Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999
Spurningin
Hver er drauma-
bíllinn þinn?
Hulda Guömundsdóttir launa-
fulltrúi: Land Cruiser-jeppi.
Helgi Jóhannesson ellilaunaþegi:
Þaö er Volvo. Þeir eru svo traustir.
Ólafur Magnús Ólafsson: Bíll á
þremur hjólum frá því um 1930.
Jón Pálsson nemi: Daihatsu.
Eva Rós Valgarðsdóttir nemi:
Lada sport.
Anna Rós Lárusdóttir nemi: Stóri
guli bíllinn (strætó).
Lesendur
Launaskrið á
fulla ferð
- Reykjavíkurborg ríöur á vaöið
Það var ekki á vitorði margra að borgarfulltrúar og embættismenn í Reykja-
vík eða öðrum stærstu bæjarfélögunum fylgi launahækkun til ráðherra og
þingmanna. Frá borgarstjórnarfundi.
Birgir Ólafsson skrifar:
Eins og öllum er kunnugt dæmdi
Kjaradómur þingmönnum, ráðherr-
um og fleiri embættismönnum rikis-
ins launahækkun fyrir fáum dögum.
Þetta var upplýst daginn eftir kosn-
ingar. Nú hefur Réykjavíkurborg
riðið á vaðið og ætlar að úthluta
borgarfulltrúum og nefndamönnum
30% launahækkun. Ég veit ekki til
að Kjaradómur hafl dæmt embættis-
mönnum borgarinnar 30% launa-
hækkun. Allt í einu er gripið til
þeirra útskýringa að laun kjörinna
fulltrúa Reykjavíkurborgar séu „föst
prósenta af þingfararkaupi".
Vel má vera að rétt sé en enginn
flölmiðill greindi frá þessu um leið og
ráðherrar og þingmenn fengu úrskurð
Kjaradóms. Það var ekki á vitorði
margra að borgarfulltrúar og embætt-
ismenn í Reykjavik eða öðrum
stærstu bæjarfélögunum fylgdu launa-
hækkun til ráðherra og þingmanna.
Staðreyndin er því þessi: Laun
bæjarstjóra, bæjarfulltrúa og nefnda-
manna í stærstu (hvers vegna ekki
öllum?) bæjarfélögunum munu
hækka um 30% á allra næstu dögum
eða vikum. Ef hækkunin er ekki orð-
in staðreynd nú þegar. Undantekn-
ingin virðist vera bæjarfélagið Hafn-
arfjörður. í bili, a.m.k. Engin fyrir-
mæli liggja fyrir um launabreyting-
ar í þeim bæ, samkvæmt fréttum um
30% hækkunina.
Við (já, við sem greiðum skattana
og borgum þessar hækkanir!) eigum
því eftir að fá að heyra og lesa um
ágreining sem nú verður opinber, að-
allega á milli hinna ýmsu sveitarfé-
laga, hvort allir opinberir hjá sveit-
arstjómunum eigi að fá 30% hækkun
eða hvort þetta eigi að ákveða af
hverri sveitarstjórn fyrir sig.
Og ein staðreynd er þegar á borð-
inu: Launaskrið er hafið í efri kanti
þjóðfélagsins og það mun að sjálf-
sögðu breiðast upp og niður meðal
annarra launahópa.
Það dettur ekki nokkrum manni í
hug að allur almenningur sitji hjá og
bíði fram á næstu öld eftir annarri
„þjóðarsátt" þegar svo er komið að
forystuliði allra helstu stofnana þjóð-
arinnar, allt frá ríkisapparatinu
sjálfu, þingmönnum og ráðherrum
til meðalfulltrúa í bæjar- og sveitar-
stjórnum, hafa verið dæmdar kjara-
bætur upp á 30%. Ef góðærinu á að
ljúka á þessum nótum þá hlýtur því
að ljúka eins hjá öllum. Með 30%
kjarabót yfir „línuna".
islensk jeppamenning hlægileg
nú á Grænlandsjökli
Sonni hringdi:
Það er ekki nóg með að jeppa-
menn nýti heimahagana og tæti þá
niður í svörð, og síðan jöklana
þvera og endilanga. Nei, nú er ís-
lensk jeppamenning að halda inn-
reið sína til Grænlands.
