Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1999, Qupperneq 12
12
Spurningin
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
Hvað pantar þú þér
á kaffihúsi?
Halldóra Ottósdóttir húsmóðir:
Kaffi.
Elizabeth Arden hefðarkona:
Hefðarkonur drekka te.
Sir William Morris aðalsmaður:
Ég drekk heitt toddí.
Björgvin Kristjánsson verkamað-
ur: Létt kaffi og meðlæti.
---------WT-------------
Baldvin Þorsteinsson: Ég fer yfir-
leitt ekki á kaffihús.
Pálmi Ólason: Kolsvart kaffi.
Lesendur
Skautasvellið
lokað í sumar
- vonbrigði en skilningur
í Skautahöllinni í Laugardal. - Fyndist ómaksins vert að bjóða upp á að
framlengja tímann sem opið er, a.m.k. út maí eða fram í miðjan júnf, segir
m.a. í bréfinu.
Helga Sigurðardóttir skrifar:
Ég er ein af þeim foreldrum sem
hafa nýtt sér skautasvellið í Laugar-
dal í nokkur ár, mér til óblandinnar
ánægju og krökkunum sem ég hef
tekið með mér þangað. Ég hef þegar
komið nokkrum þeirra á bragðið ef
svo má segja - að skauta sér til
skemmtunar og hressingar. Það er
nefnilega mjög hressandi að skauta
og manni hleypur kapp í kinn ef
maður heldur sig við svellið og nýt-
ir tímann milli þess að svellið er
spúlað með vissu millibili. - Á laug-
ardögum og sunnudögum hefur ver-
ið þarna geysilegur fjöldi, aðallega
unglingar og krakkar, margir með
fullorðnum.
Nú var komið skautasvell í vetur
innanhúss með prýðilegri aðstöðu.
Veðrið hamlaði því ekki. Það var nú
ein aðalástæðan fyrir lokun á svell-
inu hér áður þegar það var utan-
húss. En Adam var ekki lengi í
Paradís. Nú er búið að loka skauta-
svellinu í Laugardal. Þar verður
lokað í allt sumar og ekki opnað aft-
ur fyrr en í haust. Ég áttaði mig
ekki á þessu, hélt að nú yrði opið
allan ársins hring. Og það sem
meira er, ég hef heyrt að þetta sé
eina íþróttamannvirkið I borginni
sem ber sig fjárhagslega.
Á móti kemur, að sögn, því ég
spurði hverju lokunin sætti, að nú
sé farið að draga úr aðsókninni og
það sé aðeins á laugardögum sem
aðsóknin sé mikil. Síðasta sunnu-
dag hafi t.d. verið farið að draga úr
aðsókn og þannig haldi það áfram,
sérstaklega virka daga vikunnar.
Ég er dálítið undrandi á þessu.
Og þó. Nú hafa skólar staðið yfir
virka daga og prófum að ljúka. Ég
hefði haldið að eftir að skólum lýk-
ur myndu unglingar og krakkar
hópast á skauta og einmitt yfir dag-
inn. Ekki er um mikið annað að
velja fyrir krakka á sviði afþreying-
ar hér í Reykjavík, og þeir sem ekki
eru í vinnu eða fara í sveit (sem nú
er víst ekki lengur í tísku) hafa í
raun að engu að hverfa til að drepa
tímann.
Ég sakna skautasvellsins sem átti
að bjarga öllu fyrir áhugasama á
þessu sviði, þar sem ekki var hægt
að hafa skautasvellið opið úti vegna
of mikils sólskins, að því er sagt
var. Mér fyndist það ómaksins vert
að bjóða upp á að hafa skautasvellið
lengur opið, a.m.k. út maí eða fram
í miðjan júní, til að fullkanna hvort
aðsókn glæðist ekki, og auglýsa tím-
ann rækilega.
