Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999
39
DV
Fréttir
Bjargvætturinn
Berjast fyrir lækkun forkaupsréttar 1 féló í Reykjavík:
Niðurgreiðum tap
annarra sveitarfélaga
- segir einn forystumanna í undirskriftasöfnun eigenda félagslegra íbúða
„Við fréttum 1 gær að borgin
hefði ákveðið að lækka forgangs-
réttinn úr 30 árum í 25 - en af
hverju ekki alla leiðina niður í 10
ár? Hvaða heimild hafa þeir til að
mismuna fólki svona,“ spurði einn
þeirra sem gengur um með lista og
safnar undirskriftum sem senda á
borgarstjórn Reykjavíkur. Við-
mælandinn sagði að ef málið væri
skoðað nánar væri ekki um það að
ræða að félagslegar íbúðir hefðu
verið gefnar einum eða neinum
eða seldar á betri kjörum en al-
menningi byðist.
„Þetta er gömul lumma. Ef þú
skoðar málið kemur annað í ljós.
Það eru að vísu lægri vextir á lán-
um í félagslega kerfinu, 2,5% á
móti 4-5% hjá öðrum en þessir
lágu vextir eru tekjutengdir. Ef þú
skriður upp i mannsæmandi laun,
upp fyrir þessa lágmarksmiðmið-
un, sem þeir eru með, hækka vext-
irnir allt upp í 4,5 prósent og þú
þarft kannski að vinna þér inn
hundruð þúsunda í viðbót og
skattar hækka en ýmsar bætur
lækka.“
Viðmælandi blaðsins sagðist
þekkja splunkunýtt dæmi um mis-
réttið. „Maður sem fékk bréf Hús-
næðisnefndar um að nú mætti
hann selja á frjálsum markaði var
búinn að eiga eignina í 25 ár.
Hann lét strax meta íbúðina og
fasteignasalinn mat hana á 7,5
milljónir. Nágranni hans sem er
búinn að eiga sína I 22 ár og Hús-
næðisnefnd segir honum að hann
fái 4 milljónir. Hvaða rök eru fyr-
ir þessum mismuni?
Þessi mismunur rennur í trygg-
ingasjóð sem íbúðalánasjóður geym-
ir. Þeim sjóði er ætlað að greiða nið-
ur tap sem sveitarfélög hafa orðið
fyrir vegna þess að þau sitja uppi
með óseljanlegar íbúðir úti á landi.
Við Reykvíkingar erum með öðrum
orðum að greiða niður tap annarra
sveitarfélaga. Reykjavík ætlar sér
að selja 3.000 íbúðir á næstu árum
sem þýðir að ef hagnaðurinn er
milljón á íbúð þá eru þama 3 millj-
arðar króna sem teknir eru af Reyk-
víkingum og settar i að greiða tap
annarra sveitarfélaga. Við þetta
sættum við okkur ekki.“
Undirskriftir í félagslegum íbúð-
um eru í fullum gangi eins og greint
var frá í gær. Menn vilja að Reykja-
vík slaki á kröfum um forkaupsrétt-
inn. -JBP
Flæðir um oll golf?
Tsurumi bjargvætturinn er öllug dæla
sem sýgur upp uatn niður í 1-2 mm yfirborð
Tsurumi
_
mm
Sími 568 1044
r!ÍjfS l' O I I
Fjölbrautaskólans í Breiáholti
Inrritijn sfcndur yfir .
50 matshœfir dfongcr
1mekak
r- \
aÍQg...
VVMW.fb.13
Stálgrindahús
Vélageymslur * vöruskemmur o.fl.
Verð kr. 8-l 0.000 ferm.
Afgreiðslufrestur ca 3 vikur.
Vottað af rannsóknarst. byggingariðnoðarins.
Leitið upplýsinga.
P.S. verktakar
sími 555 6275.
Meðan hugur fullorðna fólksins á Húsavík snerist að mestu um slæma stöðu Kaupfélags Þingeyinga fóru börnin á
leikskólanum Bjarnarhúsi í tiltekt í bænum, tíndu rusl og drasl við götur og í görðum. Kunni fólk vel að meta þessa
vorhreingerningu krakkanna sem hér veifa til Ijósmyndara með kirkjuna í baksýn. DV-mynd Hilmar Þór
KÁá
einni hæð
DV, Suðurlandi:
Verslun Kaupfélags Árnesinga á
Hvolsvelli hefur verið opnuð að
nýju eftir gagngerar endurbætur og
breytingar. Verslunin var áður á
tveim hæðum en eftir breytingarn-
ar er öll verslunin á einni hæð.
Sama vöruval er samt sem áður í
versluninni. -NH
Verslun KÁ á Hvolsvelli.
DV-mynd Njörður
VW Polo 1400 3. d.'97, hvítur ek.56 þ.
km, bsk., álf., spoi. V. 960.000.
MMC Pajero 2800 DTI 5.d.'98 blár/grár
ek.71 þ.km ssk., álf. V. 3.000.000.
MMC 3000 GT SL '91, rauður ek. 6 þ.km á
vél, bsk., leður, abs, o.fl. o.fl.
V. 2.000.000.
Honda Civic LS11500 VTEC 3.d.'97
rauður ek. 36. þ. km álf. spoil.
V. 1.290.000.
MMC Galant V6 2000 4.d.'93. beis,
ek.140.þ. km ssk., sóll., a/c., abs ofl
V. 1.450.000.
Gott úrval bíla á skrá
og á staðnum
B I L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
VW Passat 1600 basic 4.d. '98 silfurl.
ek. 21 þ. km, bsk., spoi., álf.
V. 1.620.000.
Cadillac Seville SLS 4,6 32v
Northstar '94, grænn, ek.36 þ.km,
M/ÖLLU. V. 3.000.000.
Opiö virka daga 10-12 og 13-18, laugardaga 13-16.
VANTAR TJALDVAGNA OG FELLIHYSI STRAX • GOÐ INNIAÐSTAÐA
m
-<*