Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999
Vélskóli íslands
Innritun á haustönn 1999
Umsóknir ásamt gögnum um fyrra nám verða að hafa
borist skrifstofu skólans fyrirlO. júní nk.Kennsla fer
fram eftir áfangakerfi. Nemendur, sem hafa stundað
nám við aðra framhaldsskóla, fá nám sitt metið að svo
miklu leyti sem það fellur að námi í Vélskóla
Islands.Vélstjórnarbraut: 011 fjögur réttindastig.
Inntökuskilyrði í vélstjórnarbraut er lokið
grunnskólapróf með tilskildum árangri.Almenn braut:
Eins árs nám sem sérstaklega er ætlað þeim sem ekki
hafa náð tilskildum árangri í grunnskólaprófi.
Námið tekur eitt ár og lýkur með prófi sem heimilar
nám á brautum framhaldsskóla og gefur jafnframt
vélvarðarréttindi.
Umsóknareyðuhlöð og nánari upplýsingar fást
á skrifstofu skólans kl. 8 til 16 alla virka daga.
Sími 551 9755, fax 552 3760 • Netfang: vsi@isment.is
Veffang: htttp://www.velskoli.is
Póstfang: Vélskóh Islands, Sjómannaskólanum
v/Háteigsveg 105 Reykjavík
Skólameistari
INNKAUPAS TOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
F rlkLckjuvegi 3 - 101 Re/kjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rirus.rvk.is
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
viðhald hita- og hreinlætiskerfa í 16 leikskólum í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar á kr. 1.000 frá kl. 13.00 25. maí
1999. Opnun tilboða: 1. júní 1999, kl. 14.00, á sama stað.
BGD 75/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í gerð mal-
bikaðra gangstíga ásamt ræktun víðs vegar í borginni. Verkið nefnist:
Gangstígar 1999 - Útboð II.
Helstu magntölur eru:
Lengd stíga: u.þ.b. 3.500 m
Flatarmál gangstíga: u.þ.b. 9.500 m2
Ræktun: u.þ.b. 8.000 m2
Lokaskiladagur verksins er 15. okt. 1999. Útboðsgögn fást á skrifstofu
okkarfrá og með 25. maí 1999 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun
tilboða: 2. júní 1999, kl. 11.00, á sama stað.
GAT 76/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfaran-
di verk: FÁKSSVÆÐI, jarðvinna og yfirborðsfrágangur. Helstu magntölur eru:
Gröftur: 6.600 m2
Fylling: 8.700 m2
Burðarlag: 57.200 m2
Lagnir að svelgjum: 325 m
Svelgir: 17 stk.
Formun áhorfendamanar: 17.500 m2
Þökulagning og sáning: 29.100 m2
Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkarfrá og með 26. maí 1999 gegn
10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 10. júní 1999, kl. 11.00, á
sama stað.
GAT 77/9
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
lóðarframkvæmdir, 1. áf., við Breiðholtsskóla.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 2. júní 1999, kl. 14.00, á sama stað.
BGD 78/9
Útlönd
Björgunarmaður ber aldraða konu í bænum Neustadt í Þýskalandi um borð
í þyrlu í gær eftir að stífla f Dóná brast. Ástandið var víða alvarlegt í
Bæjaralandi og Austurríki í gær vegna flóða í kjölfar úrhellis. Vitað var um
sex dauðsföll í gær af völdum flóðanna. Símamynd Reuter
Serbar mótmæla stríðinu í Kosovo:
Leiðtogar
handteknir
Sveitir serbneska innanríkisráðu-
neytisins handtóku í gær nokkra
leiðtoga svokahaðs borgaraþings í
bænum Cacak. Voru þeir sakaðir
um að hafa tekið þátt í ólöglegum
fundi. Friðarhreyfmgin varð til í
síðustu viku þegar borgarstjórinn í
Cacak, Ilic, sem lengi hefur gagn-
rýnt Milosevic Júgóslavíuforseta,
setti þingið og hvatti til þess að
árásum NATO yrði hætt og að allir
Albanar sneru heim. Ilic fer nú
huldu höfðu og leitar lögreglan
hans.
