Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Page 9
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999
31
Sport
Fyrsta kynbótahrossið á heimsmeistaramótið?
- fékk 8,50 og er nánast öruggur
Qj PTTT íp oka
Jóhann Magnússon og Halla Eygló Sveinsdóttir fóru nýlega til Österby-
halz í Þýskalands að dæma íslensk fædd kynbótahross. Slíkar sýningar eru
settar upp þegar von er á heimsmeistaramóti (HM) og eru hrossin föl fyrir
ísland sem keppnishross í kynbótasýningunum á HM.
Sýnd voru um tuttugu hross: tíu hryssur 6 vetra og eldri, ein 5 vetra
hryssa og níu stóðhestar.Fjögur hrossanna fengu 8,00 eða hærri aðalein-
kunn og tvö þeirra mjög góða útkomu: Glaður frá Hólabaki og Viðja frá
Síðu, en þau kepptu bæði fyrir ísland á HM í Noregi 1997.
Glaður frá Hólabaki, sem hlaut efsta sætið á HM í Noregi árið 1997 með
8,21 í einkunn fékk nú 8,50 í aðalein-
kunn og nánast öruggur um að hafa
tryggt sér sæti á HM í Þýskalandi.
Glaður er undan Garði frá Litla-
Garði og Lýsu frá Hólabaki og hlaut
8,30 fyrir byggingu, 8,71 fyrir hæfi-
leika og 8,50 í aðaleinkunn.
Viðja frá Síðu, undan
Hrannari frá Kýrholti og
Sinnu frá Sauðárkróki,
hlaut 8,23 fyrir bygg-
ingu, 8,40 fyrir hæfi-
leika og 8,31 í aðalein-
kunn. Mjög líklegt er að hún fari
einnig á líM í Þýskalandi sem full-
trúi íslands í kynbótasýninguna. Til
að svo verði ekki þarf að koma fram
íslensk fædd hryssa með hærri
dóm og jafnframt þarf hún að
vera föl á sýninguna því Ágúst
Sigurðsson landshrossaræktar-
ráðunautur hefur látið þau boð út
ganga að hæst dæmda hrossið fari
svo framarlega sem það er falt.
Dugur frá Minni-Borg, undan Kol-
grími frá Kjamholtum og Huggun frá
Engihlíð, fékk 7,75 fyrir bygg-
ingu, 8,43 fyrir hæfileika
og 8,10 í aðalein-
kunn.
Stefja
frá
Félagar i Sörla héldu nýlega hið ár-
lega Hróa hattarmót sitt á Sörlastöð-
um en á móti þessu keppa eingöngu
ungknapar.
Tœplega sextiu knapar mættu til
leiks. Hinrik Þ. Sigurðsson úr Sörla
sópaði verðlaunum til sín í ung-
mennaflokki á Val frá Litla-Bergi og
sigraði í gangtegundakeppninni auk
þess að fá ásetuverðlaun og þeir voru
valdir glæsilegasta parið.
í unglingaflokki sigraöi Gunnar Örn
Einarsson úr Mána á Halifax frá
Breiðabólstað.
Berglind Rósa Guðmundsdóttir úr
Gusti á Sjöstjömu frá Svignaskaröi
fékk ásetuverðlaun og Rut Skúla-
dóttir úr Mána var ásamt Tvisti frá
Keflavik valin glæsilegasta parið.
í barnaflokki sigraði Bjarnleifur
Bjarnleifsson úr Gusti á Tinna frá
Tungu en þeir voru einnig valdir
glæsilegasta parið. Rósa Birna Þor-
valdsdóttir úr Sörla fékk ásetuverð-
laun en hún sat Árvakur frá Sand-
hóli.
Yngstu börnin kepptu í pollaflokki.
Bergrún Ingvarsdóttir úr Andvara
sigraði á Kópi frá Árbæjarhelli og
þau voru einnig valin glæsilegasta
parið en Birkir Rafn Þorvaldsson
úr Sörla fékk ásetuverðlaun á Frey
frá Sandhól.
Nœstkomandi föstudagskvöld verð-
ur haldið sterkasta tölt- og skeið-
keppni innanhúss á íslandi til þessa i
reiðhöllinni að Ingólfshvoli, að sögn
Hafliða Halldórssonar.
Hafliði hefur valið 14 töltmeistara
og annað eins af skeiðmeisturum eft-
ir punktum og árangri. Keppt verður
í tölti og komast fnnm hestar í úrslit.
Keppt verður í 80 metra fljúgandi
skeiði og fer hver hestur þrjár ferðir.
Tekinn verður tími með rafklukkum
frá því að hestur birtist í dyragætt
öðrum megin og hætt er hann kemur
að dýragætt hinum megin. 100.000
krónur verða veittar fyrir sigur í
hvorri grein en fimm efstur hestar í
hvorri grein fá bikara í verðlaun.
