Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 30
50
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1999
Afmæli
Valgerður Þorsteinsdóttir
Valgerður Þorsteinsdóttir hús-
móðir, Oddagötu 4, Reykjavík, er
áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Valgerður fæddist á Seyðisfirði
en ólst upp á Akureyri. Hún lærði
hattasaum í Kaupmannahöfn,
stundaði nám við húsmæðraskóla í
Ósló 1937-38 og stundaði leiklistar-
nám hjá Ágústi Kvaran á Akureyri
og hjá Lárusi Pálssyni í Reykjavík.
Valgerður stundaði verslunar-
störf og hattasaum á sínum yngri
árum. Þá starfaði hún mikið á veg-
um Leikfélags Akureyrar í nokkur
ár, frá 1938.
Fjölskylda
Valgerður giftist 18.7. 1942 Stein-
grími J. Þorsteinssyni, f. 2.7.1911, d.
1973, prófessor. Hann var sonur Jó-
hannesar Þorsteinssonar og Lauf-
eyjar Pálsdóttur, kaupmanna á Ak-
ureyri. Laufey var dóttir Páls J. Ár-
dals skálds en hún var fyrsta konan
sem nam prentiðn á íslandi.
Dætur Valgerðar og Steingríms
eru Þóra, f. 24.4. 1943, tónlistarmað-
ur, búsett í Svíþjóð, var gift Þor-
bimi Friðrikssyni efna-
fræðingi og er sonur
þeirra Steingrímur, f.
10.3. 1963, mannfræð-
ingur, búsettur í Reykja-
vík en kona hans er Xu
Wen söngkona og eru
synir þeirra Þorbjörn og
Loftur; Laufey, f. 29.3.
1947, doktor í næringar-
fræði og forstöðumaður
Manneldisráðs, búsett í
Reykjavík en maður
hennar er Daniel Teague,
lögfræðingur og þýðandi,
og eru börn þeirra Ella Björt, f. 7.12.
1980, menntaskólanemi, og Stein-
grímur, f. 27.9.1983, nemi; Sigrún, f.
12.3.1952, organisti og íslenskufræð-
ingur, maður hennar er Baldvin
Einarsson verkfræðingur en dóttir
Sigrúnar og fyrri manns hennar,
Ólafs Jónssonar gagnrýnanda, er
Valgerður Ólafsdóttir, f. 17.7. 1977,
tónlistarnemi.
Systur Valgerðar voru Guðrún, f.
5.7. 1911, d. 1990, söngkona og kenn-
ari í Reykjavík; Hildur, f. 21.1. 1913,
d. 1998, kaupmaður í Reykjavík.
Foreldrar Valgerðar voru Þor-
steinn Skaftason, f. 9.10.
1873, d. 1915, póstmeist-
ari, prentsmiðjustjóri og
ritstjóri á Seyðisfírði, og
k.h., Þóra Matthíasdóttir,
f. 2.6. 1879, d. 1970, hann-
yrða- og kaupkona.
Ætt
Þorsteinn var bróðir
Ingibjargar ritstjóra og
Halldórs, afa Halldórs
Jónssonar, verkfræðings
og forstjóra Steypustöðv-
arinnar. Þorsteinn var
sonur Skafta, ritstjóra Austra á
Seyðisfirði, Jósefssonar, læknis á
Hnausum, Skaftasonar, pr. á
Skeggjastöðum, Skaftasonar, pr. á
Hofi, Árnasonar. Móðir Skafta rit-
stjóra var Anna Margrét Bjömsdótt-
ir Ólsen, umboðsmanns á Þingeyr-
um.
Móðir Þorsteins símstöðvarstjóra
var Sigríður Þorsteinsdóttir, pr.,
alþm., vefara og smiðs á Hálsi í
Fnjóskadal, Pálssonar, hreppstjóra
á Grimsstöðum við Mývatn, Jóns-
sonar. Móðir Þorsteins var Halldóra
Þorsteinsdóttir, b. á Geiteyjar-
strönd, Helgasonar. Móðir Sigríðar
var Valgerður, systir Solveigar á
Gautlöndum, móður ráðherranna
Kristjáns og Péturs Jónssona. Bróð-
ir Valgerðar var Benedikt, afi Geirs
Hallgrímssonar forsætisráðherra.
Valgerður var dóttir Jóns, ættföður
Reykjahlíðarættar, Þorsteinssonar.
