Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 Spurningin Lesendur Hverjir eru helstu kostir þess að búa á íslandi? Þórður Ragnarsson verslunar- stjóri: Hreint loft og falleg náttúra. Guðmundur Símonarson sölu- maður: Skemmtilegt fólk og góöir ljósmyndarar á DV. Elísabet Eyjólfsdóttir nemi: Hreint vatn og sætir strákar. Elísabet Sveinsdóttir nemi: Hreint loft og sætir strákar. Bárður Ingi Helgason nemi: Kringlan er héma. Sakhæfar stjórn- valdsaðgerðir? Svartfugl t.d. innbyrðir um 60.000 tonn af þorski á seiðagöngutímanum sé miðað við 8 ára fisk, segir Garðar m.a. í bréfinu. Garðar H. Björgvinsson skrifar: Nú er svo komið að hópur smá- bátaeigenda hefir tekið sig saman og ráðiö einn virtasta lögmann landsins til að reka mál gegn ríkinu vegna þess mikla vanda sem kvótakerfið í sjáv- arútvegi hefir valdið þeim. Hver stjómvaldsaðgerðin eftir aðra gegn náttúmvænum veiðum með króka á grannslóð hefir rekið aðra. Ekki er um að villast hver tilgangurinn er; að útrýma öllum smáútgerðarmönn- um, öllu einstaklingsframtaki við sjávarsíðuna. Allur smábátaflotinn er varla hálfdrættingur á við t.d. selinn. Ekkert er gert í því að nytja fugla- björgin kringum landið, en svart- fugl innbyrðir um 60.000 tonn af þorski á seiðagöngutímanum sé miðað við 8 ára fisk (hver fugl fyllir sig þrisvar á sólarhring af 8-10 mm seiðum) . Ekkert er gert af viti til þess að hefja hvalveiðar, en þær verða ekki hafnar öðruvísi en með samvinnu og vilja náttúraverndar- samtaka þjóðanna. Sé hægt að tala um syndsamlegt athæfi, þá er það synd hvemig búið er aö gera hverja atlöguna annarri verri gegn ein- yrkjum kringum landið. Þúsundir einstaklinga á íslandi hafa orðið beint og óbeint fyrir fjár- hagslegu og andlegu tjóni, í nafni laga af hálfu þeirra stjómvalda er nú brosa og lofa bót og betrun eina ferð- ina enn. Haldi fram sem horfir mun tvennt gerast; fólksstraumur frá landinu eykst, en þeir sem sterkari era munu brjóta af sér okið og berj- ast með einhverjum hætti, jafnvel málaferlmn. Menn horfa ekki lengur á þá mismunun sem fylgir sölu og leigu á lifandi fiski úti á hafi. Það er sakhæft að að bjóða upp á 80% af matsverði nýrra báta eftir að hafa rýrt svo verksvið bátanna að ekki var hægt að lifa af notkun þeirra. Það er sakhæft að blekkja fólk, og bjóða 80% úrelding- arstyrk sem skattfrjáls- an og standa svo ekki við það. Það er sakhæft að ganga þannig frá kaupum varðandi slík- an gjörning að ekki fá- ist að endurgreiða og bakka út eftir að blekk- ingin var ljós. Dæmi: í greininni hafa menn farið milli hólfa, selt aflaviðmið- unarbát á 30-60 millj- óna virði, þótt viðkom- andi bátur sé ekki nema 3-8 milljóna króna virði og keypt sér nýja báta og komið þeim inn í dagakerfið og þannig stuðlað að fækkun veiðidaga. - Hér hefur verið drepið á lítið brot af allri mismununinni í smábátakerf- inu. Og senn hefjast ein mestu málaferli íslandssögunnar er standa munu næstu fjögur ár. Biskup og forsætisráðherra Albert Jensen skrifar: í „Yfirheyrslu“ á Stöð tvö sl. mið- vikudagskvöld 30. apríl sl. virtist gæta andúðar hjá háttvirtum for- sætisráðherra á því að biskup is- lands skuli lýsa yfir skilningi á ótta aldraðra og öryrkja ef óbreytt ástand verði, þ.e.a.s. að núverandi ríkisstjóm verði áfram við stjóm. Málsnjall ráðherrann getur sleppt að gera sér upp skilningsleysi, hann er nógu vel gefinn til að vita að biskup sér hvað núverandi stjóm- völd era fjarri réttlátri stjómun og láta sem þau sjái ekki þá þjóðfélags- hópa sem verst era settir. Biskup býr yfir mikilli mann- gæsku og óttast ekki reiði hvers konar oflátunga og biður um velferð fyrir alla. Væri háttvirtum forsætis- ráðherra nær að taka hann sér til fyrirmyndar en að streða við að vera allt í öllu og yfir allt hóifinn. Hann veit greinilega ekki hvað lítil- læti er. Þjóðin þarf að gefa forystumönn- um núverandi stjómar kost á end- urhæfmgu í mannréttindum og þá er víst að öðravísi verður hér um- horfs á næsta kjörtímabili. Hvað er fram undan? Snorri Bjarnason skrifar: Ef það sem nú er að gerast er upp- hafið að þriðju heimsstyrjöld- inni, sem senni- lega myndi þá verða sú síðasta, getur enginn sagt um hvað gæti gerst. Við vitum að heimurinn er í upplausn og maðurinn er búinn aö sýna það að hann ræður ekki við að gera upp þann stóra reikning sem nú liggur fyrir. Þá er aöeins einn eftir, það er sá sem öllu ræður og allan vanda getur leyst. Hvað okkur íslendinga varðar