Vm 1.000 manns komast i sæti í reið-
höllinni og verða sætaferðir frá bif-
reiðastöð íslands. Er keppni lýkur
verður dansleikur með hljómsveit-
inni Stjóminni.
Um nœstu helgi verður Reykjavík-
urmeistaramótið í hestaíþróttum og
íþróttamót hjá Andvara, Sleipni,
Geysi og Létti.
-EJ
Kirkjubæ, undan Garpi og Gefjuni frá Kirkju-
bæ, fékk 7,88 fyrir byggingu, 8,13 fyrir hæfl-
leika og 8,00 í aðaleinkunn. -EJ
Glaður frá Hólabaki.
Vonbrigði
hjá Dönum
Danir héldu kynbótasýningu á
Hedeland fyrir viku. Sýndir voru 14
stóðhestar og 22 hryssur. Danir
hljóta að vera vonsviknir með út-
komuna því einungis eitt þessara
hrossa komst yfir 8,00 múrinn i að-
aleinkunn. Hæst dæmdu stóðhest-
arnir eru fæddir í Danmörku en
hæst dæmdu hryssumar á íslandi.
Fimm vetra stóðhesturinn Krist-
all frá Sagastöðum sló i gegn. Hann
er undan Glað frá Ytra-Skörðugili
og Fífu frá Sagastöðum og fékk 8,13
fyrir byggingu, 8,17 fyrir hæfileika
og 8,15 í aðaleinkunn. Jóhann R.
Skúlason sýndi Kristal og efsta stóð-
hestinn í 6 vetra flokknum, Sigga
frá Katknös. Jóhann og sambýlis-
kona hans, Anne Sofie Nielsen,
sýndu ellefu hrossanna, Höskuldur
Þráinsson sýndi 5 hross, Guðmund-
ur Björgvinsson 4, danska stúlkan
Dorte Rassmusen 4 og aðrir færri,
þeirra á meðal Ómar Pétursson og
Þórður Jónsson.
Þrír þriggja vetra stóðhestar voru
byggingardæmdir og fengu lágar
einkunnir. Óðinn og Þór fengu
byggingareinkunnir í Qögurra vetra
flokknum og verður Þór geltur.
Kristail var efstur í 5 vetra flokkn-
um en næstur honum kom Spói frá
Tyvekroen með 7,84 í aðaleinkunn
og Seth frá Nöddegárden 7,80.
í sex vetra flokknum stóð efstur
Siggi frá Katknös með 7,97 í aðalein-
kunn. Gæfur frá Ebeltoft fékk 7,93,
Jarl frá Granbakken 7,84 og Efi frá
Varmahlíð 7,82.
Hæst dæmda fimm vetra hryssan
fékk 7,68, hæst dæmda sex vetra
hryssan Toppa frá Kjartansstöðum
fékk 7,88 og hæst dæmda hryssan í
elsta flokknum, Hind frá Varma-
hlíð, fékk 7,83.
-EJ
Þórdís Siguröardóttir, Gunnar Dungal, Eva Mandal og Atli Guðmundsson við
opnum sæðingarstöðvarinnar í Dal.
Opna sæðingarstöð
Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðar-
dóttir í Dal í Mosfellsbæ voru að von-
um ánægð með árangur Orms frá
Dallandi í kynbótasýningunni í Gunn-
arsholti en hann fékk 9,19 í aðalein-
kunn. Þau eru að fagna 20 ára afmæli
tamningastöðvarinnar í Dal um þess-
ar mundir. Atli Guðmundsson og Eva
Mandal hafa haft umsjón með stöð-
inni síðustu sex árin. í hófi sem var
haldið þar síðastliðinn laugardag var
einnig verið að kynna opnun sæð-
ingarstöðvar í Dal fyrir hryssur.
Stöðin vinnur í samstarfi við sæð-
ingarstöðina í Gunnarsholti sem hef-
ur verið að taka sæði úr mörgum af
þekktustu stóðhestum landsins í vor.
Hægt vei'ður að fá sæði úr Hrynj-
anda frá Hrepphólum, Gusti frá Hóli,
Tývari frá Kjartansstöðum, Huga frá
Hafsteinsstöðum, Otri frá Sauðár-
króki og Ljósvaka frá Akureyri og
hugsanlega fleiri hestum.
Tekið er á móti hryssum og þær af-
hentar eftir sæðingar alla daga vik-
unnar frá 10. maí til 18. júní.
Sæðingarstöðvarnar verða fleiri,
svo sem í Dýraspítalanum á Stuðlum
við Selfoss og svo í Gunnarsholti.
Tekið er við pöntunum í síma 487
5319 í Gunnarsholti frá klukkan 13.00
til 17.00. -EJ
Halldór Ásgrímsson
d Vesturlandi
3. og4. maí
FRAMSOKNARFLOKKURINN
www. framsokn. is
Ný f ramsókn
til nýrrar aldar