Þóra var systir Steingríms, hér-
aðslæknis á Akureyri, föður Þor-
valds fiðluleikara. Systir Þóru var
Elín Laxdal, amma Ragnars Am-
alds. Þóra var dóttir Matthíasar
skálds Jochumssonar, b. í Skógum í
Þorskafirði, Magnússonar. Móðir
Matthíasar var Þóra, systir Guðrún-
ar, ömmu skáldkvennanna, Herdís-
ar og Ólínu Andrésdætra. Bróðir
Þóru var Guðmundur, pr. og alþm.
á Kvennabrekku, faðir Theodóru
Thoroddsen skáldkonu, og afi
Muggs. Þóra var dóttir Einars, b. í
Skáleyjum, Ólafssonar.
Móðir Þóru Matthíasdóttur var
Guðrún, systir Þórðar, fóður Bjöms
forsætisráðherra. Guðrún var dóttir
Runólfs, b. í Saurbæ á Kjalarnesi,
Þórðarsonar.
Valgerður er að heiman á afmæl-
isdaginn.
Valgerður
Þorsteinsdóttir.
Afmæli
SeyöisQöröur:
Eftirminnileg
stund í leikhúsinu
DV, Seyöisfiröi:
Fmmsýning var á uppstigningar-
dag hjá Leikfélagi Seyðisfjarðar á
hinum vinsæla ævintýraleik Ronja
ræningjadóttir sem gerður var á
sínum tíma eftir sögu sænsku skáld-
konunnar vinsælu, Astrid Lind-
gren, en mörg verka hennar hafa
verið færð í leik- og kvikmyndabún-
ing. Alþekkt og vinsælust verka
* hennar eru Lína langsokkur, Emil í
Kattholti, Bróðir minn Ljónshjarta
og Ronja ræningjadóttir.
Leikstjóri er Seyðfirðingurinn
Snorri Emilsson en grunnhugmynd-
in að uppfærslunni var unnin í
samvinnu við Emil Gunnar Guð-
mundsson sem uppskar hlýjar
þakkir fyrir aðstoðina. Þetta er fjöl-
menn sýning og alls taka 18 leikar-
ar þátt i verkinu, auk þess sem fjöl-
mennur hópur aðstoðarfólks er til
hjálpar við alla uppsetninguna.
Leikstjórinn leikur sjálfur stórt
hlutverk. Hann segir að leikaramir
séu mjög ungir, frá 10-35 ára, og
yngsti og elsti leikarinn eru feðgin.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem glöddu mig á 70 ára
afmælinu, 15. maí.
Sviðsmynd úr leikritinu Ronja ræningadóttir. DV-mynd Jóhann
Lifið heil.
Jón Quðmundsson
Vélskóli íslands
Kennari í tæknigreinum
Laus er til umsóknar stað kennara í tæknigreinum á
véla- og rafmagnsfræðisviði. Æskilegt er að umsækjendur
hafi vélfræðingsmenntun með starfsreynslu, tæknifræði-
eða verkfræðimenntun. Starfið felst í bóklegri og
verklegri kennslu í tæknigreinum og umsjón með
tölvumálum skólans. Laun samkv. launakerfi HIK og KI.
Skólameistari
Umsóknarfrestur er til 21. júní nk.
Skriflegar umsóknir berist til Vélskóla Islands,
Sjómannaskólanum við Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Eins og fyrr segir er þetta ævintýra-
leikur fyrir yngri kynslóðina- sem
öll fjölskyldan hefur auðvitað
óblandna ánægju af að sjá þegar svo
vel er að verki staðið sem hér er
raunin á.
í ávarpi í leikskrá lætur formað-
ur leikfélagsins þess getið að eftir
nokkra lægð í starfi og þrótti félags-
ins undanfarin misseri sé nú tekist
á við mikið verkefni sem vonandi
falli leikhúsgestum í geð og
skemmti þeim. Hugmyndin er að
sýningar verði fjórar að þessu
Hraðkaup
DV, Vesturlandi:
Þriðjudaginn 18. maí var undirrit-
aður samningur 18. maí milli Stykkis-
kaupa ehf. í Stykkishólmi og Hrað-
kaups. Samningurinn felur það í sér
að Hraðkaup kaupir fasteign og versl-
unarrekstur Stykkiskaupa að Borgar-
braut 1 í Stykkishólmi.
