Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Blaðsíða 8
30 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999 Sport Berglind, markvörður Vals: Æft rosalega vel í vetur Berglind iris Hansdóttir er fyrir- liði 3. flokks kvenna í Val og jafn- framt lykilmaður milli stanganna. Hún sagði að liðið hefði sýnt mik- inn karkater í úrslitaleiknum um íslandsmeistaratitilinn en það kæmi sér líka vel aö liðið byggi yfir góðri breidd og engin aðal- manneskja væri í liðinu. Allar hafa þær æft rosalega vel, 6 sinnum í viku, frá því i sumar og það skilaði sér í erfiðum úrslitaleikjum. Berglind er einnig markvörður unglingalandsliðsins, sem er á leið til Kína, hún var bæði í fótbolta og handbolta en hefur nú valið handboltann. hjá Valsmönnum í 3. flokki karla og kvenna Það þarf ekki að leita langt til þess að finna hvar besta handbolta- fólk landsins, fætt árin 1981 og 1982, hefur æfingaaðstöðu. Valsmenn náðu þeim ótrúlega glæsilega árangri að vinna alla þá þrjá titla sem voru í boði í 3. flokki í handbolta í vetur, bæði hjá strák- um og stelpum. Valur vann því sexfalt í 3. flokki í vetur, varð tvö- faldur deildarmeistari, bikarmeist- ari og íslandsmeistari. Þjálfararnir Óskar Bjami Óskars- son hjá strákunum og Erlingur Ric- hardsson hjá stelpunum geta því ekki verið annað en sáttir við upp- skeru vetrarins en aðalstyrkur beggja liði er hin gífurlega breidd sem þau hafa yfir að ráða og að hvorugt liðið snýst i kringum eina stjömu heldur alla liðsheildina. Seinni hálfleikur frábær í 3. flokki karla unnu Valsmenn Fram, 19-12, í úrslitaleiknum um ís- landsmeistaratitilinn en Valur vann ÍR í undanúrslitum og Fram lagði Víkinga í framlengdum leik. ÍR varð í 3. sæti eftir 15-14 sigur á Vík- ingum í hörkuleik. Valsmenn spiluðu úrslitaleikinn mjög vel, sérstaklega í seinni hálf- leik þegar þeir nýttu 65% sókna sinna og 11 af 12 skotum. Mark- varslan skipti miklu máli en Bene- dikt Ólafsson, markvörður Vals, varði 17 skot en markverðir Fram aðeins 4 skot samtals. Markús Michaelsson, skytta Vals- manna, átti einnig stór- leik, nýtti öll 10 f skot sín í leiknum og átti auk þess 4 stoðsendingar. Einhæfur sóknar- leikur Fram háði liðinu, Níels Bene- diktsson átti stórleik, gerði 11 af 12 mörkum en hinir leikmennirnir nýttu aðeins 1 af 14 skotum. Mörk Vals: Markús Michaelsson 10/2, Snorri Guðjónsson 3, Amar Friðgeirsson 2, Ragnar Þór Ægisson 2, Sigurður Eggerts- son 1 og Fannar Þorbjömsson 1. Mörk Fram: Níels Benediktsson 11, Hafsteinn Ingason 1. Valur vann FH örugglega í bikarúrslitaleiknum, 20-11. Tvíframlengt í 3. flokki kvenna unnu Valskonur KA, 13-11, í tviframlengd- um úrslitaleik um ís- landsmeistaratitilinn. KA byrjaði mun betur og var 5-2 yfir í hálf- leik en Valur náði að jafna og tryggja sér 1 framlengingu og svo sigur í annarri fram- lengingu. Valskonur áttu i erfiðleikum með Þóru B. Ottesen, markvörð KA, sem varði 18 skot. Mörk Vals: Anna M. Guðmundsdóttir 5, Marín Sörens 5/2, Kristín Geir- arðsdóttir 2, Svanhildur Þorbjömsdóttir 1. Mörk KA: Ásdís Sig- urðardóttir 4/1, Eyrún Káradóttir 4, Guðrún Guð- mundsdóttir Martha Her- mannsdótt- ir 1, Ebba Brynjars- | dóttir 1. Valur vann IR í bikarúrslitaleikn- um, 10-8, í hörkuleik. Bank, bank Eitt er orðið víst að bankið dyrnar í meistara- . . flokk- yÁíil"1?5 Vals fyrir Hér fyrir ofan lyftir Berglind Iris Hansdóttir 3. flokksbikarnum en á myndinni hér til hliðar eru frá vinstri þær Kolbrún Franklín, Berglind, Marín Sör- ens og Anna M. Guðmundsdóttir. Á myndinni niðri í vinstra horni síðunnar eru þeir Markús Michaels- son, Benedikt Ólafsson og Fannar Þorbjörnsson, lykilmenn og liðs- menn 3. flokks karla. bikarmeist- arar Vals i flokki : 7 'V- ! • it *- "*• p - ■ 2 ■ ' \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.