Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Page 11
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999 «3 Sport Mika Hakkinen situr vonsvikinn á bifreið sinni eftir að hafa ekið á vegg og fallið úr keppni. Urstitin 1. Michael Schumacher, Ferrari 2. David Coulthard, McLaren 3. Rubens Barrichello, Stewart 4. Damon Hill, Jordan 5. Giancarlo Fisichella, Benetton 6. Jean Alesi, Sauber 7. Mika Salo, BAR 8. Luca Badier, Minardi 9. Marc Gene, Minardi 10. Johnny Herbert, Stewart Staðan hjá ökumönnum: Michael Schumacher............16 Eddie Irvine .................12 Mika Hakkinen.................10 Heins Harald Frentzen ........10 Ralf Schumacher................7 Rubens Barrichello.............6 David Coulthard................6 Giancarlo Fisichella ..........5 Staðan hjá liðunum: Ferrari .................... 28* McLaren ......................16 Jordan........................13 Williams.......................7 Stewart........................6 Michael Schumacher sigraði fyrir lið sitt á Imola-kappakstursbraut- inni í gær við geysilegan fögnuð 100 þúsund áhorfenda. Með frábærri keppnisáætlun og grimmum akstri gerði Þjóðverjinn það sem til þurfti og er kominn með 16 stig og forystu í stigakeppni ökumanna eftir að Mika Hakkinen, sem ræsti, hafði á fremsta rásstað ætlað sér um of og ók út af eftir að hafa leitt keppnina fyrstu 16 hringina. Fyrsti sigur Ferrari á Imola í 16 ár Félagi hans, David Coulthard, háði harða báráttu við Schumacher en varð að sætta sig viö annað sæt- ið. Rubens Barrichello kom svo þriðji á undan Hill á Jordan, Fisichella á Benetton og Jean Alesi á Sauber. Ferrari-keppnisliðið hefur ekki unnið á Imola síðustu 16 árin og er jafnvel komin vendipunktur í gengi liðsins sem var dapurt framan af ári. „Að sigra hér eftir svo langan tíma fyrir framan ítalska áhorfend- ur gerir þennan sigur mjög sérstak- an,“ sagði Schumacher eftir að hafa bætt 34. sigri sínum í safniö. Schumacher þakkaði liði sínu sérstaklega fyrir mikla vinnu und- anfarið sem hefur verið að reyna að minnka bil milli þeirra og McLaren Mercedes Benz sem hefur haft yflr- burðahraða það sem af er keppnis- tímabilinu. „Við vissum að við urðum að snúa við þróuninni og við gerðum það.“ McLaren hefur þó enn ein- hverja yfirburði yfir Ferrari og var það greinilegt á akstri heimsmeist- arans Mika Hákkinens á meðan hann var inn í keppninni því hann ók á mun meiri hraða en allir aðrir í brautinni og var kominn með um- talsverða forystu og var greinilega með keppnina í hendi sér. En hann var of ákafur og hreinlega ofgerði í akstri sínum og gerði afdifarík mis- tök, ók á vegg framan við viðgerðar- svæðið eftir að hafa misst bílinn út af brautinni. Klárlega mín mistök „Oftast viljum við ökumenn ekki viðurkenna mistök okkar en þetta voru klárlega mín mistök," sagði Hakkinen. „Ég verð að reyna að gleyma þessu, Monaco er næst og við sjáum til hvað gerist þar.“ Eftir að Hákkinen hafði fallið út var Coulthard kominn í forystu en með Schumacher á hælunum og sí- fellt að tæta upp forskot Skotans. Það varð minnst 2,5 sek. þegar Schumacher fór inn á viðgerðar- svæði á 31. hring. Coulthard tók svo eina hlé sitt fimm hringjum seinna, um það leyti sem Schumacher lenti í mikilli umferð á brautinni. En hlé McLaren-liðsins var of langt og Coulthard missti forystu sína í hendur Schumachers sem hafð séð við umferðinni sem keppnisáætlun McLaren-liðsins hafði ætlað honum. Áætlun Ferrari-manna hafði tek- ist, að koma Schumacher i fremstu stöðu, og varð hann eftir það að vinna inn tíma fyrir seinna stoppið sitt. Þegar hann hafði náð 20 sek. forystu á 45. hring smellti hann sér inn á viðgerðarsvæðið í örstutt hlé (4,1 sek.) og komst út á braut og eixi í forystu. Hann hélt hæíilegu bili milli sín og Coulthards til loka keppninnar þar sem hann gladdi hjörtu ítala sem fögnuðu ákaft sigri síns manns. -ÓSG 4t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.