eram við í svo mikilli sérstöðu vegna legu landsins, sögu þjóðar- innar og óumdeilanlegs eignaréttar okkar á landinu. Okkar aðalsmerki er að við höfum engan her og höfum ekki útkljáð okkar mál gagnvart öðrum þjóðum með vopnum heldur skynsamlegum rökum og samning- um. Þess vegna eigum við ekki heima í neinu hemaðarbandalagi. Það er sorglegt að við skulum hafa verið dregin inn í að taka ákvörðun um að ráðast inn í Serbíu með þennan lofthemað sem hefur og á eftir að hafa hryllilegar afleiðingar. Nú nálgast alþingiskosningar og átta og hálfur mánuður til ársins 2000. ísland kemur mikið við sögu á aldamótahátíðinni. Þá er þúsund ára afmæli kristnitökunnar á ís- landi og Reykjavík verður útnefnd ein af menningarborgum Evrópu. Við verðum að taka okkur ærlegt tak ef við eigum að rísa undir því, svo margt eigum við ólært. Við unnum fullnaðarsigur í sjálf- stæðisbaráttunni 17. júní 1944 þegar við lýstum yfir stofnun lýðveldis á íslandi. Við sem voram stödd á Þingvöllum þann mikla rigningar- dag þegar hjörtu allra íslendinga slógu í takt, gleymum því aldrei. Síðan era liðin 55 ár og grun hef ég um einhver af núlifandi hjörtum ís- lendinga hafi misst úr slög og takt- urinn þvi brenglast. DV III tíðindi úr bönkunum Ragnar skrifar: Það eru ill tíðindi sem manni berast úr bönkunum, að þeir skuli allir vera í þann veginn að hætta að nota hinar ágætu banka- bækur og fara út í það sem þeir kalla „yfirlit“ og senda mönnum, óski þeir þess. Alla vega um ára- mót sagði einn bankamaðurinn aðspurður er ég kannaði hvort þetta væri yfirleitt rétt. SPRON hefur þegar tekið upp þetta nýja kerfi, enda mun ég ekki skipta við þá bankasamstæðu. Búnaðar- bankinn og Landsbankinn leyfa manni enn að nota bankabækum- ar. Ég vona að a.m.k. Landsbank- inn sjái aumur á viðskiptavinum sem hafa ekki notaö annað en bankabækur frá æskuárum. Það er of seint að rétta manni eitt- hvert „yfirlit" þegar og ef fólki þóknast. Ég vil sjá færslumar í bók eins og áður. Takk. Gagnagrunnur - endanlegur sigur K.Ó. skrifar: Ég sé ekki betur en andstæö- ingar gagnagrannins umdeilda geti lagt upp laupana i deilunum um þessa bráðnauðsynlegu fram- kvæmd Kára Stefánssonar. Hann er framsýnn vísindamaður og enginn samlandi hans hafði ein- urð í sér til þess að riða á vaðið. Nú dugar ekki öfund. Sannleikur- inn er sá að í framtíðinni mun verða spurt, t.d. í umsóknum, hvort viðkomandi sé í „grannin- um“. Sé hann ekki í granninum, þá vaknar samstundis einmitt tor- tryggni gagnvart hinum sama hver sé ástæðan fyrir því að geta þess sérstaklega að hann sé þar ekki. Sé merkt við, t.d. í starfsum- sókn, að viðkomandi sé í grannin- um, vekur það enga tortryggni og enga umræðu. En hvers vegna að óttast gagnagranninn? Veikleik- ar, t.d. vegna geðveilu, drykkju- sýki, skapofsa o.þ.h. eru ættgeng- ir og þvi verður ekki breytt hvað sem á gengur. Gömlu bílarnir í umferð Konni hringdi: Nú er aldeilis stand á Godda- stöðum. Ég meina í bílaumboðun- um. Þau sitja uppi með hundrað notaðra bíla, sem ekki hafa gengiö út svo glatt að undanfómu vegna brjálæðisins í sölu nýju bílanna. Nú sitja umboðin uppi með þá gömlu, auk þess sem almennar bílasölur bjóða notaða bíla á kjarakjörum. Sannleikurinn er sá að hér hafa ávallt verið betri kaup í notuðum bílum en nýjum vegna ýmissa orsaka. En nú eiga sem sé gömlu bílamir að komast í um- ferð, þegar eftirspurn í þá nýju linnir. En markaðurinn er bara mettur í bili og ekki öraggt að nein eftirspum verði eftir bílum yfirleitt. Aö því kemur þó. Spurn- ing er hve lengi gamlir bílar geta staöið óseldir. Eða þarf að flytja notaða bíla út í hundraða tali? Viðkvæmt efnahagslíf Fróði hringdi: Það er staðreynd sem öllum er ljós, að við íslendingar eram fáir og tæpt stendur að okkur sé kleift að halda uppi sjálfstæðu ríki með sérstöku og einstaklega sérhæfðu efnahagslífi. Það er því að vonum, að margir kvíði framtíðinni ef hér verða miklar breytingar í stjórn- arfari. Það er ljóst að slíkt þolir þjóðin ekki núna, og allra síst eft- ir það góðæri sem hér hefur geng- ið yfir og er enn til staðar. Stór spuming er því hvort íslenskt efiiahagslíf þoli yfirleitt mikið breytt stjórnarfar, t.d. vinstri stjóm með miklum uppskuröi efnahagslífsins. Gengið hefur ekki verið fellt hér í 6 ár og hvað þýddi þaö eitt fyrir okkar fá- menna þjóðfélag í dag? Já, hér má ekki verða kollsteypa, svo mikið er víst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.