Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999 Vélskóli íslands Innritun á haustönn 1999 Umsóknir ásamt gögnum um fyrra nám verða að hafa borist skrifstofu skólans fyrirlO. júní nk.Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemendur, sem hafa stundað nám við aðra framhaldsskóla, fá nám sitt metið að svo miklu leyti sem það fellur að námi í Vélskóla Islands.Vélstjórnarbraut: 011 fjögur réttindastig. Inntökuskilyrði í vélstjórnarbraut er lokið grunnskólapróf með tilskildum árangri.Almenn braut: Eins árs nám sem sérstaklega er ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskildum árangri í grunnskólaprófi. Námið tekur eitt ár og lýkur með prófi sem heimilar nám á brautum framhaldsskóla og gefur jafnframt vélvarðarréttindi. Umsóknareyðuhlöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans kl. 8 til 16 alla virka daga. Sími 551 9755, fax 552 3760 • Netfang: vsi@isment.is Veffang: htttp://www.velskoli.is Póstfang: Vélskóh Islands, Sjómannaskólanum v/Háteigsveg 105 Reykjavík Skólameistari INNKAUPAS TOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR F rlkLckjuvegi 3 - 101 Re/kjavík-Sími 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang: isr@rirus.rvk.is UTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í viðhald hita- og hreinlætiskerfa í 16 leikskólum í Reykjavík. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar á kr. 1.000 frá kl. 13.00 25. maí 1999. Opnun tilboða: 1. júní 1999, kl. 14.00, á sama stað. BGD 75/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í gerð mal- bikaðra gangstíga ásamt ræktun víðs vegar í borginni. Verkið nefnist: Gangstígar 1999 - Útboð II. Helstu magntölur eru: Lengd stíga: u.þ.b. 3.500 m Flatarmál gangstíga: u.þ.b. 9.500 m2 Ræktun: u.þ.b. 8.000 m2 Lokaskiladagur verksins er 15. okt. 1999. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkarfrá og með 25. maí 1999 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 2. júní 1999, kl. 11.00, á sama stað. GAT 76/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfaran- di verk: FÁKSSVÆÐI, jarðvinna og yfirborðsfrágangur. Helstu magntölur eru: Gröftur: 6.600 m2 Fylling: 8.700 m2 Burðarlag: 57.200 m2 Lagnir að svelgjum: 325 m Svelgir: 17 stk. Formun áhorfendamanar: 17.500 m2 Þökulagning og sáning: 29.100 m2 Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember 1999. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkarfrá og með 26. maí 1999 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 10. júní 1999, kl. 11.00, á sama stað. GAT 77/9 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í lóðarframkvæmdir, 1. áf., við Breiðholtsskóla. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 2. júní 1999, kl. 14.00, á sama stað. BGD 78/9 Útlönd Björgunarmaður ber aldraða konu í bænum Neustadt í Þýskalandi um borð í þyrlu í gær eftir að stífla f Dóná brast. Ástandið var víða alvarlegt í Bæjaralandi og Austurríki í gær vegna flóða í kjölfar úrhellis. Vitað var um sex dauðsföll í gær af völdum flóðanna. Símamynd Reuter Serbar mótmæla stríðinu í Kosovo: Leiðtogar handteknir Sveitir serbneska innanríkisráðu- neytisins handtóku í gær nokkra leiðtoga svokahaðs borgaraþings í bænum Cacak. Voru þeir sakaðir um að hafa tekið þátt í ólöglegum fundi. Friðarhreyfmgin varð til í síðustu viku þegar borgarstjórinn í Cacak, Ilic, sem lengi hefur gagn- rýnt Milosevic