Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. MAI 1999 Viðskipti Þetta helst: .Viðskipti á Verðbréfaþingi 1.050 m.kr. ... Úrvalsvísitala Aðallista hækkar um1f4% ...Samherji hækkar um 1% ... Hagnaður Opinna kerfa 66,6 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi ... Tap Kælismiðjunnar Frost 12 m.kr. á liðnu ári ... Verð hlutabréfa í hærra lagi að mati FBA ... Viðhorfskönnun DV til íslenskra fyrirtækja: Flugleiðir og Baugur njota minnst traust - óvenjumargir óákveðnir Flugleiðir og Baugur eru þau fyrir- tæki á íslandi sem njóta minnsts trausts samkvæmt nýrri könnun DV. Spurt var: Hvaða íslensks fyrirtækis berð þú minnst traust til? Það sem kemur einna mest á óvart er hve margir gátu ekki nefnt neitt fyrir- tæki. Alls voru 600 manns spurðir en 384, eða 64% aðspurðra, voru óá- kveðnir eða gátu ekki nefnt neitt fyr- irtæki. Konur voru töluvert óákveðn- ari en karlar - tæp 70% þeirra voru óákveðin eða svöruðu ekki en 59% karla svöruðu ekki. Af þeim sem svöruðu báru flestir minnst traust til Flugleiða, en Baugur er skammt und- an. Athygli vekur að ef Bónus, Hag- kaup og Nýkaup eru tekin með Baugi þá skýst félagið á toppinn og nýtur minnsts traust allra. Það kom fram í DV í gær að íslensk erfðagreining nyti mikils trausts og að fólk hefði trú á íslenskum rannsóknum og tækni. Á sama hátt kemur ekki á óvart að fyrirtækið nær þriðja sæti yfir ótraustustu fyrir- tækin. Fyrirtækið hefur verið mjög mikið í frétt- um síðastliðið ár og ljóst er að margir eru vantrú- aðir á störf þess. Sammerkt með þeim fyrirtækjum sem þykja ótraust er að þau eru mikið í fréttum. Það sama á við þegar traust- ustu fyrirtækin eru skoðuð. Það kemur því ekki á óvart að það séu að miklu leyti sömu fyr- irtæki sem þykja traust og ótraust. Jákvæð eða neikvæð umræða Það virðist ekki skipta máli hvort umræða um fyrirtæki er neikvæð eða jákvæð. Ef umræða er um fyrir- tæki á annað borð kemst það yfirleitt á lista yfir traust og ótraust fyrir- tæki. Umræða um Flug- leiðir gengur jafnan út á afkomutölur en umræða um einokunaraðstöðu þeirra skýtur upp kollin- um öðru hvoru. Á sama hátt hefur uppbygging Baugs verið hröð og markviss og vel staðið að málum þar. Nýafstað- ið hlutafjárútboð gekk vonum framar og ljóst að fjárfestar hafa mikla trú á fyrirtækinum. Samt kemur fyrirtækið illa út. Umræða um ís- lenska erfðagreiningu hefúr verið með afbrigðum neikvæð en samt kemst fyrirtækið ofarlega á báða listana. Það má því álykta sem svo að fólki detti fyrst í hug þau fyr- irtæki sem mest séu í fréttum. Margt annað skemmtilegt kemur fram í könnuninni. Friður 2000 virð- ist vera óvinsælt, en bara hjá konum Ótrúverðugustu fyrirtækin Fyrirtæki Ails Fiugleiðir 25 Baugur 18 fslensk erfðagreining U Erniskip 9 Hagkaup 9 Landssiminn 8 Nýkaup 7 Bónus 6 Fríður 2000 6 (slandsbanki 6 íslenskar sjávarafurðir 5 KEA 5 Ótrúverðugustu fyrirtækin þegar fyrirtæki innan Baugs eru sameinuð Fyrírtæki Alls Baugur 40 Flugteiðir 25 íslensk erfðagreining U Eimskip 9 Landssíminn 8 Friður 2000 6 Islandsbanki 6 Landsbankirm 6 vmnsiustoom 6 íslandspóstur 5 fsienskar sjávarafurðir 5 KEA 5 FTral því enginn karl