Og það er ekki ráðist á garðinn
þar sem hann er lægstur heldur er
sjálfur Grænlandsjökull lagður und-
ir. Þetta er að mínu mati síður en
svo æskilegur útflutningur, því við
honum er amast mjög sem vonlegt
er.
Heimamenn eru vægast sagt mið-
ur sín og segja að leiðangur þessi
frá íslandi skaði ímynd grænlenskr-
ar náttúru. Ég er þessu sammála.
Hvers vegna láta íslenskir
sportidjótar sér ekki nægja heima-
slóðimar. Hér era tiltækir björgun-
arleiðangrar til að sækja hvern
þann sem fer sér að voða á jöklum,
í sprungum og í ám þegar gassa-
gangurinn er sem mestur og bjart-
sýnin á að komast alls staðar er
ofan á.
Ég vil láta banna svona víðáttu-
vitleysu sem engum tilgangi þjónar.
Hér er ekki um vísindaleiðangur að
ræða, einungis sport sem er raunar
á ábyrgð okkar skattgreiðenda sem
borgum brúsann þegar allt fer úr-
skeiðis. íslensk jeppamenning er
hlægileg, jafnt á jöklum sem á göt-
um Reykjavíkur.
Misvísandi fréttir úr Balkanstríði
- voru loftárásirnar óþarfar?
Mótmæli eru hafin í Belgrad gegn stjórnvöldum í Júgóslavíu. Stjórnvöld dæma
mótmælendur landráðamenn. Hver verður afstaða vestrænna fréttastofa?
Stefán Guðmundsson skrifar:
Það hefur verið hart barist um
fréttir frá hinum fyrrverandi lýð-
veldum Júgóslavíu síðustu mánuð-
ina. Og nú síðustu tvo, þrjá mánuð-
ina hefur ekki linnt fréttum og
myndskýringum frá Kosovo og
flóttafólkinu þar sem flýr unnvörp-
um hina grimmu serbnesku her-
menn sem ekkert skilja eftir sig
annað en auðan svörð, brennd hús
og limlest fólk á sál og líkama.
Það var því að vonum að vest-
rænar þjóðir sæju ekki annað fært
en að taka í taumana. Og það hefur
svo sannarlega verið gert með hörð-
um loftárásum á borgir og hernað-
armannvirki í Serbíu, ekki síst í
höfuðborginni, Belgrad.
En það er líka barist um frétta-
flutninginn og engu líkara en utan-
aðkomandi fréttastofur í öðrum
löndum hafi tekið afstöðu með eða á
móti Serbíu og sömuleiðis flóttafólk-
inu frá Kosovo. Þanng segja sumar
fréttastofur geinilegar fréttir af loft-
árásum NATO á Belgrad en minna
frá hörmungum Kosovo-Albananna.
Það er skilmerkilega greint frá því
ef einn, tveir eða fleiri falla eða sær-
ast í loftárásum NATO á Belgrad
eða hvar annars staðar í Serbíu.
Víst er það fréttar vert að þar verði
menn fyrir barðinu á loftárásum.
Það eru þó smámunir hjá hörmung-
unum, morðunum og flótta tuga og
hundraða þúsunda frá Kosovo fyrir
tilstilli Serba.
Nú virðast málin vera að snúast
við. Opinber mótmæli eru hafin í
Belgrad gegn stefnu stjórnalda í
fyrsta sinn. Hvernig skyldu vestræn-
ar fréttastofur bregðast við því? Ætla
menn enn að veija stefnu Milosevics
og fullyrða að loftárásir NATO hafi
verið óþarfar? Ætla vestrænar frétta-
stofur að dæma mótmælendur í
Belgrad landráðamenn eins og
stjórnvöld í Júgóslavíu gera nú?
DV
Engin svik við
Akureyri
Þór hringdi:
Það er náttúrlega eins og hvert
annað bull að Akureyringar hafi
verið sviknir, þótt eitthver fyrir-
tæki hætti að hafa aðsetur þar.
