Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1999, Blaðsíða 32
*
^vtnna
-; „JyrifJit tö-liUlz
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Stj órnarmyndun:
Viðræður í dag
Formenn og varaformenn stjómar-
flokkanna hittust á fundi í gær þar
sem varaformönnum flokkanna, þeim
Geir H. Haarde og
Finni Ingólfssyni,
var falið að undir-
búa drög að mál-
efnaskrá nýrrar
ríkisstjórnar. „Við
Geir munum hitt-
ast í dag og fara
yfir hvernig við
ætlum að vinna
vinnuna. Annars
era viðræðurnar á
slíku frumstigi
enn þá að of
snemmt er að full-
yrða um hvort ég
er bjartsýnn á þær
eða ekki,“ sagði
Finnur Ingólfsson,
varaformaður
Framsóknar-
flokksins, þegar
DV ræddi við
hann i morgun.
Ljóst er að stjórnarmyndunarvið-
ræður munu að miklu leyti hvíla á
varaformönnum flokkanna, m.a.
vegna mikilla anna utanríkisráðherra
erlendis. Þingflokkur Samfylkingar-
innar samþykkti í gær að fela Mar-
gréti Frímannsdóttur, talsmanni
flokksins, umboð til stjóraarmyndun-
arviðræðna við Framsóknarflokk og
Vinstri- græna. Samfylkingin hefur
Lioðið Halldóri Ásgrímssyni forsætis-
ráðherrastöðu í ríkisstjóminni. -kjart
Finnur Ingólfs-
son.
Geir H. Haarde.
Varpstöðvar arnarins:
Enn vart
sinubruna
Sina hefur verið brennd í fleiri
hólmum við norðanverðan Breiða-
fjörðinn en hólmanum í landi Mið-
húsa sem sagt var frá í DV nýlega.
Náttúrufræðingar sem hafa eftirlit
með varpstöðum og viðkomu amarins
flugu yfir norðanverðan Breiðafjörð-
inn í vikunni urðu þessa varir.
Ólafur Einarsson, náttúrufræðing-
og stjórnarmaður í Fuglavemdarfé-
laginu, var spurður hvort landeigend-
ur á svæðinu ynnu skipulega að því
að hrekja örninn burt. Hann vildi
ekki svara þeirri spurningu en sagði í
samtali við DV í morgun að lífsskil-
yrði arnarins við norðanverðan
Breiðafjörð væru mjög ákjósanleg. í
því ljósi væri viðkoma arnarins á
þessu svæði óeðlilega lág. Að brenna
varpstaði er gamalkurmugt ráð til að
flæma fuglinn frá hreiðursstað. -SÁ
Bjarki frítt til íslands
Framkvæmdastjóri norska knatt-
spyrnufélagsins Brann sagði í Berg-
ens Tidende í morgun að Bjarki
Gunnlaugsson fengi að fara frítt frá
^laginu til íslensks liðs í sumar.
Þar með er í uppsiglingu kapphlaup
um Bjarka á næstu dögum. -VS
Ráðherrarnir Guðmundur Bjarnason og Þorsteinn Pálsson létu af embættum sfnum í gær. Ekki var að sjá á þeim
trega þar sem þeir sneru baki við stjórnmálavettvanginum til að snúa sér að rólegri störfum í þágu þjóðarinnar. Báð-
ir hafa þeir um áratugaskeið setið á Alþingi. Guðmundur er orðinn forstjóri íbúðalánasjóðs en Þorsteinn sendiherra
í London. DV-Hilmar Þór
Pétur Blöndal alþingismaður gefur dagpeningana sína:
Gaf 550 þús-
und í fyrra
- eftir að hafa greitt kostnað við 8 ferðir
„Ég hef haft það fyrir sið að gefa
dagpeningana mina til Hjálpar-
stofnunar kirkjtumar og þeir hafa
verið notaðir í að kaupa börn úr
þrældómi á Indlandi," segir Pétur
Blöndal alþingismaður. „í fyrra
fór ég átta sinnum til útlanda
vegna þingmannsstarfa minna og
eftir að hafa greitt allan kostnað
vegna ferðanna stóðu 550 þúsund
eftir sem Hjálparstofnunin fékk.