Júgóslavíuforseta, setti þingið og hvatti til þess að árásum NATO yrði hætt og að allir Albanar sneru heim. Ilic fer nú huldu höfðu og leitar lögreglan hans. Mótmæli gegn stríðinu í Kosovo fara nú vaxandi í Serbíu. Þúsundir íbúa borga og bæja hafa flykkst út á götur og torg og krafist þess að her- menn verði kallaðir heim frá Kosovo. Þetta kom fram í blaðinu Vijesti, sem er óháð, í gær. Fjöl- mennustu mótmælin voru í Cacak og Krusevac. Heimtaði mannfjöld- inn að fá syni sína heim aftur úr stríðinu. Stjómarandstöðuflokkamir tveir í Serbíu hvöttu í gær stjórn Júgóslavíu til að taka upp viðræður á ný til þess að stöðva stríðið og árásir NATO. Sergio Vieira de MeUo frá Sam- einuðu þjóðunum, sem fór fyrir 13 Serbnesk yfirvöld fullyrða að um 100 fangar hafi látist og 200 særst í árásum NATO á fangelsi í Kosovo. manna sendinefnd tU Kosovo, segir ástandið miklu verra en búast hefði mátt við. Hann sagði sendinefndina hafa séð nægUega mikið tU að geta staðfest að um þjóðemishreinsun hefði verið að ræða. Knýjandi þörf væriá aðstoð. De MeUo sakar Serba um að hindra hjálparstarfsemi. Stuttar fréttir i>v Olíuleki Olía hefur lekið frá skemmti- ferðaskipinu Sun Vistas sem sökk undan strönd Malasíu í síðustu viku. AUir sem um borð voru.björguðust. Stjórnarmyndun Ehud Barak, nýkjörinn forsæt- isráðherra ísraels, hóf í gær við- ræður við nokkra mið- flokka sem bú- ist er við að verði með í stjóm hans. Barak viU hafa eins breiða stjóm og unnt er og er jafnvel gert ráð fyrir að hann bjóði til viðræðna að minnsta kosti einum af trúar- flokkunum á hægri kantinum sem studdu keppinaut hans, Benjamin Netanyahu, í kosning- unum í síðustu viku. Fleiri lík í sýru Lögreglan í Snowtown í Ástral- íu hefur fundið líkamsleifar að minnsta kosti átta manna í Uát- um með sýra í yfirgefinni banka- hvelfingu. Einnig fundust líkams- leifar í plastpokum í garði við bankann._ Herstjórn fer frá Yfirmenn hersins í Nígeríu tU- kynntu í gær að þeir segðu af sér embættum sínum þegar borgara- leg stjórn tæki við næstkomandi laugardag. Brunnu inni í lest Fjórir stuðningsmenn ítalska fótboltaliðsins Salemitana brannu tU bana í gær í lestar- vagni á leið heim frá úrslitaleik liðs síns. FótboltabuUur höfðu verið með ólæti í lestinni. Gaddafi neitar Yfirvöld í Líbýu hafa vísaö á bug frétt í Sunday Times um að Gaddafi Líbýuleiðtogi hafi sjálfur fyrirskipað að Pan Am farþega- þotunni, sem fórst yfir Lockerbie í Skotlandi 1988, yrði grandað. Lýgur aldrei Forseti Indónesíu, B.J. Habibie, sagði í gær aö fyrirrennari hans, Suharto, sem neitar að hafa þénað mUljarða doflarða á óheið- arlegan hátt, segði aldrei ósatt. Stjómar- andstaðan hefur gagnrýnt náin tengsl flokks Habibies, Golkar- flokksins, og Suhartos. Kosið verður til þings í Indónesíu 7. júní. Forsetakosningar fara fram í haust. Leiðtogi Golkarflokksins útilokar ekki að endurskoða hvort Habibie verði áfram for- setaefni flokksins. Öcalan í glerbúri Lögmenn kúrdíska PKK-leið- togans AbduUahs Öcalans gagn- rýna þá ákvörðun tyrkneskra yf- irvalda að láta hann sitja í gler- búri þegar réttað verður yfir hon- um. Öcalan muni ekki heyra í lög- mönnum sínum. 24 síðna aukablað um jeppa og mótorhjól fylgir DV á morgun. Meðal efnis: Upplýsingar um alla aldrifsbíla sem í boði eru á íslenskum markaði ásamt hliðstæðum upplýsingum um mótorhjól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.