Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1999, Side 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1999
Ríkisstjórnarmyndun:
Ný stjórn
í vikulok
Fastlega er búist við því að for-
, menn Framsóknarflokks og Sjálf-
^stæðisflokks kalli til sín þingmenn
flokka sinna í dag
og leggi fyrir þá
drög að stjórnar-
sáttmála og til-
kynni þingmönn-
um um leið hverj-
ir þeir vilji að
skipi næstu ríkis-
stjóm. Samkvæmt
heimildum blaðs-
ins verða 12 ráð-
herrastólar í ríkis-
stjórninni sem
verður þá helm-
ingaskiptastjóm
flokkanna. Það
þýðir einnig að
sex af 12 þing-
mönnum Fram-
sóknarflokksins verða ráðherrar ef
að likum lætur. Þingmenn sém rætt
var við í gærkvöld reiknuðu fast-
lega með því að ný ríkisstjórn yrði
fædd fyrir næstu helgi.
Framsóknarmenn sem DV ræddi
við í gærkvöld töldu líklegt að Guðni
Ágústsson tæki sæti Guðmundar
Bjarnasonar í landbúnaðarráðuneyt-
inu. Þá sækir Siv Friðleifsdóttir fast
að fá ráðherrastól. Auk þess er Val-
gerður Sverrisdóttir sögð líklegur
i ráðherra. Formenn flokkanna munu
hlusta á óskir þingmanna sinna í
dag. Á morgun er búist við að fyrir-
huguð skipting ráðuneyta og vænt-
anlegur ráðherralisti verði lagður
fyrir miðstjórnir flokkanna -SÁ
Vestmannaeyjar:
Fíkniefni gerð
upptæk
Lögregla í Vestmannaeyjum
handtók í gærkvöld þrjá pilta vegna
gmns um að þeir væru með flkni-
efni. Piltamir vom að koma með
flugi frá Reykjavík og beið lögregla
þeirra á flugvellinum. Við leit fund-
1 **ust nokkur grömm af hassi á einum
þeirra. Piltunum var sleppt að lokn-
um yfirheyrslum í gærkvöld og telst
málið upplýst. Þeir hafa allir komið
áður við sögu lögreglu. -aþ
Hafnarfjörður:
Hafnaði í garði
Ungur piltur missti stjóm á bif-
reið sinni á Hjallabraut í Hafnar-
firði í gærkvöld. Bíllinn, sem að
sögn lögreglu i Hafnarfírði var á
mikilli ferð, fór nokkrar veltur og
hafnaði að lokum í garði við
Sævang. Talsverðar gróðurskemmd-
ir urðu í garðinum og er biliinn
óökufær. Ökumaðurinn slapp
lí^*ómeiddur. -aþ
Selma Björnsdóttir veifaði glaölega áður en hún hélt ásamt friðu föruneyti áleiöis til Israels á sunnudag. DV-mynd S
Formaöur Neytendasamtakanna um kaup Baugs á 10-11:
Hagsmunir neytenda
ekki að leiðarljósi
- Baugsmenn gátu ekki beöiö eftir áliti Samkeppnisráös
Töluverður styr hefur staðið um
kaup Baugs hf. á verslununum 10-11
sem tilkynnt vom um helgina. Þær
raddir hafa heyrst að við söluna
hafi dregið óeðlilega úr samkeppni
á matvörumarkaði og því nauðsyn-
legt að spyrja hvað Neytendasam-
tökin og Samkeppnisstofnun hygg-
ist gera í málinu.
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, sagði í samtali við DV i gær-
kvöld að þegar Hagkaup og Bónus
gengu í eina sæng hefði verið sagt
að það bryti í bága við samkeppnis-
lög en núgildandi lög höfðu þá ekki
tekið gildi.
„Það er líka alveg ljóst að Baugur
hefur markaðsráðandi aðstöðu á
matvælamarkaði en hvað þetta þýð-
ir fyrir íslenska neytendur fer eftir
því hvað þeir selja margar verslan-
ir og hvemig verður staðið að
þeirri sölu,“ sagði Jóhannes.
