Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Síða 13
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
13
Fréttir
Egilsstaðir:
Grænn menntaskóli
DV, Egilsstöðum:
Græna bylgjan á Egilsstöðum
skall með fullum þunga inn í
menntaskólann. Þar er starfandi
umhverfisráð úr hópi nemenda sem
hefur unnið að könnun á umhverfis-
þáttum. Hvað megi betur fara. í
kynningarbæklingi, sem það hefur
gefið út, segir um tilgang þessa verk-
efnis að það sé að ala upp „græna“
nemendur í „grænum" skóla og fá
þeim „grænt“ veganesti inn í 21. öld-
ina í samræmi við sáttmálann í Ríó
1992.
Nemendur hafa rannsakað raf-
magns- og hitavatnsnotkun og lagt
fram tihögur til sparnaðar. Þeir hafa
kynnt tillögur um endurnýtingu á
ýmsu sem áður hefur farið beint í
urðun. Má þar nefna umbúðir utan
af morgunkorni, sem þeir vilja nýta
til að geyma í pappírsgögn, og mjólk-
urfernur sem blómapotta. Þeir fengu
ruslafötur á heimavistir til að flokka
rusl, pappír, rafhlöður og fleira.
Á opnum degi í skólanum 22. apr-
íl kynntu þeir þetta verkefni. Þar
kom fram að kennarar og starfsfólk
hafi verið mjög jákvætt gagnvart
þessu starfi og er ætlunin að gera
. umhverfi nemenda, bæði úti og inni,
eins snyrtilegt, aðlaðandi og um-
hverfisvænt og unnt er. Að því er
þeir best vita er aðeins einn annar
framhaldsskóli á landinu sem hefur
tekið þessi mál svo föstum tökum.
-SB
Umhverfisráð Menntaskólans á Egifsstöðum. Neðsta röð, f.v.: Stella, Sunna,
Agnes, Petra. Önnur röð: Kolbrún, Gunnar, Berglind. Þriðja röð: Hlynur,
Auður, Björgvin, Þorbjörn, Svanur. Aftast: Skarphéðinn Þórisson kennari,
tengiliður umhverfisráðsins. DV-mynd Sigrún
Menntaskólinn á Egilsstöðum 20 ára:
Samkeppni um merki skólans
DV, Egilsstöðum:
Á þessu ári verður Menntaskól-
inn á Egilsstöðum 20 ára. í tilefni
þess var opinn dagur í skólanum á
sumardaginn fyrsta. Kennsla var í
fullum gangi þennan dag þótt frí-
dagur væri og var ölium boðið að
koma í tíma og fylgjast með kennsl-
unni. Síðdegis var dagskrá á sal þar
sem umhverfishópur kynnti verk-
efni sín og hljómsveitir spiluðu.
Kynnt voru úrslit í samkeppni
um merki fyrir skólann. Sigurveg-
ari var Gunnhildur Ingvarsdóttir í
Héraðsprenti og dóttir hennar, Ing-
unn, hlaut önnur verðlaun. Veislu-
kaffi var á borðum. Fullt var út úr
dyrum í skólanum þennan dag. Sið-
ar um kvöldið voru tónleikar í Eg-
ilsstaðakirkju þar sem kór mennta-
skólans og ýmsir hljóðfæraleikarar
komu fram. Aðalafmælishátíðin
verður síðan haldin í haust. -SB
menntaskóunn
A EGItSSTÖOUM
Merki ME eftir Gunnhildi Ingvars-
dóttur. DV-mynd Sigrún
Agúst Einarsson
er í baráttusæti
Samfylkingarinnar
á Reykjanesi.
Breytum rétt
Skrifstofur VÍS í Otibúum Landsbankans á Höfn f Hornafirði og í Ólafsvfk eru opnar frá 9:15-16:00.
Sími 560 5000 í þjónustuveri VÍS er opinn frá 8:00-19:00 alla virka daga.
Skrifstofur VÍS eru
opnar frá 8-16 alia
virka daga í sumar.
w
VÁTRYGGIIVGAFÉLAG ÍSLWDS HF
- þar sem Iryggingar snúast um fólk
Petur Björnsson, löggiltur bifreiðasali • Styrmir Vignisson löggiltur bifreiöasali • Sigurður Ofeigsson sölumaður
Nissan Almera 1,6 '96, ek
26 þús. km, 4 d., ssk.
Verð 1.120 þús.
VW Vento 1,8 GL '93, ek
80 þús. km, 4 d., ssk.
Verð 950 þús.
MMC lancer 1,5 GLX '91,
ek. aðeins 73 þús. km.
Verð 640 þús.
VW Polo 1,4 '96, ek. 31
þús. km, 5 d. Bílalán getur
fylgt. Verð 880 þús.
Subaru Legacy '97, ek. 34 Nissan Patrol '98, ek. 18 þús
þús. km, ssk. km. V. 3.480 þús.
Verð 1.840 þús. Nissan Patrol, ek. 11 þús.
Úrval annarra árgerða. km. Enn fremur aðrar árgerðir.
UTVEGUM BILALÁN
STOFNAÐ 1977
BOBflABBILASALAW
MMC L-300, 2,4 vél, '91,
ek. 135 þús. km, mikið yfir-
farinn.
Verð 1.020 þús.
Toyota HiLux D/C '94, ek.
178 þús. km, bensín, einn
eigandi, smurbók.
Verð 1.300 þús.
Nissan Patrol '94, ek. 130
þús. km, 38“ dekk, mikið
breyttur, vel útlítandi.Verð
2.850 bús.
Mazda 323 F 1,6 LXi '92,
ek. aðeins 107 þús. km.
Verð 690 þús.
GRENSASVEG111 - SIMI 588 5300
LÖGGILT BÍLASALA