Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 1
Ekki vera
lestarstjóri
Um þessa helgi má vænta þess
að margir bregði sér í bíltúr, lengri
eða skemmri, og litist um í land-
inu, Það er vel. Til þess eru bílarn-
ir að nota þá og fallegt er landið.
Þess er að vænta að menn aki
skynsamlega og muni að hámarks-
hraði er ekki sama og skyldugur
hraði. Vert er jafnframt að minna
á að óskynsamlegt og hættulegt er
að aka undir viðteknum umferðar-
hraða þannig að langar raðir
myndist sem leiða til óskynsam-
legrar framúrtöku. Sá sem verður
var við að hann er orðinn lestar-
stjóri ætti, ef hann endilega viil
eða þarf að aka svona hægt, að fara
út á útskot og hleypa röðinni fram
úr sér oft og þétt.
Einnig er rétt að undirstrika að
sá sem dregur uppi bíl sem ekið er
óeðlilega hægt ætti að nota fyrsta
nýtilegan möguleika til að komast
fram úr honum. Langar raðir á eft-
ir snigli fara yfirleitt ekki að
myndast fyrr en þeir sem sætta sig
við snigilhraðann eru orðnir einn
eða tveir á eftir lestarstjóranum.
Það er yflrleitt lítið mál að kom-
ast fram úr einum bíl, jafnvel
tveimur. En þegar þeir eru orðnir
þrír i röð eru málin orðin verri -
og viðsjárverðari.
Um það má mjög deila hversu
skynsamlegur sá hámarkshraði er
sem íslendingar þurfa að búa við.
Sem betur fer gera lögregluyfirvöld
almennt sér þetta ljóst og taka tillit
tO aðstæðna áður en ökumenn eru
stöðvaðir fyrir „hraðakstur". Þó
eru alltaf til einstaka refsivendir
réttlætisins sem einblína á bókstaf-
inn svo það er betra fyrir budduna
og góða skapið að halda sig sem
næst mörkum.
Höfum bílinn í lagi og ökum
skynsamlega - góða ferð.
-SHH
Lágur og rennilegur, með einkenni sportbílsins - Ferrari 355.
Mynd DV-bílar GVA
ri 355 GTS Berlinetta:
sportbíll
Einn þeirra bíla sem vöktu
hvað mesta athygli á nýaf-
staðinni sportbílasýningu í
Laugardalshöll var Ferrari
355 GTS Berlínetta, hrein-
ræktaður sportbíll með 3,5
lítra V8 vél, 381 ha. Bíllinn
varfenginn að lánifrá
Þýskalandi og er nú farinn
heim til sín aftur, en DV-bíl-
ar fengu hann lánaðan dag-
stund.
Bls.34
Kynningarakstur Aifa 156 2,0 Twin Spark Sjelespeed
ivieo girsKipimgii
t
tæknin úr Formúlu 1 komin til almenning ;nota
Meö því að þróa upp tæknina fyrir raf-
stýröa gírskiptingu úr Formúlu 1 bílun-
um og gera hana nothæfa fyrir almenn-
ing hefur Aifa Romeo komið með
áhugaverða nýjung: Nú nota menn
þumalfingurna til að skipta um gír án
þess að taka hendurnar af stýrinu.
Kúplingsfetill fyrirfinnst heldur ekki
lengur í gólfinu og þó er þetta ekki
sjálfskipting í þeim skilningi sem áður
var heldur er Alfa Romeo 156 Selespeed
búinn hefðbundnum 5 gíra gírkassa og
kúplingu. Það er bara rafbúnaður sem
sér um skiptin eftir fyrirsögn öku-
mannsins.
Að ytra útliti er Alfa 156 Sel-
espeed um flest nauðalfk
hefðbundna bílnum - bara
með öðruvísi hjól.
Hilmar Þór
Hvar er best ad gera bílakaupin?
VW Golf 1400 Basicline, nýskráður
08/98, ekinn 7.000 km, rauður, 3 dyra,
bsk. Verð 1.340.000
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
Nissan VWPatrol 2800 dísil, nýskráður
06/98, ekinn 22.000 km, grænn, bsk.
Verð 3.380.000
MMC Pajero 3500 SW, nýskráður
12/94, ekinn 80.000 km, grár, ssk.
Verð 2.910.000
MMC Carisma 1800 GDI, nýskráður
01/98, ekinn 30.000 km, grár, bsk.
Verð 1.600.000
SuzukiVitara 2000 dísU, nýskráður 07/98, VW Passat 1800 turbo dísil, skutbíll,
ekinn 10.000 km, grænn, ssk., nýskráður 01/99, ekinn 14.000 km,
Verð 2.200.000 blár. Verð 2.210.000
Velkomin á Laugaveg Í74 og www.bilathing.is
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 og laugard. kl. 12-16
BÍLAÞINGÍEKLU
A/t/Wr e-íH' t notvZuM btlurvil
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is •