Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Blaðsíða 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1999 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1999 25 Sport Bland í poka Nigerla hefur dregiö til baka um- sókn sina um að fá að halda heims- meistarakeppnina í knattspyrnu árið 2006. Nigeríumenn ákváöu þetta til að hjálpa S-Afríku að fá keppnina en í síðasta mánuði gerði Ghana það sama. Auk S-Afríku hafa Brasilía, Þýskaland, England og Marokkó sent umsóknir um að halda keppnina en Alþjóða knattspyrnusambandið mun ákveða á fundi sínum í mars 2000 hver hreppir hnossið. Michael Preetz, markakóngur þýsku A-deildarinnar í knattspyrnu og leikmaður Herthu Berlin, hefur ákveðið að leika næstu þrjú árin með félaginu. Preetz hefur skorað 19 mörk á tímabilinu og er kominn í þýska landsliðshópinn. Verri tíðindi í her- búðum Herthu-liðsins eru þau að krótatíski miðjumaðurinn Ante Covic meiddist illa á hné í leiknum gegn Bayem Múnchen í fyrrakvöld og verður frá næsta hálfa árið. Albert Jakobsson sigraði á fyrsta móti hjólreiðamanna sem fram fór á Þingvöllum á dögunum. Hjólaðir voru fjórir hringir í þjóðgarðinum, alls 68 km, og kom Albert fyrstur í mark á 2:05,30 klst. Gunnlaugur Jónasson varð annar á 2:05,50 klst. og Steinar Þorbjörnsson hafnaði i þrjðja sæti á 2:06,10 klst. Gunnlaugur Jónasson sigraöi í svo- kallaðri tímakeppni sem fram fór á Krísuvíkurvegi en hjólaðir voru 18,6 km. Gunnlagur kom í mark á 29,58 min. Páll Elísson varö annar á 30:38 min og Albert Jakobsson þriðji á 31:22 mín. Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður i knattspymu og leikmaður Lille- ström, hefur byrjað leiktíðina með glæsibrag og leikið hvem stórleikinn á fætur öðrum. Rúnar er efstur í ein- kunnagjöf norska netmiðilsins Nett- avisen með 6,20 i meðaleinkunn þeg- ar sex umferðum er lokiö. Barcelona varó spœnskur meistari í handknattleik. Liðið háði einvigi við Ademar Leon og vann Barcelona allar viðureignirnir þrjár á sannfær- andi hátt. Barcelona tapaði aðeins einum leik á öllu tímabilinu og varð eins og kunnugt er Evrópumeistari á dögunum. Barakaldo og Altea féllu hins vegar i 2. deild. Hiö fornfrœga liö Malaga er á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild á Spáni. Þegar íjómm um- ferðum er ólokið hefur liðið átta stiga forystu á Rayo Vallecano. Malaga var á sinum tíma komið niður í 3. deild. Þrír leikir voru í sænsku A-deild- inni í knattspyrnu í gær. AIK lagði Helsingborg, 2-1, Frölunda og Djurgárden skildu jöfn, 1-1, og Elfs- borg tapaði heima fyrir Trelleborg, 1-2. Haraldur Ingólfsson lék síðasta hálftimann fyrir Elfsborg og átti ágæta spretti og var nálægt því að jafna metin undir lokin. Hilmar Björnsson fékk hins vegar ekki að spreyta sig með Helsingborg. AIK, örgryte og Frölunda eru efst með 10 stig en Örgryte, lið Brynjars Bjöms Gunnarssonar, á leik til góða gegn Gautaborg í kvöld. Landsliö íslands í áhaldafimleikum kvenna varð í öðru sæti á 3ja landa móti á írlandi. fsland hlaut samtals 125,04 stig en Austurriki sigraði með 128,97 stig. íslenska liðið skipuðu þær Bergþóra Einarsdóttir, Á, Erna Sig- mundsdóttir og Kristín Einarsdóttir, Gróttu, Lilja Erlendsdóttir, Gerplu, og Freyja Sigurðardóttir og Ásta S. Tryggvadóttir, Keflavík. Bergþóra náði bronsverðlaunum í einstak- lingskeppninni og var hársbreidd frá silfurverðlaunum. -EH/-GH/ JKS/-SK/-AIÞ Úrslitaleikurinn í UEFA-bikarnum: Stefnir í harðan slag í Moskvu - Parma og Marseille ítalska liðið Parma og franska liðið Marseille mætast í