Akureyringar eiga sjálfir að
stofna til fyrirtækja og reksturs og
veita lífi í atvinnulífið. Það þýðir
lítið að treysta á önnur bæjarfélög
í því efni. Reykvíkingar geta ekki
krafist þess að fyrirtæki úr öðrum
byggðarlögum setji sig niður í
borginni. Heldur ekki Akureyr-
ingar. - ÍS eða SH, þetta eru bara
fyrirtæki og ekkert á þeim að
byggja fyrir aðra en þá sjálfa. Ak-
ureyringar eru líka sjálfum sér
næstir. Þeir verða að hrista af sér
slenið.
Skiptið út
ráðherrum
F.S. skrifar:
Ég vil taka undir með þeim sem
segja að skipta eigi út ráðherrum í
þetta sinn, þótt núverandi stjórn-
arflokkar endurnýi samvinnuna i
ríkisstjórn. Það er bara af hinu
góða að sama stjóm skuli sitja, þ.e.
sömu flokkamir. En mér finnst að
flokkarnir báðir ættu að skipta út
ráðherrum og kappkosta að hafa
tvær konur ráðherra ffá hvorum
flokki. Ingibjörg Pálmadóttir hefur
staðið sig vel sem ráðherra og
kemur mjög vel fyrir. Ég vil sjá
aðra konu úr þeim flokki sem ráð-
herra. Einnig vil ég fá tvær konur
úr Sjálfstæðisflokki og tel að Sól-
veig Pétursdótttir eigi þar fyrsta
sæti inni ásamt annarri konu úr
þeim flokki. Það yrði mikill skaði
tækist flokkunum ekki að ná
tveim konum frá hvorum flokki
inn í ríkisstjórn.
Bílvæn tónlist
Sveinn Sigurðsson skrifar:
Ég man ekki til þess að á síðari
árum hafi verið ráðist í það hér á
landi að gefa út „gamlar perlur"
fluttar af islenskum tónlistar-
mönnum eða manni. Mér barst þó
í hendur nýlega geisladiskur með
heitinu „Golden Melodies" og er
flytjandi Gunnar Páll. Kom mér að
vísu dálítið spánskt fyrir að öll
lögin voru erlend og það þekktar
perlur frá ýmsum tímum. En ég
verð að segja að Gunnar Páll fer
mjög vel með lögin. Það fyrsta sem
mér datt í hug þar sem ég var
staddur í bílnum mínum var að
prófa nýju „græjurnar" hvaða
þetta væri þægileg tónlist í bíln-
um. Sannarlega bílvæn tónlist.
Hún hefur róandi áhrif á mann og
veitir sjálfsagst ekki af í þessari
stressuðu umferðarmenningu.
Hvar fæst
Bio spray?
H.B. skrifar:
Ég hef lengi leitað að vörutegund
sem nefnist „Bio Spray Extra“ í
stiftformi en hef ekki fundið hana í
verslunum þeim sem ég hef spurt
eftir henni, t.d. ekki hér í Grafar-
vogi. Þetta er mjög gott bletta-
hreinsiefni sem mér áskotnaðist á
sínum tíma en hef ekki enn fundið
það hér. Ég vona að hægt verði að
bæta úr þessu og verslanir hér í
Grafarvogi reyni að ná i þetta efni.
Kannski einhver bendi á í þessum
dálki hvar þetta fæst, viti það ein-
hver. Með fyrirfram þakklæti.
Ljót Lækjargata
Kristjana hringdi:
Mér finnst ekki ná nokkurri átt
ef Lækjargatan á að líða fyrir deil-
ur milli aðila sem standa að þess-
um brunarústum þar sem áður
var Nýja bíó. Reykjavíkurborg á
að skikka þá aðila sem þarna eiga
lóð að byggja á henni sem snarast
en taka hana til sín aftur ella. Út-
hluta svo hæstbjóðanda og fylgjast
með því að hann byggi þarna fal-
legt hús sem allir geta verið stoltir
af. Við sem búum héma í nágrenn-
inu skorum á borgina og ráða-
menn hennar að losa götuna við
þetta sár sem myndast hefur.