Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Qupperneq 32
36 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 TIV onn lorgaorstjon :astar stríðs- hanska „Borgarstjóri kastar stríðs- hanska á rúst- um fylkingar- innar á viö- kvæmasta stigi kosninga- baráttunnar." Björn Bjarna- son mennta- málaráðherra, íDV. Hagfræðingar í vanda „Ég get vel skilið þá erfiðu stöðu sem hagfræðingar for- sætisráðherra eru í þessa dag- ana. En eru þeir ekki komnir ofurlítið út fyrir sína fræði- grein þegar þeir benda for- svarsmönmnn lífeyrisþega á að hófsamur málflutningur muni skila þeim betri árangri en upphrópanir og gífuryröi." Garðar Sverrisson, vara- form. Öryrkjabandalagsins, í Morgunblaðinu. Sumargjöfin geymd „Búið er að taka ákvörðun um að geyma fram yfir kjör- dag að til- kynna sumar- gjöfina til sæ- greifanna.“ Össur Skarp- héðinsson al- þingismaður, í DV. Sprengjufólkið „Það má ekki á milli sjá hvert þeirra er ákafast í að sprengja þegar vel viðrar, Madeline Albright, Robin Cook eða Halldór Ásgríms- son.“ Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður, i Morgunblað- inu. Hvað var Þjóðvaki? „Þjóövaki, var hann nokk- __uð annaö en prívatframboð einnar mann- eskju sem þekkti ekki sinn vifjun- artíma?“ Sigriður Anna Þórð- ardóttir al- þingismað- ur, í Morgunblaðinu. Listaspíra og grasæta „Með því að þingeyskir sauðíjárbændur kjósa Stein- grím J. senda þeir listaspíru og grasætu úr vesturbænum á þing.“ Stefán Jón Hafstein, í Degi. Póstganga Islandspósts 1999 13. maí árið 1776 gaf Kristján VII út tilskipun um póstferðir á íslandi. Til að minnast þess og fyrstu ferðar fastráðins landpósts tun Suðumes stendiu- Pósturinn fyrir sérstökum göngudögmn í maí og júní. Fetað verður í fótspor landpóstsins, en það var árið 1785 sem Sigvaldi Sæmimds- son, frá Sviðholti á Álftanesi, fór fyrstur landpósta frá Bessastöðum til Suðurnesja og austur í sveitir. Geng- ið verður í fimm áfongum á milli pósthúsa, með viðkomu á Bessastöð- um. Reynt verður að fylgja fomum leiðum þar sem það er hægt. í kvöld kl. 20 verður póstgangan Umhverfi sett formlega við pósthúsið í Póst- hússtræti 5. Heimir Þorleifsson sagnfræðingur rifjar upp þætti úr sögu íslenskrar póstþjónustu. Geng- in verður fom leið í Skerjafjörð, þar sem hópurinn verður ferjaður á báti yfir í Seiluna. Þaðan verður síðan haldið áfram að Bessastöðum. Reykjanesvitl 13. mai, aðalgöngudaginn, hefst gangan kl. 10 á Bessastöðum og þar mun Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti íslands, heilsa upp á hópinn. Einar Rafn Haraldsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands: Draumurinn eftirminnilegastur DV Egilsstöðum: „Þetta verður eflaust afar spenn- andi og skemmtilegt. Ég er að ljúka störfum við Heilbrigðisstofnun Austurlands og mun fljótlega taka alfarið við nýja starfinu, sem reyndar er veitt frá 13. apríl. Það er fólgið í þvi að veita forstöðu þess- ari stofhun sem á að annast heil- brigðisþjónustu i Austurlandskjör- dæmi, en þó er Höfn ekki með þar sem það er tilraunasveitarfélag," sagði Einar ________________________________________ son á Egilsstöð Maður dagsins um. Einar Rafn ------------------------------------- áreiðanlega „Draumur á Jóns- messunótt" eftir Shakespeare, sem sýnt var hér uppi í Selskógi í fyrra. Það var ólýsanlegt að fara um skóg- inn með sýninguna og æfingamar voru yndislegar," segir Einar, en þama var hann í hlutverk Oberon álfakóngs. í vetur vann hann enn einn leik- sigurinn, sem prófessor Higgins í My Fair Lady. Sú sýning var stór- kostleg og sýndi svo hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Heilbrigðisstofnunar Austur- lands, sem tók til starfa 1. janúar sl. og tekur yfir átta heilsugæslu- stöðvar og þrjú sjúkrahús. Aðalskrifstofan verður á Eski- firði, en Einar sagðist mundu búa áfram á Egilsstöðum. „Þetta er enga stund farið og svo verð ég á þeytingi út og suður hvort sem er.