Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999 15 Ráðherraveikin Skæð farsótt hefur brotist út við Austur- völl og heltek- ið fólk í hrönn- um, meira að segja löngu áður en búið var að stimpla menn inn sem rétt kjörna fulltrúa á lög- gjafarsamkom- una. Þetta er ráðherraveik- in. Hún lýsir sér í þvi að enginn telst maður með mönnum nema hafa fengið það orð á sig að vera upplagt ráðherraefni í ríkis- stjóm sem mynda verður að lokn- um kosningum hvað sem tautar og raular. Enginn veit enn um hvað stjóm- armyndunarviðræður tveggja lög- fróðra snúast annað en stöðugleik- ann sem er mál mála og sameigin- legt áhugamál allra. í samræmi við það hafa formenn hinnar ást- sælu stjómar B og D sem hélt ör- ugglega velli í kosningunum gefið það eitt út að jafnvægi verði að vera á ráðherrabekknum, ef ekki fimm og fimm þá sex og sex. Og það er seinni útgáfan sem magnað hefur upp ráðherraveikina svo um munar. Gamlar en gleymdar dyggðir Allt skapað þróast og heitir það nú framþróun svo að enginn ímyndi sér að um afturför geti ver- ið að ræða. Þannig er það líka með ráðherraveikina. Hún varð fyrst skilgreindur sjúkdómur fyrir um áratug og hélst í hendur við öra framþróun lýðræðis eins og hún birtist í prjófkjömm. Til þess tíma hafði vart nokkur löglega kjörinn þingmaður dirfst að gefa til kynna að hann dreymdi um ráð- herrastól hvað þá meira. Nú er hins vegar svo komið að ekki þýðir að sýna sig í prófkjöri án þess að sögunni fylgi að viðkomandi stefni á ráðherrastól eigi hann ekki slíkt þarfaþing fyrir. Alþingi er sem kunnugt er svo ómerkilegur vettvangur að ekki er hægt að ætlast til að kjósendur styðji við fólk sem hyggst láta sér nægja svo lágan .sess. Löngu fyrir síðustu kosn- ingar voru frambjóðendur farnir að máta sig við stóla í stjómarráðinu, dyggilega studdir af garralegum sand- komum blaðanna. í þeim hópi voru þingmenn úr liði Davíðs, sem sóttust eftir endurkjöri. Fóru þar fremstir þeir sem minnst hefur kveðið að og eyða tímanum í flest annað fremur en setur í þingsöl- um.“Sælir em hógværir" má lesa í gömlum bókum en þau heilræði eru nú á dögum ekki hátt skrifuð á hönnunarstofum þingmanns- efna. Framsókn öll á sjúkrabeði Eins og sæmir liðsveit sem ekki kann við sig utan valdastóla er Framsókn í sérflokki þegar ráð- herraveikin er annars vegar. All- ur þingflokkurinn, líklega að Jóni Kristjánssyni einum undanskild- um, hefur fengið bakteríuna og em sumir helteknir. Dapurleg út- reið flestra ráðherra flokksins á síðasta kjörtímabili breytir þar engu um, þótt hún ætti að vera víti til varnaðar fyrir þá óbreyttu. Verst er ástandið sagt á kvenna- deildinni þar sem allar eru kallað- ar. Fái Framsókn sex ráðherrastóla verða jafnmargir að láta sér nægja hlutskipti hinna óbreyttu. Verður það döpur og van- þakklát vist í heilt kjörtímabil fyrir utan þá nið- urlægingu að vera ekki metinn að verðleikum. Færi nú betur að hlustað hefði ver- ið á Sivjar-ráð þess efnis að ráð- herrar gegni ekki þingmennsku. Myndu þá rísa upp sumir hinir föllnu og mæta gal- vaskir til þings líkt og æsir í Val- höO. Og gleðin ríkti ein ofar hvers kyns sút í höH Davíðs. Hjörleifur Guttormsson Þingflokkur Framsóknarflokksins. „Allur þingflokkurinn, líklega að Jóni Kristjánssyni einum undanskildum, hef- ur fengið bakteríuna og eru sumir helteknir,“ segir Hjörleifur í grein sinni. Kjallarinn Hjörleifur Guttormsson fyrrv. alþingismaður „Allt skapaö þróast og heitir þaö nú framþróun svo aö enginn ímyndi sér að um afturför geti veriö að ræöa. Þannig er þaö lika meö ráöherraveikina. Hún varö fyrst skilgreindur sjúkdómur fyrir um áratug og hélst í hendur viö öra framþróun lýöræöis eins og hún birtist í prjófkjórum.