Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Qupperneq 1
19
Drauma-
liöDV
í gang
(2Ó^2Í)
Æfingar kvennalandsliða felldar niður við litla hrifningu:
Of dýrt að fá Eyjastúlkurnar?
Knattspyrnusamband íslands
ákvað í gær að blása af æfingahelgi
kvennalandsliða, bæði A og 21 árs
liðanna, sem fyrirhuguð hafði verið
um næstu helgi.
Þórður Lárusson landsliðsþjálf-
ari fékk fréttir þess efnis í gær-
morgun en ekki fylgdu með ástæð-
ur þess að æfingunum var slegið á
frest. Þó er það mat flestra sem DV
ræddi við að kostnaður sem Knatt-
spymusambandið þarf að greiða
vegna þeirra 6 leikmanna sem
koma frá Vestmannaeyjum sé ein
aðalástæða frestunarinnar.
Kvennanefnd KSÍ, sem fer með
málefni kvennalandsliðsins, fékk
ekki fréttir af frestuninni fyrr en í
gær og nefndarmaöur sem DV
ræddi við gat ekki tilnefnt aöra
ástæðu en þá sem hér hefur þegar
verið nefnd.
Kannast ekki við frestun
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði í samtali við DV að
hann kannaðist ekki við að neinum
æfingum hefði verið frestað.
„Það var til umræðu að hafa æf-
ingar um þessa helgi en það sam-
ræmist ekki samstarfsreglum milli
KSÍog aðildarfélaganna um þátt-
töku leikmanna í leikjum og æfing-
um á vegum KSÍ að hafa æfingu á
þessum tíma og við viljum halda
okkur við samstarfssamninginn.
Þessar æfíngar hafa ekki verið sett-
ar á svo ég kannast ekki við að þær
hafi verið blásnar af,“ sagði Geir.
í umræddum samstarfsreglum er
kveðið á um að æflngar kvenna-
landsliðanna skuli vera tvær í jan-
úar, febrúar og mars og ein æfing í
apríl og september. Ekki er gert
ráð fyrir æfingum í maí, júní, júlí
og ágúst.
Nánar er fjallað um málið á bls.
22.
-ih
Birgir þjálfar Breiðablik
Birgir Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik,
hefur verið ráðinn þjálfari Breiðabliks til tveggja ára. Birgir,
sem áður lék með Víkingum, mun ekki aðeins þjálfa Blikana
heldur mun hann einnig leika með liðinu. Koma Birgis verð-
ur Breiðabliki, sem leikur í 2. deild, mikil lyftistöng en Blik-
arnir höfnuðu í fjórða sæti deildarirmai- í vetur. -ih/VS
Emmanuel Petit fagnar marki sínu í 3-1
sigri Arsenal á Tottenham í gærkvöld.
Mynd Reuter
Ingi hjá Hácken
Ingi Sigurðsson, einn lykilmanna ís-
lands- og bikarmeistara ÍBV í knatt-
spymu, æfir þessa dagana með
sænska B-deildarliðinu Hacken. Mikl-
ar líkur eru á að hann gangi til liðs
við Hacken í haust.
Ingi hyggur á nám í Gautaborg í
haust og ef af þessu verður fer hann
utan strax og tímabilinu hér heima
lýkur, í september. Hann spilar þá
síðustu umferðir sænsku deilda-
keppninnar og leikur síðan áfram
með liðinu á næsta tímabili.
Gunnar Glslason, fyrrum landsliðsmaður, er aðstoðarþjálf-
ari Hacken en hann lék um árabil með liðinu. Hann sagði við
DV í gærkvöld að sér litist mjög vel á Inga og liðið vantaði til-
finnanlega kantmann hægra megin. -EH/VS
Parma vann
bikarinn
Parma varð í gærkvöld ítalskur bikar-
meistari í knattspymu með því að gera 2-2
jafntefli við Fiorentina á útivelli í seinni
úrslitaleik liðanna. Sá fyrri endaði 1-1 og
Parma vann á fleiri mörkum á útivelli.
Hernan Crespo kom Parma yfir en Tom-
as Repka og Sandros Cios svömðu fyrir
Fiorentina. Markið dýrmæta sem færði
Parma bikarinn skoraði Paolo Vanoli
með skalla eftir sendingu frá Enrico
Chiesa þegar 19 mínútur vom til leiks-
loka.
-VS
Þórður Guðjónsson var
nálægt því að skora.
Genk
skrefi nær
titlinum
Genk steig í gær eitt
skref enn í átt að belgíska
meistaratitlinum í knatt-
spyrnu með 0-3 sigri á
Lommel. Þórður og Bjami
Guðjónssynir léku allan
leikinn með Genk og voru
báðir nærri því að skora.
Lokeren tapaði óvænt
fyrir botnliði Ostend, 1-2,
og missti dýrmæt stig í bar-
áttunni um Evrópusæti.
Amar Þór Viðarsson lék
allan leikinn með Lokeren,
vann nokkuð vel og var
sterkur í loftinu.
Club Bmgge fylgir Genk
eins og skugginn og vann
Beveren, 3-1. Anderlecht
vann Gent, 4-0. Þegar tvær
umferðir era eftir er Genk
með 70 stig, Club Bmgge 68,
Anderlecht 64 og Moes-
kroen 62. -KB/VS