Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Side 18
18
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
Fréttir
Jón Kr. Gunnarsson lét veiða Keikó:
Jarðarförin kæmi Keikó
á ný í heimspressuna
Bakugginn er kengboginn og virðist enn vesælli en þegar hann kom til
landsins, segir Jón Kr. í núútkominni bók sem hann skrifaði um Keikó-æv-
intýrið.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Samningar um
barnadeild
undirritadir
Veiðimaður Keikós, Jón Kr.
Gunnarsson, sem rak Sædýrasafnið
í Hafnarfirði, segir
að það veki grun-
semdir og valdi enn
fremur áhyggjum að
helst engir fái að
fara út að flotgirð-
ingunni sem reist
var fyrir Keikó í
Vestmannaeyjum.
„Það vekur þær
spurningar hvort
heilsufarið sé ekki
alveg eins gott og af er látið. Þær
myndir sem birtar hafa verið af
Keikó eru ekki traustvekjandi.
Bakugginn, sem er einkennistákn
þessara glæstu dýra, er kengboginn
og virðist enn vesælli en þegar
hann kom til landsins,“ segir Jón
Kr. í nýútkominni bók sem hann
skrifaöi um Keikó-ævintýrið og
heitir „Hvalreki eða kvalræði".
Jón greinir frá veiðum á háhym-
ingum hér við land fyrir tveimur
áratugum eða svo, sölu hvalanna,
lífi þeirra í sædýragörðum og
múgsefjuninni sem hann segir að
fjölmiðlar hafi skapað í kringum
meinta frelsun Keikós. Jón er lítt
hrifinn af flutningnum til íslands,
sem hann telur mjög ámælisverðan.
„Strangt til tekið stríðir það gegn
allri meginhugsun í umhverfismál-
um að flytja dýr á milli ólíkra vist-
kerfa. Flutningur á Keikó hlýtur því
að vera i andstöðu við stefnu flestra
umhverfissamtaka. Þó Keikó hafi
ekki verið í Kyrrahafinu sjálfu hef-
ur hann verið á meðal dýra þaðan.
Það krefst auðvitað sérstakrar að-
gæslu,“ segir Jón Kr. Gunnarsson.
Jón vill hugsa Keikó-ævintýrið
allt til enda. Hann segir að einn góð-
an veðurdag geispi hvalurinn gol-
unni. Þá þyki þaö á við mannát að
hakka kjöt hans í 60.000 kjötbollur
til Súdans, eins og lagt var til í fyrra
og frægt er orðið.
„Ef illa fer þá verður að hugsa
fyrir jarðarför með pomp og prakt.
Það yrði öllum til sóma og Vest-
mannaeyjar kæmust í heimspress-
una enn á ný, jafhvel klukkum yrði
hringt. Árni Johnsen mundi spila á
gítarinn sinn og Stórhöfðasvítan
duna í eyrum," segir Jón Kr. Gunn-
arsson í bók sinni um Keikó.
DV, Akureyri:
Akureyrarbær, heilbrigðisráð-
herra og forsvarsmenn Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
hafa undirritað verklokasamning
vegna flutnings barnadeildar
sjúkrahússins í nýbyggingu
sjúkrahússins. Barnadeildin
verður fyrsta deildin sem flytur í
nýbygginguna en byggingin hef-
ur staðið auð í langan tíma eftir
að uppsteypu hússins lauk.
Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins, segir að með undirritun
verklokasamningsins og með út-
boði, sem þegar hefur farið fram,
sé tryggt að bamadeildin flytji í
4. hæð nýbyggingarinnar í janú-
ar á næsta ári. Hann segir deild-
ina hafa búið við þröngan húsa-
kost, eins og reyndar aðrar deild-
ir sjúkrahússins, en nú séu bjart-
ari timar fram undan.
„Okkar hugur stendur til þess
aö samningar um flutning starf-
semi annarra deilda sjúkrahúss-
ins í nýju bygginguna fari fram
eins fljótt og auðið er. Það er full
þörf að taka hinar þrjár hæðirn-
ar i notkun sem fyrst því við
búum við mikil þrengsli,“ segir
Halldór.
-gk
Jón Kr. Gunn-
arsson.