minntist á það. Enn fremur eru nokkur opinber fyrirtæki óvinsæl. Ríkisútvarpið, Tollstjórar, Tryggingastofnun og ÁTVR fá öll nokkur atkvæði og kemur það kannski ekki á óvart. -BMG Vægi atvinnugreina á hlutabréfamarkaði Upplýsingatækni 4% Bygginga- og Lyf3ag/®inar verktakastarfsemi 2% Þjónusta og verslun 4% Fjárfestingarfélög 2% Sjávarútvegur 32% Fjármál og tryggingar 29% Iðnaöur og framleiösla 6% Samgöngur 14% Olíudreifing 6% Fjármálamarkaöurinn: Fjölbreytni eykst Með tilkomu nýrra fyrirtækja hefur fjölbreytni aukist mikið í fjárfesting- arkostum á hlutabréfamarkaði. Fyrir fáum árum voru sjávarútvegsfyrir- tæki í miklum meirihluta á verðbréfa- þinginu og fjárfestar áttu ekki kost á að dreifa áhættu sinni með skynsam- legum hætti. Mikil fylgni var milli af- komu fyrirtækja á hlutabréfamarkaði en með innkomu fleiri íjármálastofn- ana og verslunarkeðja hefur fjöl- breytni og möguleikar á áhættudreif- ingu aukist mjög mikið. í dag eru 58 félög á Aðallista og Vaxtarlista Verðbréfaþings íslands. AÐALFUNDUR Fimmtudaginn 20. maí 1999, kl. 17:15 í húsnæði íslandsbanka við Kirkjusand, 5. hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum sjóðsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál. Þær breytingar sem lagt er til að verði gerðar á samþykktum sjóðsins miða að því að aðlaga samþykktir sjóðsins lífeyrissjóðalögunum frá 1997 og reglugerðum sem hafa verið settar í kjölfar laganna. Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og geta sjóðfélagar nálgast þær þar eða fengið þær sendar í pósti. Einnig er hægt að nálgast samþykktirnar á vefnum á slóðinni www.vib.is undir lífeyrismál. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á aðalfundinn! Boðið verður upp á kaffiveitingar. LÍFEYRIS- SJÓÐUR arkitekta og tæknifræðinga Kirkjusandur, 155 Reykjavík Sími: 588-9170 Myndsendir: 560-8910. Rekstraraðili: VfB Sími: 560 8900 Netfang: vib@vib.is Veffang: www.vib.is Þau 20 stærstu, eða 35% af heildar- fjöldanum, eru með 77% af heildar- markaðsvirði markaðarins. Fyrir- tækjum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár og allt bendir til þess að sú þróun haldi áfram. Velta hefur að sama skapi aukist mjög og var velta fyrstu fjóra mánuði þessa árs um 11 milljarðar samanborið við 2,5 milljarða á síðasta ári. Hins vegar hef- ur hægt á veltu að undanfómu eftir að flestir sérfræðingar hafa spáð því að hlutabréfaverð standi í stað eða lækki jafnvel. Hins vegar telja margir að hér sé um eðlilega aðlögun mark- aðarins að ræða því verð hafi víða verið of hátt skráð. -BMG Gengið áfram stöðugt Gengi íslensku krónunnar hefur verið stöðugt undanfarið og fátt hendir til að breyting verði þar á. Það er mat sérfræðinga FBA, að minnsta kosti næstu tvo tU þrjá mánuðina. Vaxta- munur miUi krónunnar og þeirra mynta sem mynda gengisvísitölu is- lensku krónunnar annars vegar og hertar aðgerðir Seðlabanka íslands og aukin sókn hans í erlent fjármagn vega hvort annað upp með þeim afleiðing- um að krónan helst stöðug. Markmið Seðlabankans eru skUgreind í lögum og eitt af þeim er að halda gengi krón- unnar innan ákveðinna vikmarka. Gengi krónunnar hefur