Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
Viðskipti_______________________________________________________________________________________x>v
Þetta helst: . .„Viðskipti á Verðbréfaþingi 451 m.kr. ... Úrvalsvísitala Aðallista lækkar lítillega
...Ávöxtunarkrafa húsbréf í 4,40 ... Hlutabréf Í5 hækka um 5,3% ... Skipulagsbreytingar hjá
Flugleiðum, félaginu skipt upp í sex afkomueiningar ... Dollarinn styrkist gagnvart jeni ...
Viðhorfskönnun DV um íslensk fyrirtæki
Eimskip nýtur
mests trausts
- Flugleiðir fylgja fast á eftir
Eimskip nýtur mests trausts is-
lenskra fyrirtækja samkvæmt nýrri
könnun DV á viðhorfi fólks til ís-
lenskra fyrirtækja. Spurt var: Til
hvaða íslensks fyrirtækis berð þú
mest traust? Úrtakiö var 600 manns
og var svarhlutfall 65%. Viðhorf fólks
var greint eftir kyni og talsverður
munur var á við-
horfi kynjana. Konur
voru mun óákveðn-
ari og var svarhlut-
fall þeirra aðeins
59% á móti 71% hjá
körlum. Alls fengu
96 fyrirtæki atkvæði
í könnuninni. Að-
eins 16 fyrirtæki
fengu fímm eða fleiri
atkvæði og 50 fyrir-
tæki aðeins eitt at-
kvæði.
Það kemur
kannski fáum á
óvart að Eimskip
trónar á toppi list-
ans. Eimskip hefur
um áratugaskeið ver-
ið eitt stærsta og öfl-
ugasta fyrirtækið á
íslenskum markaði
og hluthafar í fyrir-
tækinu eru mjög
margir. Jákvætt við-
horf í garð Eimskips
er engin nýlunda.
Fólk tengir Eim-
skipafélag íslands
við stöðugleika, bæði
i þjónustu og af-
komu. Hagnaður og vöxtur félagsins
hefur verið stöðugur undanfarin ár og
það kann fólk að meta. Fast á hæla
Eimskips koma Flugleiðir. Flugleiðir
eru sennilega það fyrirtæki sem flest-
ir hafa átt viðskipti við og hlýhug í
garð félagsins má kannski rekja til
þess. Einnig er félagið mikið í fréttum
og því eðlilegt að það nafn komi fyrst
upp í huga fólks. Afkoma félagsins er
sígilt fréttaefni og félagið hefur verið
iðið við að endumýja flugflota sinn og
því mikið í fréttum. Það eru sennilega
fá fyrirtæki sem hafa haft jafnafger-
andi árhif á venjulega neytendur á
síðari árum og Bónus. Það kemur því
ekki á óvart að Bónus skuli komast of-
arlega á listann en það er jafnframt
ljóst hverjir gera innkaupin á heimil-
um. Helmingi fleiri konur en karlar
nefndu Bónus og þær
kunna greinilega að meta
lágt vöruverð.
Traust á tæknifyrir-
tækjum
Það er óhætt að segja
að íslensk erfðagreining
komi sterk inn á listann.
Fá fyrirtæki hafa verið
eins mikið í fréttum síð-
astliðið ár og hefur um-
ræðan gjaman verið nei-
kvæð. Það hljóta því að
vera jákvæð skilaboð að
fólk skuh hafa trú á ís-
lenskum rannsóknum og
tækniiðnaði. OZ hf. fékk
einnig ágæta útkomu. Um
50 fyrirtæki fengu aðeins
eitt atkvæði. Það er sterk
vísbending um að margir
hafí mikla trú á sínu fyr-
irtæki. Kaupfélögin eru
sívinsæl og einnig er Ijóst
er að margir nefna við-
skiptabankann sinn og
Alli ríki á Eskifirði fékk
eitt atvæði.
Munur á körlum og
konum
Talsverður munur er á viðhorfi
karla og kvenna. í fyrsta lagi taka
mun fleiri karlar afstöðu og þeir
nefna öðravísi fyrirtæki. Eimskip
hafði mikla yfirburði hjá körlum en
Flugleiðir og Bónus skipuðu efstu
sætin hjá konum. Karlar nefna frekar
stórfyrirtæki og banka en konur eru
hrifnari af tæknifyrirtækjum og mat-
vömverslunum.
Annað sem er áberandi, er að flest
fyrirtækin sem ná sætum á listanum
era almenningshlutafélög og er það
vísbending um aukinn áhuga fólks á
atvinnulífi og jafnvel hlutabréfúm.
