Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Síða 20
Fréttir 20 Ultimax kr. 6.990 a*. Cosmic kr. 2.990 Assassin fótboltaskór stærðir 39-47 kr. 3.990 Jói útherji ARMULA 36 REYKJAVÍK SÍM! S88 1560 Til sjóðfélaga og viðskiptavina Afgreiðslutími Frá 3. maí -15. september 1999 er skrifstofa sjóðsins opin frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga. Yfirlit send til sjóðfélaga Hinn 1. mars 1999 voru send yfirlit tiL allra greiðandi sjóðfélaga yfir skráð iðgjöld frá 1. janúar 1998 til 28. febrúar 1999. Sjóðfélagar eru hvattir til að bera þau saman við launaseðla. Beri þeim ekki saman er áríðandi að hafa strax samband við sjóðinn því dýrmæt réttindi geta glatast vegna vanskila á greiðslum. Suðurtandsbraut 30 108 Reykjavík Slmi: 510 5000 Fax: 510 5010 Grænt ntimer: 800 6865 Heimasíða: lifeyrir.is Netfáng: mottaka@lifeyrir.is >ameinaði lífeyrissjóðurinn ■I—I Þelr flska sem róa. . Þelr flska sem róa Þelr flska sem róa. Þelr wwvs#. 'i/i s i r» i s nmriM sreo fk&TTnisMa MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999 Háskólinn á Akureyri: Matvælagaröur tekur til starfa á árinu DV, Akureyri: Ríkisstjómin hefur samþykkt til- lögu þess efnis að stofnað verði Mat- vælasetur Háskólans á Akureyri. Jafnframt hafa Kaupfélag Eyfirð- inga og Rannsóknarstofnun fiskiðn- aðarins undirritað samstarfssamn- ing um samvinnu í öflugum Mat- vælagarði. Markmið þess samstcirfs er að skapa umhverfí fyrir hagnýtar rannsóknir, þjónustu, ráðgjöf og fræðslu sem skal standast ströng- ustu kröfur sem gerðar eru til slíks umhverfis hvað varðar allan aðbún- að. Um allnokkurt skeið hefur verið í gangi umræða um að stofna þyrfti til sameiginlegra matvælarann- sókna, ráðgjafar, vöruþróunar og kennslu, með það að markmiði að byggja upp fagleg vinnubrögð og ná fram hagkvæmni í þessum verkefn- um. í matvælaframleiðslugreinun- um er til staðar mikil þekking og myndi slíkt setur auðvelda þekking- aryfirfærslu á milli einstakra greina. Miðað er við að Matvælagarður- inn taki til starfa á þessu ári og er þess vænst að fleiri framleiðendur sjái sér hag í því að koma að þessu samstarfi. Rannsóknarstofnun fisk- iðnaðarins mun tryggja að trúnað- arupplýsingum sem aflað er í sam- starfi við þriðja aðila sé haldið leyndum. Þeir þættir sem munu verða þungamiðjan í starfsemi Mat- vælagarðs KEA og RF verða rann- sóknir, ráðgjöf, þjónusta og fræðsla. Sem dæmi má nefna rannsóknir varðandi vöruþróun og nýsköpun, ráðgjöf á sviði innra eftirlits og varðandi vottun, mælingar efna gerla og aðrar mælingar og prófan- ir, tengdar matvælaframleiðslu, auk kennslu og námskeiða fyrir starfs- fólk fyrirtækja. -gk Grásleppuvertíðin: Sæmileg byrjun á Skipaskaga DV, Akranesi: Grásleppukarlar á Akranesi byrj- uðu að leggja net sín siðasta vetrardag og stendur vertíðin yfir til 20. júli. 10-15 bátar stunda grásleppuveiðar að þessu sinni og eru þeir mun færri en hafa verið. Er það meðal annars vegna offramboðs á grásleppuhrogn- um og lélegs verðs. DV hitti að máli Jóhannes Eyleifs- son á Leifa AK 2 sem er aö hefja sína 42. grásleppuvertíð. Hann var með 250 kg í sínum fyrsta róðri en á síðustu vertíð, sem var sú lélegasta af þeim 42, var hann með 1.800 kíló samtals. „Fyrsta lögnin segir ekkert um áframhaldið en þetta er sæmileg byrjun. Ég er með 100 net og reikna með því að verðið verði á bilinu 39-41 þúsund á tunnuna. Það er bara vonandi að þetta verði betra en í fyrra,“ sagði Jóhannes grásleppu- karl. -DVÓ Jóhannes Eyleifsson á Lelfa AK 2 heldur á tveimur grásleppum. DV-mynd Daníel Mývetningar vilja pólitískan fund DV, Akureyri: Sveitarstjóm Skútustaðahrepps i Mývatnssveit hefur óskað eftir að þeir flokkar sem bjóða fram við komandi alþingiskosningar mæti til opins stjómmálafundar í Mývatns- sveit og verði fundurinn haldinn nk. þriðjudagskvöld, kl. 20.30, í Skjólbrekku. í upphafi fundarins vilja heima- menn fá framsöguræður frá tals- mönnum flokkanna þar sem þess er óskað að þeir ræöi m.a. málefni Kis- iliðjunnar og lýsi afstöðu sinni til áframhaldandi starfsemi Kísiliðj- unnar, m.a. til töku kísilgúrs í Syðri-Flóa. Þá lýsi flokkamir fram- tíðarsýn sinni á byggð í Mývatns- sveit og verði atvinnumálunum þar m.a. gerð skil. Þá óska fundarboðendur eftir sýn flokkanna á möguleika í ferðaþjón- ustu í Mývatnssveit, til stækkunar rafstöðvar i Bjarnarflagi, og flokk- amir skuli viðra skoðanir sínar á því hvemig skuli bregðast við til að verja hinar dreifðu byggðir. Að loknum framsöguræðum verð- ur opnað fyrir almennar fyrirspum- ir sem skulu vera stuttar og hnit- miðaðar. F’undartími verði um 2,5 klukkustundir og fúndarstjóri verði Sigbjöm Gunnarsson sveitarstjóri. -gk NÓATÚN 17 TOPPMERKI A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.