úrslitaleik UEFA-bikarsins í Moskvu á morgun. Parma hefur einu sinni hampað UEFA-bikarnum en það var 1995. Félagið varð Evrópumeistari bikarhafa 1994 og meistari meistaranna í Evrópu 1994. Uppgangur félagsins hefur í raun verið ótrúlegur og hraður. Mikil og glæsileg uppbygging Það var undir lok síðasta áratugar sem hjól félagsins fóru fyrir ctlvöru að snúast. Liðið var stofnað 1913 og hefur aldrei orðið italskur meistari. Á síðustu tíu árum hefur liðið verið í hópi bestu liða og oft verið með í bar- áttunni um ítalska titilinn. Sterkir styrktaraðilar komu hjólunum af stað og fyrir vikið var hægt að kaupa sterka leikmenn til liðsins. Litli heimavöllur liðsins hefur reynst því happadrjúg- ur í UEFA-keppninni. Liðið vann alla sína leiki á heimavelli en náði aðeins að vinna einn leik á útivelli, gegn Atletico í Madrid. Parma sigraði Fenerbache í 1. umferð, 3-2 samanlagt. í 2. umferð lagði Parma pólska liöið Wisla Krakow, 3-2, samanlagt. Parma lagði síðan Glasgow Rangers, 4-2, samanlagt í 3. umferð. 18-liða úr- slitunum sigraöi liðið Bordeaux samanlagt, 7-2, eftir að hafa tapað fyrri leiknum í Bordeaux, 2-1. í undanúrslit- unum sigraði Parma lið Atletico Madrid samanlagt, 5-2. Enrico Chiesa og Heman Crespo eru skæðustu mætast þar á morgun markahrókar liðsins en þeir hafa skorað fimm mörk hvor á leið liðsins í úrslitin. Markatala liðsins í keppn- inni er 21-10 Marseille hefur átta sinnum orðið franskur meistari, síðast 1992. Tíu sinnum orðið bikcirmeistari, síðast 1989. Evrópumeistari meistaraliða varð liðið 1993. Eftir það átti liðið undir högg að sækja og varð dæmt niður í B- deild vegna mútumála. Nú er öldin önnur og nú berst liðið við Bordeaux um sigurinn í deildinni. Hjá Marseille er valinn maður í hverri stöðu og nokkrir sem voru í heimsmeistaraliði Frakka á sl. ári. Það er eins með Marseille og Parma að liðið vann ekki einn einasta leik á útivelli í keppninni en tapaði heldur engum. Heimavöllur liðsins er frægt vígi og þar tapar liðið sjaldan leikjum. Maurice Blanc, Christophe Dugarry og Robert Pires, sem allir eru franskir, hafa skorað þrjú mörk hver í UEFA-bikamum. Markatala liðsins í keppninni er 16-9. Leikstíllinn ekki ósvipaður Liðin leika ekki ósvipaða knattspyrnu, stutt spil og agaðan leik. Þegar öllu er á botninn hvolft og veikleik- ar og kostir lagðir til hliðsjónar er ljóst að viðureign þessara liða getur boðið upp á allt það besta í boltanum. -JKS Franska liðið Bordeaux fékk að kenna á Parma í 8-liða úrslitum keppninnar. Bordeaux vann að vísu fyrri leikinn en tapaði síðari leiknum í Parma, 6-0. Þá var glatt á hjalla eins og þessi mynd ber glöggt vitni. Hér sjást þeir Hernan Crespo, Paolo Varoli og Erico Chiesa fagna einu markanna en Crespo og Chiesa skoraði tvö mörk hvor í umræddum leik. Símamynd-Reuter Heimsmeistaramótið í badminton: Tékkar leiknir grátt - íslendingar unnu alla leikina og mæta Sviss í dag íslenska landsliðið í badminton hóf keppni á heimsmeistaramótinu í Kaupmannahöfn í gær af miklum krafti. í fyrsta leik mættu íslending- ar liði Tékklands og sigruðu okkar menn, 5-0. Tómas Viborg sigraöi sinn and- stæðing í einliðaleik, 15-11, 15-13. Brynja Pétursdóttir sigraði and- stæðing í einliðaleik kvenna, 4-11, 11-2, 11-3. Broddi Kristjánsson og Drífa Harðardóttir sigruðu í tvennd- arleik, 15-6, 15-10. Vigdís Ásgeirs- dóttir og Brynja Pétursdóttir sigr- uðu í tvíliðaleik 15-7, 15-5. Broddi Kristjánsson og Tryggvi Nielsen sigruðu í sínum tvíliðaleik, 15-7, 15-6. „Hugur í mannskapnum og líst vel á framhaldið“ „Ég átti von á jafnari leik en raunin varð á. Þvi er ekki að leyna að það er mjög gott að byrja keppn- ina með þessum hætti. Við vorum einfaldlega miklu grimmari og í miklu betra formi. Það eru allir heilir og í finu formi. Það er enn- fremur mikill hugur í mannskapn- um og allir eru staðráðnir í því að gera sitt besta. Mér líst bara vel á framhaldið en það er ljóst að róður- inn verður þyngri gegn Svisslend- ingum í næsta leik. Á góðum degi tel ég samt að við eigum góða mögu- leika,“ sagði Broddi Kristjánsson landsliðsþjálfari í samtali við DV í gærkvöld. -JKS Reuter David Ginola fagnar marki sínu gegn Chelsea í gærkvöld. Chelsea er úr leik Baráttan um enska meistaratitilinn í knattspyrnu stendur einungis á milli Arsenal og Manchester United eftir að Chelsea náði aðeins jafntefli gegn Tottenham í gær- kvöld. Gustavo Poyet kom Chelsea yfir á 4. mínútu en Steffen Iversen jafnaði metin á 38. mínútu. í síðari hálfleik skoraði David Ginola gott mark fyrir Tottenham en Daninn Bjame Goldbaek jafnaði með stórkostlegu marki fyrir Chelsea á 72. mtnútu. Manchester United er efst með 75 stig eins og Arsenal en United er efst á fleiri skor- uðum mörkum. Chelsea er með 72 stig. Arsenal leikur á heimavelli gegn Leeds í kvöld og annað kvöld leikur United á heimavelli Blackburn. -SK Sacramento kom verulega á óvart i nótt meö því að sigra Utah, sigurliðið í vesturdeild NBA, á útivelli í öðrum leik liðanna í úrslitakeppninni. Utah vann fyrsta leikinn með 30 stiga mun um helgina en Sacramento kom fram rækilegum hefndum. Sacramento fær tvo næstu leiki á heimavelli og gæti því gert út um einvígið þar. „Við spilúðum miklu betri vöm en í fyrri leiknum og það geröi útslagið," sagði Vlade Divac, júgóslavneski mið- herjinn hjá Sacramento. Miami jafnaði metin gegn New York og þar var Alonzo Mourning óstöðvandi. Sama er að segja um Dik- embe Mutombo hjá Atlanta en lið hans vann Detroit öðru sinni. Port- land náði 2-0 forystu gegn Phoenix. Úrslitin í nótt: Miami-New York ...............83-73 Mouming 26, Sprewell 15, Johnson 13 - Ewing 16, Brown 12, Porter 11. Staðan er 1-1. Atlanta-Detroit...............89-69 Mutombo 28, Smith 21, Blaylock 12 - Hill 15, Dumars 14, J.Williams 11. Staóan er 2-0 fyrir Atlanta. Portland-Phoenix ............110-99 Grant 22, Stoudamire 22, Wailace 21 - McCloud 15, Garrity 15, Robinson 14. Staöan er 2-0 fyrir Portland. Utah-Sacramento .............90-101 Malone 33, Stockton 13, Russell 12 - Webber 20, Divac 18, Williams 18. Staðan er 1-1. Úrslitin i fvrrinótt: Orlando-Philadelphia........90-104 Hardaway 19, D. Armstrong 18, Ander- son 18 - Iverson 30, Geiger 23, Lynch 15. Staóan er 1-0 fyrir Philadelphia. Indiana-Milwaukee............110-88 Rose 24, D. Davis 16, Miller 16 - Allen 22, Cassell 19, Robinson 16. Staóan er 1-0 fyrir Indiana. LA Lakers-Houston...........101-100 Rice 29, Shaq 27, Fisher 20 - Barkley 25, Olajuwon 22, Pippen 14. Staóan er 1-0 fyrir Lakers. San Antonio-Minnesota ........99-86 Duncan 26, Johnson 21, Elliott 14 - Garnett 21, Mitchell 19, Brandon 16. Staöan er 1-0 fyrir San Antonio. -VS Allan Houston hjá New York og Dan Majerle hjá Miami eigast við. Reuter - tyrkneski leikmaöurinn Hasan Vural æfingalaus og Eyjamenn hafa sent hann til síns heima Tyrkneski knatt- spymumaðurinn Hasan Vural, sem Islands- og bikar- meistarar ÍBV fengu til reynslu, fyrir helgina hefur verið sendur heim. „Hann stóð ekki undir þeim vænt- ingum sem til hans voru gerðar. Hann var æfingalaus og því ekki um annað að ræða en að láta