Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999 19 Fréttir Ólafsvík: Nýtt hótel að rísa DV, Ólafsvík: í blíðskaparveðri á sumardaginn fyrsta var tekin fyrsta skóflustung- an að nýju hóteli í Ólafsvík og er það bygging við Gistiheimilið Höfða sem stendur við Ólafsbraut. Eigandi hótelsins er Eygló Egilsdóttir en hún hefur verið með gisti- og veit- ingarekstur í Ólafsvík i sex ár. Móð- ir Eyglóar, Guðlaug Sveinsdóttir, tók fyrstu skóflustunguna. Frá vinstri: Egill Guðmundsson og Guðlaug Sveinsdóttir, foreldrar Eyglóar, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að nýja hótelinu. DV-mynd Viðbyggingin verður fjórar hæðir og um 700 fermetrar að gólfleti og í húsinu verður lyfta. Að sögn Eygló- ar verða til með þessari viðbygg- ingu 18 ný 2ja manna herbergi með baði og vel útbúin. Alls verða þá 29 herbergi í húsinu. Þá mun batna til muna öll funda- og ráðstefnuaðstaða á hótelinu. Viðbyggingin er teiknuð á teikni- stofu Magnúsar H. Ólafssonar, arki- tekts á Akranesi, og eru þetta sam- ansettar, steyptar einingar sem smíðaðar eru af Einingaverksmiðj- unni hf. í Reykjavík. Öll önnur vinna iðnaðarmanna verður unnin af heimaaðilum og fram undan er mikil vinna, bæði við hótelið og önnur verkefni i bæjarfélaginu. Verklok eru áætluð 10. júlí nk. og Ijóst er að mikill kraftur verður í smíði þessa húss hjá Eygló. Fyrirgreiðsla fékkst til þessara framkvæmda, bæði hjá Ferðamála- sjóði og Byggðastofnun. Sr. Friðrik J. Hjartar, sóknarprestur í Ólafsvík, blessaði þessar framkvæmdir og óskaði Eygló alls hins besta. Sagði hann meðal annars að í fleiri en ein- um skilningi væri að koma sumar i Snæfellsbæ. Eygló sagðist mjög bjartsýn á framhaldið. Mikil aukning hefði verið á komu ferðamanna til Snæ- fellsbæjar sl. sumar. Mikil þörf væri á góðri aðstöðu fyrir ferðafólk og hún vildi bjóða það besta. Hún hefði þegar verið byrjuð að selja gistingu i nýja hótelið sl. haust því hún hefði verið ákveðin að þetta hús mundi rísa. -PSJ Áður aðeins í tískublöðum Nútalegiri Valmiki ^Leður St. 36-41 Litur: Svart Verð 7.700 > Sacha Fleiri gerðir féanlegor Kringlunni sími 553 2888 (við hliðina ó Landssímanum) J5% ÆÆÆMÆMMÆÆÆÆMMWÆWMMÆÆÆÆÁ staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafslóttur og stighœkkandi Smóauglýslngar birtingarafslóttur ÍEBBa 550 5000 Meó einu handraki býróu til boró á baki bíistjórasætis. 4 loftpuóar: bíistjóri, farþegi í framsæti og hlióarpúóar. Þú getur gert Scenic bilinn aó sendibrt s einu vetfangi. Tvö góó hólf í góifi fyrir framan aftursæti. Fj ars týró hljómtæki með geislaspilara, fjarstýró úr stýri. Scénic er einn besti fjölskyldubtfl sem þú færó. a ¥tm<ht í Renmlt Scénk Þriggja punkta öryggísbelti meó strekkjurum og höggdemp- urum fyrir alla farþega bílsins. Verá 1.678.000,- Þaó er líkt og Renault Mégane Scénic stækki þegar þú sest inn í hann, enda er hann fyrsti fjölnotabíilinn í flokki bíla f millistæró. Segja má aó Scénic sé í raun þrír bílar, fjölskyldubíll, feróabíll og sendibíll. Hann er aóeins 4,23 m á lengd en hugmyndarík hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega notadrjúgan og hagkvæman fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Þaó er engin furóa þó hann hafi umsvifalaust verið valinn bíll ársins af öllum helstu bíla- tímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur. Hér á landi hefur hann þegarfengið frábærarviðtökur. Grjótháls 1, sími 575 1200, söludeild 575 1220

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.