Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
Fréttir
íslensk miölun á Stöðvarfirði:
Fjölgar störfum
Fyrirtækið íslensk miðlun Stöðv-
arfirði ehf. var stofnað 29. apríl og
verða starfsmenn fyrirtækisins á
Stöðvarfírði 12-14. Þeir munu sinna
markaðs- og upplýsingastörfum á
vöktum í beinum tengslum við höf-
uðstöðvar íslenskrar miölunar ehf. í
Reykjavík. Framkvæmdastjóri verð-
ur ráðinn á næstu dögum og er
áætlað að starfsemin hefjist í ágúst.
íslensk miðlun Stöðvarfirði ehf.
er einkahlutafélag í eigu íslenskrar
miðlunar ehf. og Stöðvarhrepps.
Tæknival hf. setur upp tölvu- og víð-
netsbúnað fyrir fyrirtækið ásamt
símbúnaði frá Smith & Norland.
Jafnframt verður sett upp fjarfunda-
kerfi með tengingu við skrifstofu fyr-
irtækisins í Reykjavík. Hin nýja víð-
netstækni gerir mögulegt að íslensk
miðlun getur starfað jafnt í Reykja-
vík sem á Stöðvarfirði og Raufarhöfh
því nú er unnt að tengja saman tvo
eða fleiri vinnustaði sem geta starfað
saman óháð vegalengdum.
í tilefni af stofnun fyrirtækisins
á Stöðvarfirði býður íslensk miðlun
íbúum á tölvunámskeið og í kjölfar-
ið að eignast hraðvirkar tölvur og
prentara í samvinnu við Lands-
banka íslands á staðnum.
íslensk miðlun ehf. rekur full-
komna símamiðstöð meö um 25
starfsstöövum í Reykjavík og á Rauf-
arhöfn og annast margvisleg mark-
aðs- og sölustörf. Fyrirtækið tekur
að sér símsvörun fyrir fyrirtæki, út-
hringingar og innhringmgar vegna
upplýsinga-, markaðs- og söluher-
ferða, markhópavinnslu og gerð
spurninga- og markaðskannana.
Fyrirtækið var stofnað fyrir
tveimur árum að erlendri fyrir-
mynd en starfsemi af þessu tagi vex
hröðum skrefum erlendis. Þess má
geta til gamans að þetta þýðir um
það bil 15% fjölgun starfa á Stöðvar-
fírði og munar um minna. íslensk
miðlun ehf. er í eigu hjónanna Svav-
ars Kristinssonar framkvæmda-
stjóra og Karólínu Hróðmarsdóttur.
-GH
Skert dýralæknisþjónusta
DV, Hólmavik:
Breytt skipan dýralæknisþjónustu í
landinu, sem taka átti gildi um síð-
ustu áramót en frestað var af ýmsum
ástæðum, orsakaði að minnsta kosti
að meginhluta til að velflestir Vest-
firðingar njóta nú þjónustunnar í
mun minna mæli en verið hefur eftir
að dýralæknishjónin, Höskuldur Jens-
son og Laufey Haraldsdóttir, fluttu sig
um set undir lok síðasta árs.
Sauðfjárbændum á Ströndum fell-
ur til dæmis miður að eiga minni
ítök í aðstoð Laufeyjar þegar sauð-
burður er að hefjast en hún hefur
dvalið á Hólmavík undanfarin vor.
Sauðfjárbændur sem aðrir þurfa
því að drekka lopaseyðið af ákvörð-
unartöku aðila sem standa þeim
fjarri og virðast oft í himinhæð ofan
við hversdagslegt líf fólks til sveita.
-GF
3§
Vandaðir Amerískir svefnsófar með innbyggðri
springdýnu. Frábær lausn þegar sameina þarf
fallegan sófa og gott rúm. Við bjóðum margar
gerðir, mikið úrval áklæða og lita.
■
*
n
geröir, r
Raðgreiðslur í 36 mán,
* m
4 20-112 Reykjavík Sfmi 510 8000
HÚSGAGNAHÖLUN
Skjár 1 er öllutn
opittn án endurgjalds.
Stöðin er eingöngu
rekin á auglýsingutn.
Utbreiðslusvaði Skjás h
Faxaflóasvœ ðið
Suðurnes
Suðurland
Akranes
Tilað stilla inn á
tnyndlykil veljið fyrst
CP takka, stimplið
síðan inn 63 eða 99,
mism unandi eftir
endurvarpi
Þegar mynd er komin
ýtið þá á opin tígul,
sláið inn minnisnúmer
og síðan á lokaðan
tígul. Endið aðgerð
með að ýta aftur á CP
takkann. Stöðin er nú
föst ím inni á lyklinum.
VALGERÐUR MATTÍASDÓTTTR
EGILL HELGASON
MEÐHAUSVERKUM HELGAR
DAVID LETTERMAN
KAPALVÆDING-dif
Batkasgöcu 14
Kcfiav*
Sfcnfc 421 -1432
ÓKEYPIS SJéRVAMITlS - llLII IPII
Skjár 1 er sendur út á örbylgju og á Breidvarpi Eandssímans.
. Ef þú þarft aÖstod viÖ aö stilla á Skjá 1 hringdu í 544-4242
og starfsmenn stöÖvarinnar munu leiÖbeina þér.