Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 Útlönd Stuttar fréttir i>v Bílstjóri Díönu var njósnari Breski njósnarinn fyrrverandi Richard Tomlinson heldur því fram í sjónvarpsviðtali að bíl- stjóri Díönu prinsessu í hinstu ökuferð hennar í París hafi verið á mála hjá bresku leyniþjónust- unni. Þá segir Tomlinson, sem var rekinn árið 1995, að leyniþjón- ustan hafi haft uppi áform um að ráða Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta af dögum. Gögn þar um megi enn finna í skjölum leyniþj ónustunnar. Sergei Stepasjín, forsætisráðherraefni Jeltsíns. Rússlandsforseti kom til Kremlar í morgun þar sem greiða átti atkvæði á þingi um tilnefningu Stepasjíns. Símamynd Reuter Heitir baráttu gegn efnahagsbrotum Allt benti til þess 'í morgun að þrjár stærstu fylkingamar í neðri deild rússneska þingsins, þar á meðcd kommúnistar, myndu styðja tilnefningu Sergeis Stepasjíns í embætti forsætisráðherra. Stepa- sjín tilkynnti í gær að hann hygöist ekki gera umtalsverðar breytingar á ríkisstjórninni. Hann hét því jafnframt að berjast gegn efnahags- brotum. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, tilnefndi Stepasjín í forsætisráð- herraembættið eftir að hafa rekið Prímakov. Óvissa ríkti á ný igær um heilsu Jeltsins þar sera hann virtist hafa aflýst fundi með forsætisráðherra Spánar, Jose Maria Aznar. Jeltsín var á sveitasetri sínu utan við Moskvu. Enginn vildi kannast við að forsetinn hefði ætlað að hitta Aznar þó svo að starfsmenn hans hefðu fullyrt það á mánudaginn. Morðinginn féll fyrir eigin hendi Þýskur karlmaður sem grunað- ur var um að hafa myrt fimra manns í Þýskalandi og Frakk- landi á sunnudag svipti sig lífi í gær þegar lögregla réðst til inn- göngu í hótelherbergi hans í Lúx- emborg. Saksóknari í Lúxemborg sagði að þýski morðinginn, Gúnther Ewen, hefði skotið sig í höfuðið þegar lögreglan var að brjóta nið- ur hurðina á herbergi hans. Ewen hatöi verið leitað í Frakklandi, Þýskalandi og Lúxemborg frá því á sunnudag. Það var hótelstarfs- maður sem bar kennsl á hann og lét lögregluna vita. Effú ert 12 áta eðayngri er samkeppnin atti appskriftir íMatreictslubók Tígra eitthvaðfjrirficj Tígri er Hiikidmatmabur og kökur elskar fiauu. Tíejri biiurykkur að seuda sér uppskriftir ab mat oj kökum. Tíyra þcettigott aí fd eiufaUar eu jóðar uppskriftir scm krakkar cijaaubrelt melab fara eftir. Allirsem scnda iuu uppskriftir fá riburkeuuiujarskja!frá Tígra. 50 uppskriftir veria valMar op cjcfuar útí eiuni bók, Matreihlubók Tícjra. Þeirsem eicja uppskrift í bókiuuieicja vou á cjlcesilecjuM víuuíucjum. Skilafrestur er til 1. ácjúst. Scuáiit til: Krakkaktitbbs t>V, Þverkotli 11, 10S Reykjarik. Merkt: l/ppskríjt & Hafna Sea Shepherd Ýmis umhverfisvemdarsamtök og færeyskir þingmenn segja dönsk fyrirtæki ekki þurfa að ótt- ast vegna hótana Sea Shepherdsamtakanna. Samtökin hengi bakara fyrir smiö með því að ógna Ðönum vegna grinda- dráps Færeyinga. Ólga vegna afsagnar Ólga er nú í Kongressflokknum á Indlandi vegna afsagnar Soniu Gandhi úr leið- togaembætti flokksins. Fjór- ir forsætisráð- herrar ríkja undir stjórn flokksins af- hentu Gandhi afsagnarbréf sín. Kváöust þeir ekki sjá tilgang í að gegna áfram embætti leiddi hún ekki flokkinn. Gandhi sagði af sér eftir fullyrðingar forystu- manna flokksins um að hún væri ófær um að stjórna vegna erlends uppruna og reynsluleysis. Stjórnarkreppa Stjómarkreppa ríkir í Hollandi eftir að hægriflokkurinn VVD, sem er í samsteypustjórn lands- ins, greiddi atkvæði gegn tillögu stjórnarinnar um stjórnarskrár- breytingu. Búast við óeirðum Yfirgnæfandi meirihluti Indónesa, eða 87 prósent, telur að óeirðir fylgi þingkosningunum 7. júní næstkomandi. Vilja aukið byssuöryggi Öldungadeild Bandarikjaþings greiddi í gær atkvæði með tillögu um að gikklæsingar eða örugg geymslubox yrðu seld með öllum skammbyssum. Reyndi sjálfsmorð Lögreglan í Pakistan greindi frá því í gær að Zardari, eiginmaður stjómarand- stöðuleiðtogans Benazir Bhutto, hefði reynt að svipta sig lífi í fangaklefa sín- um. Bhutto vís- aði fréttinni á bug og sakaði lögregluna um morðtilraun. Bhutto og eiginmaður hennar voru fyrir mánuði dæmd í fimm ára fangelsi fyrir fjármálaspill- ingu. Bhutto var stödd í London er dómurinn var kveðinn upp og dvelur þar enn. Loftárásirnar á Júgóslavíu handahófskenndar: Eins og í Víetnam Bandarísk stjórnvöld vita ekki gegn hvaða skotmörkum þau eiga að beina loftárásum sínum á Júgóslavíu og þær em gerðar af jafnmiklu handahófi og í Víetnam. Þetta segir bandariski hershöfð- inginn Chuck Connors sem stjóm- aði loftárásum Bandaríkjamanna á írak i Persaflóastríðinu 1991. „Ég var í Víetnam þar sem sams konar aðferðum var beitt og í Kosovo og ég tók þátt í Persaflóa- stríðinu þar sem við beittum mikl- um vopnabúnaði til að þvinga óvin- inn til að beygja sig að vilja okkar,“ sagði Connors á fundi með frétta- mönnum í gær. Hann sagði að bandarísk stjóm- völd yrðu að gera það upp við sig hverju þau vildu ná fram í Júgóslavíu og hafði uppi efasemdir um að hægt yrði að fá Albani og Serba til að búa saman í sátt og samlyndi. Sendimenn Bandaríkjanna og Rússlands áttu erfiðan fund í Martti Ahtisaari Finnlandsforseti ræðir við sendimenn frá Was- hington og Moskvu um Kosovo. Helsinki í gær þar sem þeir reyndu að finna lausn á átökunum í Kosovo. Viðræðumar stóðu í sjö klukkustundir og verður þeim fram haldið i dag. Loftárásunum á Júgóslavíu var fram haldiö í gærkvöld og var flug- skeytum meðal annars skotið að út- hverfum höfuðborgarinnar Belgrad. Pierre Moscovici, ráðherra mál- efna Evrópu í frönsku ríkisstjóm- inni, sagði í gær að Bretar væru farnir að slá af kröfum sínum um að landher yrði sendur til Kosovo. Hann ítrekaði við sama tækifæri að Frakkar væra andvígir landhem- aði. Bretar hafa verið hörðustu tals- menn landhemaðar í Kosovo en fengið dræmar undirtektir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.