Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999
13
Fréttir
Hjá Ríkisskattstjóra.
Pappírslaus skattframtöl:
20 þúsund skilað á Netinu
Skattframtöl næstum 20 þúsund
einstaklinga á íslandi eru í fyrsta sinn
pappírslaus og munu reyndar aldrei
verða fest á pappír. Skattskilin eru
gegnum netið, úrvinnslan fer fram á
tölvuskjá og geymsla gagna í tölvu-
banka. Sendingarnar eru nærri 14
þúsund, sumar með fleirum en ein-
staklingi.
Steinþór Haraldsson, yflrlögfræð-
ingur hjá Ríkisskattstjóra, metur
þessa fyrstu tilraun með nýja tækni
þannig að hún hafi tekist frábærlega
vel. Ómar Ingólfsson, yfirmaður
tæknideildar, sem sér um þessa nýju
tækni, segir að fjöldinn sé nokkum
veginn sá sem hann reiknaði með í
upphafi.
Framtölin hafa borist frá tölvum
einstaklinganna sjálfra og eins frá
endurskoðendum sem líka nota Netið.
„Þetta er ágætis skammtur því
við erum að útbúa öll kerfin fyrir
skattstofurnar til að vinna þetta. Nú
verður þetta allt unnið vélrænt,
ekkert prentað út,“ sagði Ómar Ing-
ólfsson í gær. Kerfið hannaði fyrir-
tækið Gagnalind.
„Ég tel að miðað við þessi fyrstu
viðbrögð muni þeim fjölga mjög á
næsta ári sem skila í gegnum Netið.
Við vonun núna með takmarkanir,
þeir sem eru með einhvem rekstur
gátu ekki skilað á þennan hátt. En
við stefnum að því að aflétta því,“
sagði Ómar Ingólfsson. Hann sagði
að stefnt væri að því að setja inn
ýmsar tiltækar upplýsingar til að
létta undir framtalsgerðina. Þeir
sem væru með mjög einfóld framtöl
þyrftu margir ekki annað en að
kvitta fyrir þær upplýsingar sem
þegar hefðu verið færðar inn á
framtalið.
-JBP
• JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan
fyrir útlit, gæði, eiginleika og möguleika!
• Ódýrasti ekta 4x4 jeppinn á íslandi
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Sterkbyggður og öflugur sportjeppi
ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn í rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skcifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
[Spenndndi tölvusumar
I 1 fyrir hressa krakka
Framtíðarböm bjóða öllum börnum á skólaaldri upp á frábær tölvunámskeið í sumar þar sem nemendur læra að nýta sér fjölbreytta
möguleika tölvutækninnar. Námskeiðin standa frá 7.6.- 9.7. og 3.8.- 20.8. Litlir aldursskiptir hópar og nokkrir sérhópar fyrir stelpur
7 -11 ára. Börnin fá hressingu á staðnum. Kennt verður 4 daga í viku og farið í skemmtiferð 1 dag (Barnaríki eða Darldight).
Það er Símanum Internet mikill heiður að fá að
taka þátt í menntun unga fólksins með stuðningi
sínum við Framtíðarböm.
Sumarnámskeid Framtídaxbarna
17-8°gJ&£*S-5°l
1. Sögu- og teiknimyndagerð
(vikunámskeið frá ki. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddir '91, '92 og '93
Unnið er í vönduðum teikni-, sögugerðar- og margmiðlunarforritum
þar sem sköpunar- og frásagnargleði bama fær útrás við teiknun,
málun, ritun og talsetningu. Nemendur læra markvisst að nýta sér
ýmsa möguleika tölvutækninnar og þjálfast í tölvuumgengni.
2. Ritvinnsla og margmiðlun
(vikunámskeið frá kí. 9-12 eða 13-16)
Hópur 1: Nemendur fæddir '88, '89 og '90
Hópur 2: Nemendur fæddir '85, '86 og '87
Nemendur vinna að hefti um ýmsar tækninýjungar á
2o.öldinni og þeir útbúa einnig kynningarefhi fyrir
ferðaskrifstofu. Nemendur setja saman texta, myndir,
hljóð, tónlist, hreyfimyndir og videó. Nemendur nota
stafræna myndavél, hljóðsetja efni og nota Intemetið
við upplýsingaöflun.
3. Margmiðlun og forritun
(vikunámskeið frá kl. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddir '88, '89 og '90
Nemendur nota nýja útgáfu af Lógó-forritinu til að hanna
margmiðlunarefni. Nemendur setja saman í eina heild texta, hljóð,
tónlist, myndir, hreyfimyndir og videó. Kennd verða nokkur
undirstöðuatriði í forritun auk þess sem unnið er með margmiðlun
í skemmtilegu og skapandi umhverfi.
4. Tölvusamskiptl og vefsíðugerð
(2ja vikna námskeið frá kl. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddir '85, '86 og '87
Nemendur læra um tölvupóst, Internetið, leit á vefnum, kynnast
HTML-málinu og læra síðan að nota vefsíðugerðarforritið Microsoft
Frontpage. Nemendur hanna síðan vefsíður fyrir ímyndað fyrirtæki,
setja inn á hana ýmsar upplýsingar, nota myndvinnsluforrit til að
hanna merki og hreyfimyndir o.m.fl.
wgwmt
$6.
*■!■ W
Námskeiðin eru með so% Landsbankaafslætti
FRAMTÍÐARBÖRN
Grensásvegi 13
sími 553 3322