hann fara. Þetta eru vissulega von- brigði og það er allt á huldu hvort við fórum út í að fá einhvem annan til að skoða,“ sagði Þorsteinn Gunn- arsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeild- ar ÍBV, við DVí gær. Miljkovic á leiðinni Eyjamenn búast við því að Júgósla- vinn Zoran Milj- kovic komi til landsins á fimmtu- daginn. Ekki er búið að greiða götu hans en eins og fram hefur komið var Miljkovic sett- ur i leikbann fyrir að gera aðsúg að dómara í leik í Júgóslavíu í vetur. Eyjamenn mæta Skagamönnum í undanúrslitum deildabikarkeppn- innar í Eyjum í kvöld og í Árbæn- um eigast við Fylk- ir og Leiftur. -VS/GH ^ Úrslitakeppni NBA: Ovænt í Utah Sigurvegarinn ýtti hjólinu í markið A laugardaginn veit haldin keppni í Enduró, sem er nokkurs konar þolakstur á torfæmhjólum, á söndun- um við Þorlákshöfn. Eknir vom níu 8 km hringir þannig að heildarvega- lengdin var 72 km. Ölfusárhreppur lánaði landgræðslu- land sitt undir þessa keppni og á þakk- ir skildar fyrir. Ræsti sveitarstjórinn keppnina þannig að keppendur hlupu að hjólum sínum og settu í gang og var Þorvaldur Ásgeirsson með rásnúmer 10 fyrstur úr rásmarkinu. Eftir einn hring var staðan þannig að Einar Sigurðsson númer 4 var fyrst- ur en Reynir Jónsson númer 2 annar. Hann missti síðan annað sætið til Viggós Viggóssonar númer 1 þegar hann tók viögerðarhlé og hélt hann því til enda keppninnar. Sandurinn var bæði laus og harður í sér þannig að keppnin var allan tím- ann slagsmál við stýrið og hjólið enda vom margir keppendur bæði þreyttir og skítugir þegar komið var í mark. Sumir höfðu þó verið það séðir að taka með sér vatnsbrúsa á bakinu með slöngu upp í gegnum hjálminn til að geta svalað sér á leiðinni. Eitt var lika dálítið sérstakt við þessa keppni en það var líklega i fyrsta skipti á íslandi sem tvö lið umboðs- manna framleiðenda tóku þátt en þaö vom lið Kawasaki frá Vélhjólum og saœðlum með 6 keppendur og lið KTM frá KTM-umboðinu, Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, með 7 keppendur. Höfðu liðin með sér þjónustulið reiðubúið til aðstoðar ef á þyrfti, meðal annars til að bæta á bensíni, og höfðu til þess sér- staka brúsa til að flýta fyrir. Aðdáun- arvert var að sjá hvað liðin voru fljót að þjónusta keppendur og var há- marksstopp í pytti 30 sekúndur og vom menn þá búnir að fylla á bensíni, skipta um gleraugu og fá sér að drekka. Minnti þetta stundum á Formula 1. Samt varð sigurvegari keppninnar bensínlaus 50 metra frá markinu og þurfti að ýta hjólinu síðasta spölinn. Keppt var í nokkrum flokkum, þar af tveimur til fslandsmeistara en það var opinn flokkur og flokkur 40 ára og eldri sem góð þátttaka var í. Úrslit þar urðu þannig að Steini Tótu númer 8 vann en Þorsteinn B. Bjamason núm- er 66 varð annar og Heiðar Jóhanns- son þriðji. Annars urðu úrslit yfir heildina sem hér segir: Einar Sigurðsson, KTM 380 ... .1:16,04 Viggó Viggósson, Yamaha WR400 1:17,36 Reynir Jónas, Kawasaki KX250 .1:17:58 Guðm. Sigurðs, KTM 360 ......... 1:22,18 Steini Tótu, Kawasaki KX500 .. 1:22,48 Magnús Bess, Suzuki RMX250 .. 1:24,37 Helgi V. Georgs, Husaberg 501 . 1:24,37 Karl Lillendal, Kawasaki KLX300 1:25,09 Steingr. Leifsson, Yamaha YZ250 1:26,05 Einar Sigurðsson ýtir hjóli sínu í lokamarkið. : ■WF'i i , M WL * : i J ■ -*;*$*! •, i $ S ® [ ,Í»; 1 - ■1-riia—t; - —ááfc-'l wi'.