Mér reiknast til að 80 prósent af
dagpeningum okkar þingmanna sé
afgangs þegar allt hefur verið
greitt. Ég er alltaf með 60-70 þús-
und krónur í vasanum þegar ég
Pétur Blöndal aiþingismaður.
kem heim úr nokkurra daga ferð.“
Pétur segist berjast fyrir þvi að
þingmenn fái mannsæmandi laun
í samræmi við vinnuframlag sitt
en séu ekki í feluleik með auka-
sporslur alls konar og ferðáhvetj-
andi dagpeningakerfi.
„Best væri 'náttúrulega að þing-
mannslaunin lækkuðu niður í 10
þúsund krónur þvi þá hefði eng-
inn efni á því að vera á þingi nema
ég og þá réði ég öllu,“ segir Pétur
Blöndal sem ætlar að halda áfram
að berjast fýrir heilbrigðara og
gegnsærra launakerfi hjá hinu op-
inbera. -EIR
Veðrið á morgun:
Súld af
ogtil
Á morgun verður suðvestan-
gola eða kaldi og víða súld af og
til en þurrt á Austurlandi. Hiti
verður á bilinu 5 til 13 stig yfir
daginn, mildast austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 53
Siglufjörður:
Veldur aldrei
einn er tveir
deila
- segir bæjarstjórinn
„Það er farsælast fyrir aHa að
ræða þetta mál ekki frekar. Það
veldur aldrei
einn er tveir
defla,“ sagði Guð-
mundur Guð-
laugsson, bæjar-
stjóri á Siglu-
firði, um átökin
er urðu á kosn-
ingavöku á Siglu-
firði þegar Odd-
ný Hervör MöU-
er, eiginkona
Kristjáns MöUer, nýkjörins þing-
manns, féU í gólflð á Hótel Læk og
meiddi sig á þumalfingri. Fór hún
grátandi heim ásamt eiginmanni
sínum og bar að Haukur Ómarsson,
oddviti sjálfstæðismanna á Siglu-
firði, hefði hrint sér í gólfið. Sjálf-
stæðismenn halda því hins vegar
fram að þingmannsfrúin hafi ráðist
að Hauki að fyrra bragði og faUið
við.
„Hér er vor í lofti og vor í mann-
skapnum. Þetta lagast allt,“ sagði
Guðmundur bæjarstjóri. -EIR
Guðmundur
Guölauqsson.
Jeltsin rekur ráðherra:
Undirritun
Smugusamn-
ings samkvæmt
áætlun
„Ég var rétt í þessu að heyra þess-
ar fréttir og get
ekki á þessari
stundu metið
hvað þær þýða,“
sagði HaUdór Ás-
grímsson utan-
ríkisráðherra í
morgun um tíð-
indin sem bárust
frá Moskvu um
að Prímakov for-
sætisráðherra
hefði verið rek-
inn úr embætti af Jeltsín forseta.
Seinni hluta fóstudags hefst í Pét-
ursborg fundur utanríkisráðherra
Rússlands, Eystrasaltsríkjanna og
Norðurlandanna. „Samskipti rikj-
anna og samskipti á norðurslóð
verða til umfjöUunar og ástandið í
Júgóslavíu," sagði HaUdór í morg-
un. ísland, Noregur og Finnland eru
forystulönd í ýmsum veigamiklum
stofnunum Evrópu. „Þetta getur
orðið mjög mikilvægur fundur,"
sagði HaUdór Ásgrímsson í morgun.
Á fundinum er meiningin að und-
irrita Smugusamningana. -JBP
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ ÞINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
D
_j
O
I
D
-j
LU
>
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTWR FYRIR HÓPA
D
>
O
z
<
<s\