Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Qupperneq 26
46 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999 Söluleyfí 17. júní 1999 í Reykjavík Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1999, vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða á skrifstofu ÍTR Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08:20 - 16:15. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi miðvikudaginn 2.júní fyrir kl. 16:00. Úthlutun verður fimmtudaginn 3. júní kl.16:30 á Fríkirkjuvegi 11. Vakin er athygli á því, að öll lausasala frá tjöldum og á hátíðarsvæðinu er stranglega bönnuð. Gjald v/ söluleyfa er kr. 3.000.- Lr. Á Rýmum fyrir nýjum vörum -allt að Á þriðju hæð í verslun okkar að Lágmúla 8 BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Fréttir i>v Galdramál á íslandi: Setur fræða og minja á Hólmavík DV, Hólmavík: Ef aOt fer að vonum verða atburðir sem tengjast Vestfjörðum og þá Strandasýslu ekki síst að einhverju leyti í boði á næsta ári þegar Reykja- vík fær það hlutverk að vera ein af menningarborgum Evrópu, svo lítið trúlegt sem það kann að virðast. En málið skýrir nánast vakningu, sem orðið hefur meðal heimamanna um að hafist verði handa um að gera sögu galdramálanna á íslandi, þá einkum á 17. öldinni, allnokkur eða veruleg skil. Fremstur í flokki hefur verið Jón Jónsson, þjóð- og sagnfræðingur frá Steinadal í Strandasýslu, sem óþreyt- andi hefur verið við að draga fram í dagsljósið ýmsa atburði galdratímans á rökkurkvöldum víða um byggðir sýslunnar i sambandi við atburði tengda átaki í ferðamálum á svæðinu. Fyrir nokkrum misserum gekk til liðs við hann Magnús Rafnsson, kennari og fræðimaður á Bakka i Bjarnarfirði. Hafa þeir farið um lönd til að kynna hugmyndir sínar, m.a. um stofnun fræðaseturs á Hólmavík. Staðfest er að mikill áhugi og jafn- vel eftirvænting er bæði hjá innlend- um og erlendum fræðimönnum um að tjl NINTBNDO.64 L0EWE. BOSCH <^indesif © Husqvama & FINUIX AEG jb SANGEAN ©YAMAHA OLYMPUS — IMQKIA jamo: Nikon ORION ÆlasCbpco af stofnun þessa fræðaseturs geti orð- ið. Hafa vísinda- menn sagst fúsir til að koma og miðla af fróðleik sínum og einnig og ekki síst að sækja hann að einhverju leyti til okkar söguríku byggðar. Þá hafa fræði- menn undirstungið að hér verði haldin alþjóðaráðstefna um galdraöldina. Þó staðreynd sé að hjá vissum mönnum hafi heilbrigð hugs- un nánast verið í fjötra færð á því tímaskeiði eru þeir atburðir ekki ómerkari til uppriíjunar en annáö sem sögu og arfleifð tengist. Vert hef- ur verið talið að ljóskeri sé varpað svo sinnt sé sögulegri varðveislu líkt og gert hefur verið í sambandi við Vík- ingatímann. Menntamálaráðuneytið, Byggða- stofnun og Nýsköpunarsjóður stúd- enta hafa veitt undirbúningsstyrki til verkefnisins. Þá liggur fyrir umsókn um styrk hjá Evrópuráðinu og eru vonir bundar við jákvæðar undirtekt- Magnús Rafnsson í ræðupúltinu og til hægri eru Þórð- ur Halldórsson og Sigurður Atiason. DV-mynd Guðfinnur ir. Það sem ekki minnsta athygli hef- ur vakið á ferðum þeirra Jóns og Magnúsar er að í safni í Hamborg í Þýskalandi er meira af munum úr Strandasýslu en á öðrum stað utan héraðs ef frá er skilið byggðasafnið á Reykjum. Líklegt er að þar séu einnig munir tengdir galdratímanum. Til umræðu er að munir þaðan komi til sýningar hér verði setri minja og fræða komið á laggirnar. Mikill vilji er fyrir að hafist verði handa með undirbúning ekki seinna en á sumri komanda. -Guðfinnur SeyðisQörður: Björgunar- og slysavarnahús vígt DV, Seyðisfirði: Seyðfirðingar fjölmenntu síð- degis 15. mai þegar nýja björgun- ar- og slysavarnahúsið var vígt á björtum og fögrum degi. Guðjón Jónsson, formaður byggingar- nefndar, bauð gesti velkomna. Fór hann í fáum orðum yfir byggingar- sögu hússins sem hófst 1991 og lauk á sl. ári. Hann þakkaði allan stuðning og velvilja og sagði það fjölmenni, sem væri samankomið, staðfesta hversu raunsætt og já- kvætt mat bæjarbúa væri á því starfi sem héðan væri stjórnað og skipulagt. Þakkaði hann góðar og rausnarlegar gjafir sem borist hefðu í tilefni vígslunnar. Ingi Hans Jónsson, ritari stjórn- ar slysavarnafélagsins, færði fé- lagsmönnum árnaðaróskir og þakkir. Sóknarpresturinn, Cecil Haraldsson, vígði og blessaði hús- ið og bað fyrir allri starfsemi fé- lagsmanna til hjálpar samborgur- unum á hættu- og neyðarstund. Þá var komið að því að gefa húsinu nafn. Gengu gestir út og á miðri framhlið hússins var nafn- skjöldur - hulinn klæði. Frú Anna María Haraldsdóttir, sem lengi hefur gegnt stjórnunarstörfum í Slysavarnadeildinni Rán, af- hjúpaði skjöldinn. Hlaut húsið nafnið Sæból, eftir húsi sem þarna stóð fyrr á tíð. Eftir þetta var gengið til borðs og sest að kaffidrykkju. Ólafur Sigiu-ðsson bæjarstjóri afhenti blómvönd frá bæjarbúum og minnti fólk á óeigingjarnt starf slysavarnadeildanna bæði hér og annars staðar, sem vert væri að meta að verðleikum og styðja eftir föngum. -JJ Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er nýr tónlistarskóli sem varð til við sameiningu Tónlistarskólans í Keflavík og Tónlistarskóla Njarðvíkur. Skóiinn tekurtil starfa 1. september 1999. Okkur vantar góða kennara í eftirtalin störf frá og með 1. september nk. Forskólakennara Suzukifiðlukennara Fiðlukennara Söngkennara Málmblásturskennara Slagverkskennara Bassakennara - rafb. og kontrab. heil- eða hlutastörf heil- eða hlutastörf hlutastarf hlutastarf hlutastarf hlutastarf hlutastarf f eitt ár. Laun eru skv. kjarasamningi Félags tónlistarskólakennara/FÍH og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf berist Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Þórustíg 7, 260 Njarðvík, fyrir 4. júní 1999.Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Haraidur Árni Haraldsson, í síma 421 3995 eða 421 2903. Starfsmannastjóri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.