Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Qupperneq 8
8
MIÐVTKUDAGUR 5. MAÍ 1999
I
VW Passat 1,8 Comfortline
(Verð: 1.750.000.)
árg. 1997, ekinn 40 þús. km. Litur: rauður, 5 gíra,
vökvastýri, ABS bremsukerfi, rafm. í rúðum, fjarstýrðar
samlæsingar, plussinnrétting, 2 x air bag o.fl..
Afch. fleiri góð tílboó á heimasíðu okkar. draumabillinn.is
/isa og Euro raögresóslur
SUMAR
■rjLii
; ;J í ;111 i
á notuðum bílum
með alvöru afslætti
Opið virka daga kl. 9-18 og laugar&aga k!. 12.-17
BÍLAHÚSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2 -112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605 • Tölvupóstur gusi@ih.is
Útlönd
Milosevic Júgóslavíuforseti:
Samþykkir
eftirlitssveitir
Slobodan Milosevic Júgóslavíu-
forseti getur fallist á léttvopnaðar
eftirlitssveitir Sameinuðu þjóöanna
í Kosovo. Breska blaðið Financial
Times greindi frá þessu í morgun.
Segir blaðið heimildarmenn sína
vera i nánum tengslum við stjóm-
ina í Belgrad.
Samkvæmt frétt blaðsins vill
Milosevic að Rússar verði fjölmenn-
ir í eftirlitssveitunum. Milosevic
samþykkir einnig eftirlitssveitir frá
þeim NATO-löndum sem ekki taka
þátt í loftárásunum.
Ef marka má frásögn heimildar-
manna Financial Times er um
mikla stefhubreytingu að ræða hjá
Júgóslavíuforseta. Hingað til hefur
hann ekki ljáð máls á dvöl erlendra
sveita í Júgóslavíu. NATO-sveitir
hafa alls ekki komið til greina.
Ekki þykir víst að NATO sætti
sig við tillögur Milosevics. Fráleitt
er talið að NATO samþykki að
Milosevic ákveði samsetningu eftir-
litssveitanna.
Financial Times skrifar einnig að
Milosevic óttist uppreisn innan
Júgóslavíuhers, sem samkvæmt
ónafngreindum heimildarmönnum,
vill ekki láta undan kröfum NATO
þrátt fyrir loftárásirnar.
Athygli vakti í gær að Milosevic
fullyrti að Frelsisher Albana hefði
verið upprættur. Forsetinn gaf út
svipaða yfirlýsingu í fyrra áður en
hann samþykkti vopnahlé.
Árásir NATO halda áfram. í
morgun var gerð árás á skotmörk
nálægt Uzice sem er 80 km fyrir
sunnan Belgrad. Tveir bandarískir
flugmenn létu lífið í nótt er Apache-
þyrla þeirra hrapaði á æfingaflugi í
Álbaníu. Að sögn bandaríska vam-
armálaráðuneytisins bendir ekkert
til að þyrlan haíi verið skotin niður.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom
í morgun til Brussel til viðræðna við
Javier Solana, framkvæmdastjóra
NATO. Síðar I dag mun Bandaríkja-
forseti heimsækja bandarískar her-
sveitir t Þýskalandi.
Flóttamenn frá Kosovo hvílast í búöum við landamæri Júgóslavíu og
Makedóníu. Símamynd Reuter
Stuttar fréttir i>v
Olofsson dæmdur
Sænski eiturlyijasmyglarinn
Clark Olofsson var í gær fundinn
sekur fyrir að hafa smyglað 50
kílóum af amfetamíni og a.m.k. 80
kílóum af hassi til Danmerkur.
Refsing Olofssons hefur enn ekki
verið ákveðin en líkur benda til
þess að hann fái að minnsta kosti
tíu ára fangelsi.
Fær vopnaðan vörö
Elísabet drottning hefur skipað
svo fyrir að Sophy Rhys-Jones, til-
vonandi eigin-
kona Játvarðs
prins, verði eft-
irleiðis í fylgd
vopnaðs örygg-
isvarðar.
Ástæða ákvörð-
unar drottning-
ar er talin vera
morðið á fréttakonunni Jill Dando
í síðustu viku.
Svíar vilja ekki framsai
Yfirsaksóknari Svíþjóðar sagð-
ist í gær ekki myndu stofna til
rannsóknar á því hvort framselja
bæri Pinochet til Svíþjóðar, þrátt
fyrir að chileskir útlagar, búsettir
í landinu, hefðu krafist þess.
Reagan í fangelsi
Cámeron Reagan, 20 ára sonar-
sonur Ronalds Reagans, fyrrum
Bandaríkjaforseta, var í gær
dæmdur í sex mánaða fangelsi
fyrir innbrot í bila.
Greenpeace til Noregs
Grænfriðungar stefna nú hrað-
byri í norðurhöf til þess að leita
uppi hvalveiðimenn. Norska sjáv-
arútvegsráðuneytið segir 36 hval-
veiðiskip að veiðum en mikil leynd
hvílir yfir staðsetningu skipanna.
Ríki verði stofnaö
Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, kom fram í sjónvarpi í
gærkvöld þar
sem hann ásak-
aði ísraela um
að hindra friðar-
ferlið í Miðaust-
urlöndum. ígær
var dagurinn
sem Palestínu-
menn ætluðu að stofna sjálfstætt
ríki, samkvæmt Óslóarsamningn-
um. Arafat bað menn minnast þess
að héðan af yrði ekki aftur snúið
og stofnað yrði Palestínuríki þrátt
fyrir að PLO hefði ákveðið að
fresta því fram yfir kosningar í
ísrael, sem verða 17. maí.
Byssurnar eyöilagöar
Hun Sen, forseti Kambódíu, tók
í gær þátt í eyðileggingu 4 þúsund
ólöglegra skotvopna sem yfirvöld
hafa gert upptæk aö undanförnu.
Kona rænir presti
Perúsk kona rændi kaþólskum
presti um helgina í þeim tilgangi
að hindra að hann flytti í annað
hérað. Eftir 48 stunda gislingu
tókust sættir og presturinn ákvað
að fara hvergi á næstunni.
Kraftur,
þekking o g
frumkvæði fyrir
Rey knesinga
Siv FriSleifsdóttir
Hjdlmar Arnason
Páll Magnússon
Kosningaskrifstofa
Bæjarhrauni 26
Hafnarfirði,
s.565-4790
565-5740
565-5742
Tölvupóstur:
reykjanes@xb.is