Þegar á heildina er litið má segja að
fyrirtæki í öllum atvinnugreinum fái
atkvæði í könnuninni og öllum lands-
hluhun og era það jákvæð tíðindi fyr-
ir íslenskt atvinnulíf. -BMG
Áður aðeins í tískublöðum
'Pa/,„;/<■
Valmiki
..U, f Leður St. 36—41
sfe,\e9om\viw Litur;Svart
Uerð 7.700 ,
Muxart
Valmiki
LeðurSt.36-4^
Litur: Hvitt
Verð 6.800
Valmiki
fLeðurSt. 36-41
Litur: Svart/Breiðir I
IVerð 7.700
VéniM
Sergio Rossi
/teður St. 36-41^
L'tur: Svart
Verð 9.700
Kringlunni
sími 553 2888
(við hliðina ó Landssímanum)
Traustvekjandi
íslensk fyrirtæki
Fyrirtæki Aiis
Ðmskip 59
FWeife 45
Bónus 24
islensk erfðagreining 24
fslandsbanki 20
Landsbankmn 19
Biáiaðariiankirai 10
FBA 10
Marel 10
Landssáninn 7
Hagkaup 6
02 6
Rikisútvarpið 6
Samheiji 6
AHanta 5
SlF 5
Baugur 3
Fjarðarkaup 3
HáskóG fslands 3
Hraðfrystihús EskiQarðar 3
Isal 3
(slenskir aðaherirtakar 3
Kaupfeiag Borgfirðinga 3
Landsnkjun 3
Hýherp 3
Opinkerfi 3
SPRON 3
SS 3
3
viðskipta-
iwolar
5% verðbólgu spáö
Kaupþing hf. hefur hirt nýja verð-
bólguspá. Þeir spá því að verðbólga
I apríl mælist á biúnu 0,35-0,4% en
það samsvarar 4,3-5% verðbólgu á
ári. Helstu forsendur þeirra era að
húsnæði komi til með að hækka
áfram og jafnframt reikna þeir með
því að matvara hækki um 1%.
Landsbankinn
ósammála
í nýrri ársfjórðungsskýrslu
Landsbankans kemur fram að
minnkandi líkur séu á aukinni
verðbólgu. Þeir benda á að sterk
staða krónunnar, lækkandi hrá-
vöraverð á síðasta ári og betri að-
lögun vinnumarkaðins að aðstæð-
um stuðli-að áframhaldandi lágri
verðhólgu.
Hlutabréf hækka í Aslu
Hlutabréfavísitölur hækkuðu
víða í Asíu í gær eftir að að Dow Jo-
nes vísitalan setti enn eitt metið.
Hlutabréf í Hong Kong hækkuðu
um 1,7%, í Indónesíu nam hækkun-
in 5% og í Tælandi hækkuðu bréf
um 8,6%. Hins vegar era viðbrögð
Japan óljós því kauphallir þar vora
lokaðar í gær vegna frídags þar.
kauphöllinni í Tokyo vegna al-
menns frídagar í Japan.
Mikil aukning
bifreiðaskráninga
Á síðasta ári jukust nýskráningar
á bílum um 27,1%. Á fyrstu þrem
mánuðum þessa
árs hefur ný-
skráningum
fiölgað um, 45,5%
miðað við sama
tímabil í fyrra.
Þessi þróun er
samfara mikilli
kaupmáttaraukn-
ingu en mikil endumýjunarþörf hef-
ur verið á bílamarkaði. Betri lána-
möguleikar skýra hluta af þessari
þróun. Bílaflotinn á íslandi hefur
elst jafnt og þétt og því er þessi end-
umýjun kærkomin.
Útlánsvextir hafa hækkað
Útlánsvextir banka hafa hækkað
nokkuð frá því í febrúar á þessu ári.
Vextir óverðtryggðra skuldabréfa-
lána hafa hækkað úr 12,3% í febrúar
í 12,9% apríl. Vextir vísitölubund-
inna útlána hafa hækkað úr 8,2% í
8,5% á sama tíma. Þessa hækkum
má aö mestu rekja til vextahækkun-
ar Seðlabankans og lausafjárkvaðar-
innar á lánastofnanir.
framkvæmd
talaðu þá við Glitni,
því Glitni getur þú treyst
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis.
Með Kjörleiðum Glitnis gemr þú fjárfest í þeim
tækjum sem henta þinni starfsemi.
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00.
Myndsenair 560 88 10.
Heimasíða: http://www.glitnir.is
Ráðgjafar GLitnis eru sérfróðir um
hvemig kostir
mismunandi fjármögnunarleiða
nýtast þér best.
Hafðu samband eða komdu
við hjá okkur á Kirkjusandi
og kynntu þér málið.