“ Einar hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar á Egilsstöðum undanfarin nítján ár, svo hann kemur að kunnuglegu starfi. Hann er kennari að mennt og starfaði sem slíkur bæði á Akur- eyri og Eiðum áður en hann flutti í Egilsstaði. Einnig er hann mennt- aður í leiklist og leikstjóm þó hann hafi ekki lokið prófi í þeim fræð- um, og sennilega er hann best þekktur fyrir störf sín að þeim mál- um. Hann hefur leikið í fjölmörg- um sýningum hjá Leikfélagi Fljóts- dalshéraðs og leikstýrt átta verk- um. „Eftirminnlegasta sýningin er ekki varð um villst að þetta leik- félag ræður við hvað sem er. Á þessa sýningu kom fólk norðan frá Þistilfirði og sunnan frá Höfn, en ekki sagðist Einar hafa orðið var við gesti ífá Bandaríkjunum, enda þótt Flugleiðir hefðu markaðssett slíkar ferðir til Egilsstaða. Um tólf hundruð manns sáu My Fair Lady á ellefu sýningum Einar hefur mikinn áhuga á pólitík og sat átta ár i bæjarstjóm Egils- staða- bæjar fyrir sjáif- ; Æ f stæð- is- flokkinn, „en þá fanst mér bæjar- málavafstrið vera farið að taka of mikinn tíma lfá öðriun verkefnum svo ég dró mig út úr því,“ sagði hann. Einar hefur fleiri áhugamál, svo sem ferðalög. Fjölskyldan á sumarbústað á Víðihóli á Hólsfjöll- um og fer þangað þeg£ir færi gefst, bæði vetur og smnar. Kona Einars er Guðlaug Ólafsdóttir ífá Víði- hóli. Hún hefur einnig starfað mikið við leiksýningar en vinnur nú við At- vinnu- miðlun Austur- lands. Böm Ein- ars era fimm. Þau eru Elín Sigriður, Kjartan Ólafur, Guðmundur Páll, Einar Þór og Elva Björk. -SB Skari Skrípó kemur við sögu í keppni bar- þjóna á Astró í kvöld. Barþjóna- keppni í kvöld fer fram Bar- þjónakeppnin 1999 á veit- ingastaðnum Astró í Aust- urstræti. Keppt er í fjórum greinum, þar sem reynir á kunnáttu og leikni kepp- enda. Greinaranar em: Ál- mennar spumingar, Hrað- blöndun, Nýsköpun og framleiki og Frjáls aðferð. Það þarf snör handtök og góða takta í blöndun drykkja, þannig að það má reikna með því að þetta verði eitthvað fyrir augað. Kynnir verður Sigurður Hlöðversson. Skari Skrípó veröur með innkomur á mifli keppnisgreina og svo Skemmtanir munu strákamir í Sóldögg skemmta ásamt plötusnúð- um Astró. Sigurvegarinn í keppninni fer síðan til New York ásamt fylgdarliði til þátttöku í alþjóðlegri Beefeater-keppni barþjóna fyrir hönd íslands. Myndgátan Klakaklár Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Margrét J. Pálma- dóttir stjórnar Vox fem- inae í Krists- kirkju. Vortónleikar Vox feminae Kvennakórinn Vox feminae heldur vortónleika í Kristskirkju í Landakoti í kvöld kl. 20.30. Stjóm- andi er Margrét J. Pálmadóttir og orgelleikari Úlrik Ólason. Tón- leikarnir bera yfirskriftina Da pacem domine - in diebus nostris sem útleggst á íslensku Gef oss frið, Drottinn, nú á vorum dögum. Tónleikamir eru haldnir til styrktar Orgelsjóði Kristskirkju. Á efnisskrá era m.a. verk eftir Brahms, Palestrina, Deutsch- mann, Rheinberger og Þorkel Sig- urbjörnsson. Tónleikamar munu standa í u.þ.b. klukkustund. Miða- sala er hjá kórfélögum og í safnaö- arheimili Kristskirkju u.þ.b. tveimur tímum fyrir tónleika. Tónleikar Vox Feminae var stofnaður haustið 1993 en þá tóku nokkrar konur úr 120 kvenna Kvennakór Reykjavíkur sig saman, undir stjóm Margrétar J. Pálmadóttur, og stofnuðu antik-hóp. Markmiðið með stofnun Vox Feminae var að syngja eldri tónlist, andlega og veraldlega. Hópurinn hefur haldið tónleika á ýmsum stöðum hér- lendis. Einnig hefur hann tekið þátt í fjölmörgum tónleikum Kvennakórs Reykjavíkur, m.a. í velheppnaðri söngferð til Ítalíu 1996. Kórinn fór í tónleikaferðir til Vínar 1997 og til Kölnar 1998. Bridge Þegar Guðrún Jóhannesdóttir sagði einn spaða á hendi suðurs hafði hún það fyrst og fremst í huga að fá útspil í litnum, en ekki að spfla þann lit sem trompsamning. Spilið kom fyrir í heimabridge, tví- menningskeppni sem spiluð var á þremur borðum. Sagnir gengu þannig á einu borðanna, norður gjafari og a-v á hættu: * D8632 * KD943 * K7 * 7 4 104 V 10865 ♦ ÁD * ÁKG95 4 ÁKG7 * - 4 1098652 * 643 Norður Austur Suður Vestur pass 1 * 1 é dobl 4 4 dobl p/h Til greina kemur fyrir norður að opna í upphafi á einum spaða, en það kom ekki að sök í þessu tilfelli að passa. Fjórum spööum var ekki hægt að hnekkja í þessari legu og n- s fengu skrifaða töluna 590 i sinn dálk. Sagnir þróuðust á annan veg á öðra borði: Norður Austur Suður Vestur pass 1 grand pass 3 grönd p/h Á þessu borði ákvað norður einnig að passa, en fékk að sjá eftir því. Austur ákvað að meta höndina upp á við og opna á einu grandi (15-17 punktar). Vömin á 5 vamarslagi á spaða, en til þess þurfti suður að spila út spaða í upphafi. Það gerði vörnin einnig, en útspilið var iflu heilli spaðasjöan!? Þar með stíflaðist spaðaliturinn fyrir vömina og sagn- hafi fékk sína upplögðu 9 slagi, vegna hinnar hagstæðu legu í tíglin- um. ísak Örn Sigurðsson 4 95 * ÁG72 * G43 * D1082

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.