sveUlast mikið tU frá því að Reibor-vextir voru fyrst reiknaðir og nú velta menn fyrir sér hvort stefnubreytingar sé að vænta hjá Seðlabankanum. Margir spá því að Seðlabankanum takist ekki að halda genginu innan skUgreindra marka. Al- mennt hafa seðlabankar víða um heim faUið frá þeirri stefnu að styðja við gengi og nú velta menn fyrir sér hvort Seðlabanki íslands ætli að faUa frá þeirri stefnu sinni. Hins vegar benda sérfræðingar FBA á að ekki séu mikl- ar likur á stefnubreytingum hjá Seðla- banka íslands. -BMG viðskipta- molar WTO höfuðlaus Heimsviðskiptastofhunin WTO hefur verið sem höfuðlaus her undanfarið vegna þess að aðildar- ríki stofnunarinnar hafa ekki komið sér saman um nýjan for- stjóra. Það eru einkum lönd Vest- ur-Evrópu sem deila við Asíulönd og virðist deUan vera í hnút og engir sáttafundir eru komnir á dagskrá. Gengi deCode hækkar Hlutabréf í deCode hafa hækkað um meira en 10% að undanfomu. Bréfln seljast nú á bUinu 22 tU 23 doUara. Þetta gerist eftir að ís- lenskri erfðagreiningu var form- lega veitt leyfi tU reksturs mið- lægs gagnagrunns á heUbrigðis- sviði. Hlutafé Uppsprettu orðið 973 milljónir Innborgað hlutafé Uppsprettu Icelandic Capital Venture S.A., sem var stofnað 25. september 1998, er orðið 973 mUljónir. Fyrsti aðalfundur félagsins, sem er áhættufjárfestingarfélag í umsjá Kaupþings hf. og Kaupthing Lux- embourg S.A., var haldinn á fostu- dag. Þetta kemur fram á við- skiptavef Vísis.is. Tap hjá Oz Velta Oz.com á fyrsta fjórðungi þessa árs var 111,3 mUljónir en velta aUt síðasta ár var 294 miUj- ónir. Nokkurt tap varð á rekstrinum fyrstu mánuðina eða 7,6 mUljónir. Forsvarsmenn Oz segjast ánægðir með afkomuna og segja hana vera í samræmi við væntingar. Hagnaðar er ekki að vænta fyrr en á næsta ári. Dollari hækkar gagnvart jeni Gengi doUarans hækkaði í gær og í fyrradag gangvart jeni. Það má rekja tU skorts á úrræðum jap- anskra ráðamanna tU að rétta úr þeirri efnahagskreppu sem verið hefúr undanfarin ár. DoUari hefur hækkað um 6% gagnvart jeninu frá áramótum. Nú er gert ráð fyr- ir að sölupantanir japanskra út- flytjenda muni halda aftur af að jenið verði veikara á næstu dög- um. Frekari vaxtalækkanir í Bretlandi? Englandsbanki er að velta fyrir sér hvort hann eigi að lækka vexti nú, í sjöunda skipti á átta mánuð- um. Vextir eru nú 5,25% og er mikUl þrýstingur frá atvinnulífi í Bretlandi að lækka vexti enn frek- ar. Þær lækkanir sem verið hafa undanfama mánuði hafa borið nokkum árangur og sýnir at- vinnulíf í Bretlandi þess skýr merki. Deutsche Bank eykurhagnað Deutsche Bank í Þýskalandi jók hagnað sinn um 36,5% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Forsvars- menn bankans em ánægðir og telja horfur í Evrópu betri nú en oft áður. Vaxtalækkanir í Kanada Seðlabanki Kanada lækkaði í gær vexti. Markmið vaxtalækkun- arinnar er að örva hagkerfið og efla fjárfestingu, en merki era á lofti um að hægt hafi á hagkerf- inu. Talsmenn bankans telja að lækkunin muni ekki örva verð- bólgu og að hún verði á bUinu 1-3%. Hagvöxtur í Kanada var 0,1% minni fyrstu þrjá mánuði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.