Dópvandamál
nútímaþjóðfélags
J.B.G. skrifar:
Það er löngu opinbert og sannað
að eiturlyf og vimuefni eru að eyði-
leggja fjölda notenda þessara efna
hérlendis sem erlendis og skapa
með því upplausn og örvilnan í
þjóðfélaginu. Langoftast eru seljend-
ur þessara efna i næsta nágrenni og
geta neytendur vímuefnanna ekki
losað sig við þá þótt þeir vildu. Og
margir óska þess sárlega. Ég held að
þeir sem halda uppi lögum og reglu
hér á landi séu búnir að gefast upp
í baráttunni og segja eins og til af-
sökunar: Látum þá litlu afskipta-
lausa, handsömum þá stóru.
En þeir „litlu“ leggjast bara í rán
og þjófnaði, sem þýðir aftur að hin-
ir stóru geta staðið í stórviðskiptum
fyrir vikið.
Þessi þróun virðist vera að brjóta
niður hluta þessa litla þjóðfélags
okkar. Þótt einn milljarður verði
settur t.d. í það að „þurrka" upp þá
vímuneytendur sem um það biðja,
þá er það aðeins til þess að „snyrta"
vandamálið út á við. En það þarf að
höggva að rótum vandans, og það
verður aðeins gert með hugarfars-
breytingu allrar þjóðarinnar.
Aulalegar auglýsingar
Upp með verðsamanburðinn. - Kannski er meira
pláss í farteskinu með vindsængum, bolum og
handklæðum sem fylgdu gjaldeyrinum frá ís-
landsbanka.
Gunnsteinn skrifar:
Tvær auglýsingar hafa farið af-
skaplega í taugarnar á mér að und-
anfomu. Mér finnst þær sýna dóm-
greindarleysi auglýsingahönnuða
gagnvart almenningi. Báðar auglýs-
ingarnar varða ferðalög til útlanda,
án þess að segja þó yfirleitt nokkuð
sem máli skiptir fyrir íslenska
ferðalanga. Önnur auglýsingin (sem
er málfarslega röng á spænskunni)
er um „glaðninginn með gjaldeyr-
inn“ frá íslandsbanka, og sýnir
spænska tollverði standa eins og
aulabárða við færiband í spænskri
flugstöð (líklegast?) að skoða bolta,
handklæði og vindsængur sem ís-
lenski bankinn gefur sem „glaðn-
ing“ sé keyptur gjaldeyrir í bankan-
um fyrir meira en 30 þús. krónur. -
Þarf virkilega enn að auglýsa
„gjaldeyri“??
Hin auglýsingin er frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug-
velli, einni „ódýrustu flugstöð
heims“. - Þar segir frá könnun í
janúar 1999 um verðlag í flugstöð-
inni gagnvart flugstöðinni á Kastr-
up og í Hamborg (14% lægra en í
Kastrap og 10% lægra en í flugstöð-
inni í Hamborg). Ekki skulu bornar
brigður á réttmæti þessa. Súkkulaði
35% og 11% ódýrara,
Ray Ban sólgleraugu
2% og 4% ódýrari,
Gucci sólgleraugu 38%
ódýrari, Chanel ilm-
vatn 4% og 6% ódýrara
og Kodak filma 30% og
33% ódýrari.
Allt þetta segir mér
nákvæmlega ekki neitt.
Þama er ekkert verð og
því veit ég sem væntan-
legur ferðamaður ekk-
ert mn verðlagið á þess-
um vörutegundum í
Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar.
„Fyrir íslendinga á
leið í friið er Leifsstöð
því hagstæðasti kostur-
inn“, segir svo í lokin. -
Nema hvað! Við eigum ekki ann-
arra kosta völ en fara í gegnum
Flugstöð Leifs Ehákssonar, því það
er ekki um neina samkeppni að
ræða við brottfór frá landinu.
Við rennum því alveg blint í sjó-
inn um verðlag í Flugstöðinni þar
til við komum á staðinn. En hér er
sama gamla tuggan á ferðinni; verð-
lausar vörukynningar, og höfðað til
dómgreindarleysis og heilaþveg-
inna íslenskra ferðalanga.