“ Vildu ekki frið- samlega lausn Því hefur verið haldið fram að NATO hafl orðið að grípa tO hem- aðaraðgerða gegn Serbíu vegna neitunar júgóslavneskra yfirvalda að skrifa undir hið svonefnda RambouiHet-samkomulag. Er þessi fuUyrðing rétt? Samkomulagsdrögin sem lágu fyrir í Rambouillet vom tvískipt. Annar hlutinn fjaHaði um póli- tíska lausn deUunnar, þ.e. skipan borgaralegs lífs í Kosovo, m.a. sjálfsstjórn héraðsins. Hins vegar var sérstakur kafli um alþjóðlegt eftirlit sem tryggja átti fram- kvæmd hinnar pólitísku lausnar. Réttmæt tortryggni Kosovo-Albanar kröfðust alþjóð- legs eftirlits með framkvæmd sam- komulagsins, enda treystu þeir ekki loforðum serbneskra yfir- valda. Sú tortryggni var réttmæt. En að sögn frönsku fréttastofunn- ar AFP (20. febr. 1999) voru Serbar í meginatriðum tUbúnir að semja um sjálfsstjóm handa Kosovo en fuUtrúar Serba í RambouUlet gáfu tU kynna að þeir myndu sam- þykkja friðargæslusveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eða ÖSE, en ekki undir stjóm NATO. Bandarískur embættismaður staðfesti við AFP að deUan í Ram- bouiUet stæði einmitt um þetta en ekki um póli- tíska þætti sam- komulagsins. En næsta dag lýsti Madeleine Al- bright, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, því yfir að Bandaríkin myndu ekki sætta sig við neitt annað en að Serbar sam- þykktu hersveitir undir stjórn NATO. Þetta ítrekaði hún við CNN og tveim dögum síðar á blaðamannfundi. Þetta var meginkrafa Bandarikj- anna sem var ítrekuð aftur og aft- ur. Serbum var m.a. ekki leyft að undirrita hinn póli- tiska hluta samkomu- lagsins sérstaklega nema gengið yrði að öUum öðram kröfum, þ.m.t. um ffamkvæmd eftirlitsins á vegum NATO. Úrslitakostir Þann 23. mars af- henti sendiherra Bandaríkjanna, Ric- hard Holbrooke, for- seta Júgóslavíu, Slobodan MUocevic, úrslitakosti: Skrifaðu undir skilmála um hersveitir NATO í Kosovo eða við ráðumst á land þitt. Sömu nótt hafnaði serbneska þing- ið að nýju hernaðarhluta sam- komulagsins en lýsti vUja sínum tU að skoða nánar „umfang og eðli alþjóðlegrar viðveru" í Kosovo. Rétt er að geta þess að Kosovo var og er hérað í sambandsríkinu Serbiu en hvorki sjálfstætt sam- bandsríki né sjálfstætt ríki. Serbnesk yfirvöld hafa því rétt tU þess að ákveða hvort og með hvaða hætti erlendum aðUum er leyft að inna af hendi eftirlitsstörf innan lögsögu sambandsríkisins. Bandaríkin höfðu augsýnUega engan áhuga á að fylgja eftir þeim möguleikum tU alþjóðlegs eftirlits sem serbnesk yfir- völd töldu sig geta sætt sig við. Serbnesk yfirvöld höfðu leyft sveitum á vegum ÖSE og ýms- um mannúðarsam- tökum að athafna sig í Kosovo framan af. Samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna tryggði þessi viðvera Kosovo-Albönum lág- marksvemd, kom í veg fyrir kerfis- bundnar þjóðernis- hreinsanir og stór- felld mannréttinda- brot og stuðlaði aö heimkomu flótta- manna. En Banda- ríkin vUdu etja NATO í stríð. Áhersla þeirra á hlutverk NATO var og er liður í almennri stefnu Bandaríkjanna sem lýst er í skýrslu Pentagon: „Leiðarvísir um varnaráætlanir 1994-1999“. í skýrslunni segir m.a.: „Við verð- um að koma í veg fyrir að Evrópu- þjóðir myndi eigið