Mótmæli gegn stríðinu í Kosovo
fara nú vaxandi í Serbíu. Þúsundir
íbúa borga og bæja hafa flykkst út á
götur og torg og krafist þess að her-
menn verði kallaðir heim frá
Kosovo. Þetta kom fram í blaðinu
Vijesti, sem er óháð, í gær. Fjöl-
mennustu mótmælin voru í Cacak
og Krusevac. Heimtaði mannfjöld-
inn að fá syni sína heim aftur úr
stríðinu.
Stjómarandstöðuflokkamir tveir
í Serbíu hvöttu í gær stjórn
Júgóslavíu til að taka upp viðræður
á ný til þess að stöðva stríðið og
árásir NATO.
Sergio Vieira de MeUo frá Sam-
einuðu þjóðunum, sem fór fyrir 13
Serbnesk yfirvöld fullyrða að um
100 fangar hafi látist og 200 særst í
árásum NATO á fangelsi í Kosovo.
manna sendinefnd tU Kosovo, segir
ástandið miklu verra en búast hefði
mátt við. Hann sagði sendinefndina
hafa séð nægUega mikið tU að geta
staðfest að um þjóðemishreinsun
hefði verið að ræða. Knýjandi þörf
væriá aðstoð. De MeUo sakar Serba
um að hindra hjálparstarfsemi.
Stuttar fréttir i>v
Olíuleki
Olía hefur lekið frá skemmti-
ferðaskipinu Sun Vistas sem sökk
undan strönd Malasíu í síðustu
viku. AUir sem um borð
voru.björguðust.
Stjórnarmyndun
Ehud Barak, nýkjörinn forsæt-
isráðherra ísraels, hóf í gær við-
ræður við
nokkra mið-
flokka sem bú-
ist er við að
verði með í
stjóm hans.
Barak viU hafa
eins breiða
stjóm og unnt
er og er jafnvel gert ráð fyrir að
hann bjóði til viðræðna að
minnsta kosti einum af trúar-
flokkunum á hægri kantinum
sem studdu keppinaut hans,
Benjamin Netanyahu, í kosning-
unum í síðustu viku.
Fleiri lík í sýru
Lögreglan í Snowtown í Ástral-
íu hefur fundið líkamsleifar að
minnsta kosti átta manna í Uát-
um með sýra í yfirgefinni banka-
hvelfingu. Einnig fundust líkams-
leifar í plastpokum í garði við
bankann._
Herstjórn fer frá
Yfirmenn hersins í Nígeríu tU-
kynntu í gær að þeir segðu af sér
embættum sínum þegar borgara-
leg stjórn tæki við næstkomandi
laugardag.
Brunnu inni í lest
Fjórir stuðningsmenn ítalska
fótboltaliðsins Salemitana
brannu tU bana í gær í lestar-
vagni á leið heim frá úrslitaleik
liðs síns. FótboltabuUur höfðu
verið með ólæti í lestinni.
Gaddafi neitar
Yfirvöld í Líbýu hafa vísaö á
bug frétt í Sunday Times um að
Gaddafi Líbýuleiðtogi hafi sjálfur
fyrirskipað að Pan Am farþega-
þotunni, sem fórst yfir Lockerbie
í Skotlandi 1988, yrði grandað.
Lýgur aldrei
Forseti Indónesíu, B.J. Habibie,
sagði í gær aö fyrirrennari hans,
Suharto, sem
neitar að hafa
þénað mUljarða
doflarða á óheið-
arlegan hátt,
segði aldrei
ósatt. Stjómar-
andstaðan hefur
gagnrýnt náin
tengsl flokks Habibies, Golkar-
flokksins, og Suhartos. Kosið
verður til þings í Indónesíu 7.
júní. Forsetakosningar fara fram í
haust. Leiðtogi Golkarflokksins
útilokar ekki að endurskoða
hvort Habibie verði áfram for-
setaefni flokksins.
Öcalan í glerbúri
Lögmenn kúrdíska PKK-leið-
togans AbduUahs Öcalans gagn-
rýna þá ákvörðun tyrkneskra yf-
irvalda að láta hann sitja í gler-
búri þegar réttað verður yfir hon-
um. Öcalan muni ekki heyra í lög-
mönnum sínum.
24 síðna aukablað um jeppa og mótorhjól fylgir DV á morgun.
Meðal efnis: Upplýsingar um alla aldrifsbíla sem í boði eru
á íslenskum markaði ásamt hliðstæðum upplýsingum um mótorhjól.