fram að Norsk Hydro hyggist reisa
álver á Reyðarfirði,
löngu eftir að ljóst er
orðið að fyrirtækið
virðist athuga því.
Ambjörg gerði Hall-
dór t.d. kjaftstopp á
þingi þegar hún
spurði hvort ekki
yrði leitað nýrra
kosta í stað Norsk
Hydro. Hún reif til sin stóriðjufylgið,
meðan Halldór afrekaði að tapa bæði
stuðningi þeirra sem voru með stór-
iðju og líka hinna sem voru á móti. Að
gefnu tilefni rifjar Sandkom upp um-
mæli sín frá því fyrir skömmu, að
Ambjörg sé best varðveitta leyndar-
mál Sjálfstæðistlokksins og verði
næsta kona í ríkisstjórn Sjallans...
Liðtækur prestur
Séra Karl V. Matthíasson, sem er
í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar
á Vestfjörðum, var fyrir skömmu á
ferð á Bíldudal. Við höfnina var verið
að draga upp rækjutroll og stórt gat
var á belgnum. Einn
háseti sagði við prest
að hann skyldi kjósa
Samfylkinguna ef sr.
Karl gæti bætt gatið
með réttum hætti.
Prestur gerði sér lít-
ið fyrir, dró upp
sjálfskeiðung og
skar til gatið eftir kúnst-
arinnar reglum. Síðan bætti hann
trollið svo það var sem nýtt. Hásetinn
á rækjubátnum vissi nefnilega ekki að
fyrir utan að hafa verið trillusjómaður
á Snæfellsnesi var sr. Karl á togurum
í gamla daga og lærði að gera til neta
um borð í Svalbaki gamla...
Foringjaslagur
Meðal stuðningsmanna Jóhönnu
Sigurðardóttur er litil ánægja með
hvernig Margrét Frímannsdóttir
hefur tryggt sér leiðtogasæti Fylking-
arinnar. Fyrir viku tilnefndi hún
sjálfa sig forsætisráð-
herraefni. í takt við
það snérist framboðs-
þáttur Fylkingarinn-
ar á RÚV nær ein-
göngu um Margréti,
sem var mynduð i
„forsætisráðherra-
setti“ meðan Jó-
hanna sást varla. Blaða-
auglýsingar framboðsins síðustu daga
hafa líka mest megnis snúist um Mar-
gréti. Engum blandast þvi hugur um
að Margrét stefnir að því að verða
fyrsti leiðtogi flokksins sem verður
stofnaður upp úr Samfylkingunni.
Stuðningsmenn Margrétar, sem koma
ekki síst úr röðum yngra fólks í Al-
þýðuflokki og Alþýðubandalagi, segja
að Jóhanna geti sjálfri sér um kennt -
kosningabarátta hennar sé best
heppnaði feluleikur seinni ára....
Þessi Guðný
„Ert þú ekki þessi Guðný sem Dav-
íð Oddsson átti nokkra góða daga
án?“ spurði hinn beinskeytti forstjóri
Steypustöðvarinnar, Halldór Jóns-
son, þegar hann hitti Guðnýju Guð-
björnsdóttur, fram-
bjóðanda Samfylking-
arinnar, á laugar-
bakkanum í Laugar-
dalslaug á fimmtu-
dagsmorguninn
ásamt Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Guðný blossaði upp
við þessa beinskeyttu spurningu sjálf-
stæðisleiðtogans úr Kópavogi, sagði
að rétt væri að stefna Davíð. Pottverj-
ar í Laugardalslauginni, sem mæta
snemma hvern morgun, eru talsvert
einlit, blá hjörð. En þær stöllur
reyndu hvað þær gátu að kynna þeim
sjónarmið sín. Skorað var á þær að
fara í sundboli og koma ofan í pottinn
til viðræðna, en þeim hefur ekki litist
á blikuna og létu það eiga sig....
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is