öryggiskerfi sem gæti grafið undan NATO ... Þess vegna er það afar mikUvægt að beita NATO sem aðaltæki vest- ræns varnar- og öryggiskerfis og tU að auðvelda bandarísk áhrif á og þátttöku í evrópskum öryggis- málurn." Elias Davíðsson „Rétt er aö geta þess aö Kosovo var og er héraö í sambandsríkinu Serbíu en hvorki sjálfstætt sam- bandsríki né sjálfstætt ríki. Serbnesk yfírvöld hafa því rétt til þess aö ákveöa hvort og meö hvaöa hætti erlendum aöilum er leyft aö inna af hendi eftirlits- störf innan lögsögu sambandsrík- isins.“ Kjallarinn Elías Davíðsson tónlistarmaður Með og á móti Sveik Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna Akureyringa? Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur ákveðið að hætta starfsemi sinni á Ak- ureyri en hún hófst árið 1995 í kjölfar þess að bæjarstjórn samdi við fyrir- tækið um að það héldi áfram að ann- ast sölumál með afurðir Útgerðarfé- lags Akureyringa. SH lofaði að flytja þriðjung starfsemi sinnar til Akureyr- ar, koma með öðrum hætti að atvinnu- lífinu og skapa þannig um 80 ný störf í bænum. Akureyringar eru margir hverjir afar reiðir vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar SH að hætta starfsemi sinni á Akureyri og segja að fyrirtækið hafi svikið sinn hiuta samn- ingsins, þann að halda úti starfsem- inni á Akureyri. Hrein svik „Kolkrabbinn er búinn að mylja Útgerðarfélag Akureyringa gjörsamlega undir sig og þar á bæ stendur mönnum algjörlega á sama um hvort einhverjir samn- ingar hafa verið gerðir eða ekki eða að við þá sé staðið. Ég átti sæti í stjórn ÚA þegar þetta mál gekk yfir á sín- um tíma og var andvígur því að samið yrði við Sölumiðstöðina á þessum nót- um og það hef- ur komið á dag- inn hvaða vitleysa það var. Fram- koma SH gagnvart Akureyringum eru hins vegar hrein og klár svik og það er búið að hafa okkur að al- gjörum fíflum. Wjtgr Akureyringar eiga í þessu máli skilyrðislausa kröfu á hendur Jakobi Bjömssyni, fyrrverandi bæjarstjóra, þess efnis að hann geri okkur grein fyrir því hvemig það samkomulag var sem gert var við SH. Sé það rétt sem ég hef heyri aö með samningnum hafi SH verið tryggð sölumál með af- urðir ÚA i 10 ár þá hlýtur slíkur samningur auðvitað hafa átt að gUda i báðar áttir.“ Sverrir Leósson, fyrrverandi stjórn- armaöur í Útgeró- arfélagi Akureyr- inga. Ekki svik „Það er auðvitað mjög slæmt að þessi staða skuli hafa komið upp, að SH skuli hafa þurft að draga saman seglin hér í bænum, og það er spuming hvort kaUa megi þetta svik. Atvinnu- lífið hér á Ak- ureyri er hins vegar þannig i stakk búið núna að það getur tekið við þessum skeU. Við getum líka spurt okkur þeirrar spurn- ingar hvað hefði gerst ef við hefðum samið við íslenskar sjávarafurðir sem ætluðu vissu- lega að flytja höfuðstöðvar sínar til Akureyrar en vera með hluta af starfsemi sinni fyrfr sunnan. Ég held aö ÍS hefði ekki haft burði til þess að taka við sölumálum fyr- ir ÚA og óvíst hver staða ÚA væri í dag hefði það gerst. Það er hins vegar hjá SH eins og öðrum fyrfrtækjum sem eru að draga saman í rekstri að þau þurfa að grípa tU ýmissa aðgerða og við því er ekkert að gera. Þetta er hins vegar auðvitað önnur þró- un en við.“ -gk Þórarínn B. Jóns- son, bæjarfulltrúi Sjálfstæöisflokks- Ins. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskUur sér rétt tU að birta aösent efni á stafrænu formi og í gagnabönk- um. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.