\ ji |» -iC [|7b S 1 §í •._ • S 57 ‘J Þrír efstu menn í flokki 40 ára og eldri. Sport gí INGLAND Mikill fögnuöur hefur ríkt í borg- inni Bradford síðan á sunnudag en knattspyrnulið hennar tryggði sér þá sæti í A-deildinni í fyrsta skipti í 77 ár. Geoffrey Richmond, forseti Brad- ford, sagði 1 gær að nú yrði samning- ur framkvæmdastjórans, Pauls Jew- ells, riftnn í tætlur og honum boðinn nýr og betri samningur til þriggja ára. Ipswich sat eftir fjóröa árið í röð og þarf að fara i úrslitakeppni um eitt sæti í A-deildinni. Ipswich mætir þar Bolton og Watford leikur við Birm- ingham. Sigurvegarar í þessum ein- vígjum mætast síðan í úrslitaleik á Wembley þann 31. maí. Manchester City getur komist aftur í B-deildina eftir árs fjarveru. City mætir Wigan í aukakeppni um eitt sæti í B-deild og Preston leikur við Gillingham. í úrslitakeppni um sæti í C-deild leikur Scunthorpe við Swan- sea og Rotherham við Orient. Huddersfield rak í gær knattspymu- stjórann Peter Jackson eftir 18 mán- aða starf. Huddersfteld sem byrjaði tímabilið í B-deildinni mjög vel og var i forystu í nóvember hafnaði 110. sæti deildarinnar 15 stigum frá því að komast í úrslitakeppnina um laust sæti í A-deildinni. Forráðamenn Huddersfield eru með Roy Evans, fyrrum knattspymustjóra hjá Liver- pool, í sigtinu svo og Steve Bruce, knattspyrnustjóra Sheffield United. Steve Vickers, vamarmaður Middles- brough, spáir því að Arsenal verji meistaratitil sinn en á skömmum tíma hefur Middlesbrough leikið bæði gegn Arsenal og Manchester United. „United er með frábært lið en eftir að hafa mætt Arsenal í þvílíkum ham þegar liðið gersigraði okkur, 6-1, get ég ekki séö hvernig á að koma í veg fyrir að liðiö vinni deild- ina. Ég spái því að Arsenal vinni Leeds en Blackburn tekur stig af United og kemur þannig í veg fyrir sigur liðsins I deildinni," segir Vickers. Litil ánœgja rikir í Fulharn þessa dagana með Kevin Keegan. Fyrir tveimur eða þremur vikum lýsti Keegan því yfir að hann myndi aldrei yfirgefa Fulham til að gerast lands- liösþjálfari Englendinga til frambúð- ar. Nýverið lýsti Keegan þvf yfir að hann vildi taka við enska landsliðinu til frambúðar og þar með gaf hann Fulham langt nef. Þaö sem forráðameitn Fulham eru óánægðir með er að þeir fréttu um endanlega ákvöröun Keegans á einni bresku sjónvarpsstöðinni. Skiljanlega fannst forráðamönnum Fulham rétt- ara aö Keegan hefði tilkynnt þeim um ákvöröun sína fyrst. Sú staöreynd að forráðamenn Ful- ham sáu það í sjónvarpinu að hann vildi ekki starfa lengur hjá Fulham hleypti í þá illu blóði og nú vilja þeir ekki láta enska knattspymusamband- ið sleppa með að greiða háa fjárhæð fyrir Keegan. Nú er taliö fullvíst að Roy Keane leiki ekki með Manchester United gegn Blackburn annað kvöld. Keane meiddist í síðasta leik United gegn Middlesborough og það er mikiö áfall fyrir United að fyrirliðinn verður fjarri góðu gamni í síðasta útileik liðsins á leiktföinni. Forráðamenn United vonast eftir því að Keane verði með United þegar liðið mætir Tottenham um næstu helgi í síðasta leik sínum í deildinni. -VS/GH/-SK Boðið aftur til Wimbledon Enska knattspyrnufélagið Wimbledon hefur boðið Jóni Skaftasyni, 16-ára KR-ingi, að dvelja hjá félaginu við æfingar í nokkur skipti næsta vetur. Eins og fram kom í DV á dög- unum hefur Jón spilað að und- anförnu með unglingaliði Wimbledon og staðið sig mjög vel. Eftir sigurleik gegn Arsenal um helgina var honum boðinn samningur en þar sem hann hyggur á nám á íslandi næsta vetur tók Jón þvi ekki aö svo stöddu. Samkomulag varð um að Jón kæmi nokkrum sinnum til fé- lagsins næsta vetur og gæti dval- ið þar í allt að 3-4 vikur í hvert skipti. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.