DV
Halldór og sjón-
varpsfréttamenn
Dísa skrifar:
Ég er ánægð með aö formaður
Framsóknarflokksins skyldi loks
spurður nákvæmlega um Hölskyldu-
fyrirtækið sem hann á hlut í á
Hornafirði. Honum finnst það víst al-
gjör óþarfi að ljóstra því upp að hann
sé einn erfmgja kvóta sem metinn er
hátt á fjórða mUljarð króna. En
fréttamenn spurðu hann spjörunum
úr og það var þýðingarmikið að fá
þessar upplýsingar fram. Það er eng-
inn að væna Halldór um að starfa
óheiðarlega sem stjórnmálamaður
eða öfúnda hann af hans miklu eign-
um. Aðeins að kjósendur viti ná-
kvæmlega hver staðan er í málum
sem þessum. Burt með feluleikinn,
spilin á borðið likt og í Sjónvarpinu.
Enga Rolling
Stones hingað
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
í DV í dag, í dálkinum „Með og á
móti“ birtast ágæt ummæli eftir
Snorra í Betel varðandi væntanlega
heimsókn Rolling Stones til íslands.
Að hugsa sér að íslenskir aðUar
skuli bjóða þessa engUsaxnesku lág-
menningu velkomna til íslands!
Þetta er algjör öfugþróun og ekki í
anda alls þorra þjóðarinnar sem
stendur undir gjaldeyrissköpuninni.
Ég get aldrei fyrirgefið Mick Jagger
að hafa eyðilagt hjónaband Pierres
Trudeaus, fyrrum forsætisráðherra
Kanada. Við íslendingar ættum að
vera á hærra plani en þetta.
Sigur Sjálf-
stæðisflokksins
verðskuldaður
Ómar hringdi:
Margir undrast hvers vegna Sjálf-
stæðisflokkurinn sigrar æ ofan í æ
meö slíkum yfirburðum sem nú í
kosningunum. Ég er í engum vafa
um það. Ég tek dæmi af málflutningi
formanns Sjálfstæðisflokksins og
hinna flokkanna. Allir, aðrir en Dav-
íð Oddsson, hafa klifað á aumingja-
skap almennings, Margrét um fá-
tæktina sem er í raun tilbúningur,
Halldór einnig á því aö koma þurfi
til bjargar hinum og þessum og
leggja milljarða króna í aöstoð, sem
enginn fær- svo að lokum. Steingrím-
ur og Sverrir hamra á óréttlæti kvót-
ans, sem er þó það eina sem hægt er
að byggja á þrátt fyrir allt. Davíð
minnist ekki á aumingjaskapinn og
lítiOækkar þjóðina því ekki en held-
ur því á loft sem gert hefúr verið og
býður kjósendum að velja. Þeir hafa
valið. Valið stærsta flokkinn til
ábyrgðar enn og aftur.
Glannaakstur
jeppanna
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ég ek fremur hægt innanbæjar,
en má hvað eftir annað vara mig er
jeppi kemur á mótj mér, oft og tíðum
á miðri götunni og hraðinn svo mik-
iO að ógn stafar af og ökumaður oft-
ar en ekki í hrókasamræðum í far-
símanum. Nýlegt dauðaslys þar sem
jeppi ók á unga stúlku á gangbraut
sýnir að lögreglan má heldur betm-
vakna og sinna því eftirliti sem því
miður er í lágmarki. Og svo er ann-
að: Hvaða refsingu fær sá maður
sem ekur á vegfaranda á gangbraut?
Ég vona að slíkir ökumenn fái refs-
ingu þannig að þeir muni eftir og
verði síðan fyrirmynd annarra
glæfraökumanna.
Margir bíða
eftir íbúðum
Steindór Einarsson skrifar:
Það er stórfurðulegt að hér í
Reykjavík skuli á annað þúsund
manns biða eftir íbúðum hjá Öryrkja-
bandalaginu. Jafnvel í fjögur tO sex
ár. Og eftir félagsbústööum fyrir ör-
yrkja annað eins. Svo eru fluttir inn
tugir Kosovo-Albana og þá er tfl hús-
næði, næstum samdægurs. Það er
svo sem gott og blessað að þetta fólk,
sem mikið hefur þjáðst, fái hér hæli,
en vonandi taka yfirvöld við sér svo
að öryrkjar fái lika húsaskjól.