Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1999, Blaðsíða 32
V I K I N ( L#TT« FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ1999 Þingflokksherbergi: Þaö á enginn flokkur herbergi - segir Sighvatur ■jf- „Mér líst ekkert á það, það er mín persónulega skoðun, en það er stjórn- ar Alþingis að ákveða þetta,“ sagði Finnur Ing- ólfsson í morgun þegar DV spurði hann hvernig hon- um litist á að gefa Samfylkingunni eftir þingflokks- herbergi Fram- sóknarflokksins, svo sem krafa er um. Hann sagði að herbergið sem hef- ur verið vistar- vera þingflokks Framsóknarflokks um áratugaskeið. „Það á enginn þingflokkur þing- flokksherbergi. Samfylkingin fer einfaldlega þess á leit að fá herbergi sem samsvarar stærð hennar," sagði Sighvatur Björgvinsson. -SÁ Eldur á verk- stæöi m. Eldur kom upp að Dalsbraut 1 á Ak- ureyri snemma í morgun. Húsnæðið er verkstæði Byggingafélagsins Hyrnu hf. Þegar slökkvilið kom á vett- vang logaði krossviðarplata í glugga. Einnig hafði kviknað í rusli fyrir neð- an gluggann. Eldurinn var ekki mikill og slökkviliðsmenn voru ekki lengi að ráða niðurlögum hans og rannsaka nú hver upptökin voru. Engan sakaði í eldinum. -hvs Finnur Ingólfs- son. Sighvatur Björg- vinsson. Félagsmálaráðherra: Fór meö vísur á gjörgæslunni Páll Pétursson félagsmálaráðherra er á góðum batavegi eftir vel heppn- aða skurðaðgerð hjá Helga H. Sig- ____ urðssyni skurð- lækni, æðaflutn- . i, ing í kviðarholi, sem fram fór á þriðjudag. Ráð- herrann var á gjörgæslu í gær- kvöld en lék á als oddi. í hjartaað- gerð kom í ljós að nauðsynlegt var að skipta um hluta ósæðar, aðgerð óháð hinni fyrri. Sigrún Magnúsdóttir borgarfull- trúi, eiginkona Páls, sagði í morgun að Páll hefði verið í besta lagi og húmorinn á réttum stað. Þegar talað >var um útlitið á ráðherranum hefði hann farið með vel þekkta vísu um út- litið og innrætið. -JBP Páll Pétursson. Selma Björnsdóttir heldur utan á sunnudagsmorgun til Israels til þess að keppa fyrir íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Nú standa yfir stífar æfingar til þess að stilla saman strengi. Þessi mynd var einmitt tekin í gær þar sem verið var að æfa bakraddir og dansspor. DV-mynd Pjetur Allt fast í grunni Nýja bíós í Lækjargötu: Verstu spár ræst „Það er ljóst aö menn hafa ekki unnið heimavinnuna sína. Þama situr allt pikkfast og verstu spár tæknimanna okkar hafa ræst,“ sagði Þórður Ólafur Búason, yfir- verkfræðingur Reykjavíkurborgar, um lóðina í Lækjargötu þar sem Nýja bíó stóð eitt sinn. „Mistökin vom þau að leyfa niðurrif hússins áður en búið var að ganga endan- lega frá teikningum að nýju húsi sem myndi falla að skipulagi. Nú hafa nýir eigendur að byggingar- rétti á lóðinni óskað eftir breyting- um á nýtingu sem falla ekki að gild- andi skipulagsreglum." Þama á yfirverkfræðingurinn við hugmyndir eigenda um að víkja frá því skilyrði að tvær efstu hæðir nýrrar byggingar yrðu gerðar að íbúðarhúsnæði., Eigendurnir hafa óskað eftir því að fá að nýta hæðirn- ar tvær á arðvænlegri hátt og þá sem atvinnuhúsnæði. Þá hafa þeir einnig óskað eftir því að fá að stækka bygginguna. Það var Bónus sem keypti lóð Nýja bíós af Reykjavíkurborg fyrir síðustu áramót og fékk leyfi til að rifa bmnna byggingu sem þar stóö. í viðtali við DV um miðjan janúar- Veðrið á morgun: Léttskýjað fyrir norðan Á morgun verður suðaustan- kaldi og skúrir sunnan og vestan til en hæg suðlæg átt og léttskýj- að á Norðurlandi. Hiti verður á bilinu 6 til 13 stig, hlýjast á Norð- austurlandi síðdegis. Veöriö í dag er á bls. 45. - segir yfirverkfræðingur borgarinnar ileimskur sem getur ekki skipt um skoðun Frétt DV frá 7. maí um eigendaskipti á lóðinni við Lækjargötu. mánuð sagði Jóhannes Jónsson í Bónusi að húsið yrði horfið 7. febr- úar og nýtt húst tilbúið til notkunar 1. september. „Við tökum tvær efstu hæðimar undir íbúðir, annað verð- ur fyrir matvöra," sagði Jóhannes í Bónusi orðrétt. Síðar sagði hann að það væri heimskur maður sem ekki gæti skipt um skoðun en þá hafði Bónus hætt við allar fyrirætlanir um að selja matvöru við Lækjargötu og selt Smáralind lóðina og þar á bæ em menn með ráðagerðir um að opna tískuvömverslun í nýju húsi þegar það loks rís. Það var svo Baugur sem sendi inn umsókn um byggingarleyfi til byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar 5. maí en öll þau fyrirtæki sem hér era nefnd em ná- tengd innbyrðis og að hluta til í eigu sömu aðila. „Við höfum ekki enn beitt dag- sektum vegna tcifa sem orðið hafa þarna í Lækjargötunni enda verður ákvörðun um það að koma frá borg- arstjórn," sagði Þórður Ólafur Búa- son, yfirverkfræðingur Reykjavík- urborgar. -EIR Formaður skipulagsnefndar: Dagsektir neyðarúrræði „Við beitum ekki dagsektum nema í ýtmstu neyð. Hér er um mjög sérstætt mál að ræða vegna þess að lóðin skipti snarlega um eigendur," sagði Guðrún Ágústs- dóttir, formaður skipulagsnefndar Reykjavikurborgar, um tafir á framkvæmdum á lóð Nýja bíós við Lækjargötu. „Ég get hins veg- ar upplýst að skipulagsnefnd hef- ur samþykkt óskir nýrra eigenda um breytingar á fyrirhugaðri byggingu. Verslun í kjallara hefur verið samþykkt, svo og hækkun lofthæðar á 1. og 2. hæð. Þá sam- þykktum við einnig að tvær efstu hæðirnar yrðu nýttar sem at- vinnuhúsnæði en ekki fyrir íbúðir. Ytra út- lit hússins er svo til nánari skoðunar hjá okkur," sagði Guðrún Ágústsdóttir og bætti því við að nýjum lóð- areigendum væri ekkert að vanbúnaði að halda áfram hönn- unarvinnu og framkvæmdum á lóðinni. -EIR Guðrún Ágústs- dóttir. SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI l/PPSKRIFT PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI SÍMI 581 1010 SPENNANDI KOSTUR FVRIR HÓPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.