Nýir eigendur Stykkiskaupa hafa
rekið matvöruverslunina í fimm og
hálft ár sem þeir keyptu af Vöruhús-
sinni. Ýmissa ástæðna vegna verða
ekki tök á að sýna leikritið í ná-
grannabyggðarlögum núna, hvað
sem síðar kann að verða.
Leikhúsgestir fjölmenntu á frum-
sýninguna og vonuðust augsýnilega
eftir góðri og eftirminnilegri
skemmtun hjá hinum ungu leikur-
um. Þær vonir brugðust ekki og var
það greinilegt á máli manna eftir að
tjaldið féll að fólk var bæði hrifið,
ánægt og þakklátt fyrir góða og
glaða stund í leikhúsinu sínu.
-JJ
í Hólminn
inu Hólmakjöri hf. sem hafði rekið
verslun og sláturhús í Stykkishólmi
næstiun þrjá áratugi þar á undan.
Eigendur Stykkiskaupa ehf. telja að
með kaupum Hraðkaups á verslun-
inni hafi stórt skref verið stigið í
verslunarsögu Stykkishólms. Þeir eru
þess fullvissir að þau verði viðskipta-
vinum fyrirtækisins til góðs og til
þess fallin að efla verslun í Stykkis-
hólmi. -DVÓ/ÓJ
Til hamingju
með afmælið
25. maí
95 ára
Matthea J. Pedersen,
Markarflöt 6, Garðabæ.
90 ára
Indriði Guðmundsson,
Munaðarnesi 2, Norðfirði.
85 ára
Margrét Elíasdóttir,
Grænumörk 3, Selfossi.
Hún er að heiman.
75 ára
Guðríður Salómonsdóttir,
Mýrarbraut 12, Vík.
Gunnar Valdimarsson,
Njálsgötu 59, Reykjavík.
Sigurður Ingimundarson,
Álfheimum 4, Reykjavík.
70 ára
Björgvin Dalmann Jónsson,
Hlíðarvegi 45, Siglufirði.
Ráðhildur Ingvarsdóttir,
Álftamýri 2, Reykjavík.
Þorsteinn Þorgeirsson,
Ytri-Nýpum I, Vopnafirði.
60 ára
Hafsteinn B. Halldórsson,
Reynimel 64, Reykjavík.
Jarþrúður Sveinsdóttir,
Skarðshlíð 17, Akureyri.
Lára Kristín Ingólfsdóttir,
Kárastíg 1, Reykjavík.
Magnús Guðmundsson,
Böðvarsgötu 2, Borgamesi.
Þórdis Árnadóttir,
Ólafsvegi 23, Ólafsfirði.
50 ára
Hugo
Lárus
Þórisson
sálfræöingur,
Framnesvegi 8,
Reykjavík.
Kona hans er Ragnheiður
Hermannsdóttir kennari.
Þau em í París.
Agnes Sigurðardóttir,
Breiðvangi 32, Hafharfirði.
Bjöm Gunnar Ólafsson,
Lynghaga 16, Reykjavík.
Guðný Guðbjörnsdóttir,
Granaskjóli 19, Reykjavík.
Hildur Einarsdóttir,
Laugabakka, Mosfellsbæ.
Inga Tómasdóttir,
Viðarási 51, Reykjavík.
Jón Hersteinn Jónasson,
Birkigrund 30, Kópavogi.
Sveinn Kjartan Baldursson,
Suðurhvammi 21, Hafnarfirði.
40 ára
Ásdis Rós Jóhannesdóttir,
Flúðaseli 74, Reykjavík.
Berglind Norðdahl,
Framnesvegi 2, Reykjavík.
Elín Erlingsdóttir,
Klausturvegi 5, Skaftárhreppi.
Gisela Martha Lobers,
Fiskakvísl 30, Reykjavík.
Matthías Bogi Hjálmtýsson,
Vesturfold 40, Reykjavík.
Ólafur Haukdal Bergsson,
Viðarási 43, Reykjavík.
Ómar Hlynsson,
Hverfisgötu 32, Siglufirði.
Palle Thorstensen,
Brúnastöðum 53, Reykjavík.
Sjöfn Svansdóttir,
Vesturbergi 151, Reykjavík.
Zofia Mijal,
Bárðarási 8, Hellissandi.
Þórdís Sigurþórsdóttir,
Sléttuvegi 2, Selfossi.