Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 11 DV Fréttir Tveggja daga ferö að ganga á kjörstaö - segir Aðalsteinn Valdimarsson, bóndi á Strandseljum við Ísaíjarðardjúp DV, Vestfjörðum: „Það stendur ekki mikið út af hjá mönnum hér með hey í vor. Vorin eru yfirleitt köld héma hjá okkur. Það er frek- ar happdrættisvinningur að fá hlý og góð vor eins og þau sem eldra fólkið talar um að hafi verið héma. Það er búin að vera nokkur regla að árin sem enda á fimm og níu era ekki góð. Það muna til dæmis flestir eftir vorinu 1995. Ef vorið verður sæmilegt og gróður á eðlilegum tíma eig- um við að sleppa við heyskort," segir Aðalsteinn Valdi- marsson, bóndi á Strandseljum. Aðalsteinn býr ásamt aldraðri móður sinni á bænum Strandseljum við ísafjarðardjúp og hafa þau um 200 fjár auk þess að vera með nokkr- ar mjólkandi kýr. íbúar þessarar harðbýlu sveitar við Djúpið óttast mjög um heyfeng sinn og að vor- koman muni dragast og jafhvel verða til þess að enn fækki þeim % \ Isaflöröur / Vigur °eur Strandsel / / Reykjanes DV bæjum sem haldast í byggð. Enda hefur verið mikill fólksflótti frá þessari áður blómlegu byggð. „Mannlíf við Djúp einkennist nú orðið af fámenni. Það eru ekki nema ein og tvær manneskjur á bæ. Þrír er bara fjölmenni. Það vantar fólk sem vili taka við búunum héma, en þetta þykir sennilega nokkuð einangrað. Dægrastytting felst mest í vinnu og bóklestri, auk þess sem maður íondrar dá- lítið við vísnagerð," segir Að- alsteinn. En er ekki líflegra yfir þessu núna á kosningavori? Koma frambjóðendur ekki við á yfirreið sinni um kjör- dæmið? „Það hefur enginn fram- bjóðandi látið sjá sig enn sem komið er. Enda veit ég ekki hvort ég kemst á kjör- stað. Það er langur vegur að ganga inn i Reykjanes, senni- lega er tveggja daga ferð fyr- ir mig að ganga á kjörstað. Ég tel það vera mannrétt- indabrot að hafa kjörstaði svo langt í burtu að maður komist það ekki fótgangandi, fram og tii baka á ein- um og sama deginum," segir hann og kastar að lokum fram eftirfar- andi stöku til blaðamanns: Vítt um landsins veg og stig, vaskir rápa. Og bændur fara að brúka sig, við blaðasnápa. -GS ' Atvinna handa öllum FRAMSOKNARFLOKKURINN Vertu með á miðjunni því að ef ég get hlaupið km á 3.01 get ég það fjandakornið á 2.59. Air Max karla. Air Max kvenna þrískiptur TL loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sóli, stöðugleikaplata undir il,léttur skór með hámarksdempun, frábær aðlögun að fætinum, leiðbeinandi smásöluverð 14.990 kr. r International Triax Air Converge Triax kvenna MX + loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sóli, stöðugleikaplata undir sóla.iryög góð dempim og stöðugleiki, leiðbeinandi smásöluverð 9.990 kr. Air Hollin karla Air Rollin kvenn loftpúði í hæl, BRS 1000 ytri sóh, mjúkur Phylon millisóh, léttur alhliða æfingaskór, leiðbeinandi smáaöluverð 4.990 kr. TL - air - 82% af miðsóla er loft. MX - Loftpúði í hæl og tábergi. Regrind - Ytri sóli úr sterku endurunnu gúmmíi. loftpúði í hæl, nyúkur Phylon miliisóh, stööugleikaplata undir sóla,léttur alhUöa æfingaskór, leiðbeinandi smásöluverö S.9Ð0 kr. BRS 1000 sérstyTktur ytri sóU með mjög góðu gripi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.