Hann sagði enn fremur ljóst að
þessi kaup væru ekki gerð með
J
Jóhannes Guömundur
Gunnarsson. Sigurðsson.
hagsmuni neytenda að leiðarljósi
en vildi þó ekki fullyrða að um
hækkanir á matvöru yrði að ræða
í náinni framtíð. Jóhannes sagðist
að sjálfsögðu vonast til þess að
menn héldu vöku sinni en við
þetta síðasta útspil Baugs hf. hefði
hins vegar dregið úr samkeppni og
neytendur viti fullvel hvað það
þýði. „Samkeppnisstofnun er þó til
staðar með það að markmiði að
vernda hagsmuni neytenda og ég á
von á því að stofnunin muni taka
sér góðan tíma í að gaumgæfa
þetta mál.“
Enginn neyðarfundur
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs hjá Sam-
keppnisstofnun, sagði í gærkvöld að
engin ástæða hefði verið til að
skjóta á neyðarfundi um málið um
helgina. Hins vegar hefði stofnunin
vitað af kaupunum þar sem for-
stöðumenn Baugs hf. hefðu sett sig í
samband við stofnunina til þess að
ræða ýmis atriði.
„Þeir höfðu þó ekki tíma til þess
að bíða eftir formlegu áliti Sam-
keppnisráðs sem oft er gert áður en
verður af kaupum. Það tekur stofn-
unina fáeinar vikur að vinna slíkt
mat,“ sagði Guðmundur og bætti
við: „Samkeppnisstofnun á til gögn
um hvernig staða fyrirtækja er á
þessum markaði og fljótlega eftir
helgi mun hún hefjast handa við að
gaumgæfa málið og skila áliti þar
að lútandi í fyllingu tímans." -þhs
Fagnaðarlæti
á æfingu
DV, Jerúsalem:
Fyrsta æfing Selmu Björnsdóttur,
fulltrúa íslands í Eurovisionkeppn-
inni, fór fram í keppnishöllinni í
gær en hópurinn kom til Jerúsalem
seint á sunnudagskvöld. Æfingin
gekk i alla staði vel, fyrir utan að
Daníel Traustason, annar dansar-
anna, féll í gólfið þegar lagið var
hálfnað. Daníel varð ekki meint af
og var hópurinn sammála um að
fall væri fararheill í þessu tilviki.
Selma mjög sátt bæði við hljómburð
og svið hallarinnar.
Frá því hópurinn kom til Jerúsal-
em hafa blaðamenn sýnt Selmu
mikinn áhuga. Voru tjölmargir
blaðcimenn viðstaddir æfmguna í
gær. Gríðarleg stemning myndaðist
undir laginu og mikil fagnaðarlæti
brutust út að því loknu.
Selma og föruneyti hennar á frí í
dag og verður deginum meðal ann-
ars varið í skoðunarferð um gamla
bæinn í Jerúsalem. Næsta æflng
hópsins verður haldin á morgun.
Velgengni íslenska lagsins á Net-
inu er mikil og því oftast spáð 1. til
4. sæti. -kpj/-aþ
Hólmavík:
Fjöldaslagsmál
á dansleik
Mikil ölvun og ólæti einkenndu
dansleik á Laugarhóli í Bjamarfirði
aðfaranótt mánudagsins. Um 150
manns vora á dansleiknum en þeg-
ar honum lauk um fjögurleytið
brutust út mikil fjöldaslagsmál. Að
sögn lögreglu á Hólmavík tók
drjúga stund að róa mannskapinn
og stía mestu ólátaseggjunum í
sundur. Engar fangageymslur eru á
Hólmavík og því voru þrir lögreglu-
þjónar á vettvangi þar til um hægð-
ist. Þá var einn dansleiksgestur tek-
inn ölvaður undir stýri. -aþ
Ók út af
Ungur ökumaður missti stjóm á
bíl sínum og fór út af á Reykjanes-
braut, um 2 km austan Grindavík-
urafleggjarans, snemma í gærmorg-
un. Var maðurinn fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Meiðsl
hans reyndust ekki mikil. Ökumað-
urinn er grunaður um ölvun við
akstur. -aþ
Akureyri:
Ölvun og ólæti
Óvenjumikil ölvun var á götum
Akureyrar á laugardagskvöld. Að
sögn lögreglu var margt manna að
skemmta sér í bænum og eftir því
sem leið á nóttina urðu óspektir ým-
iss konar áberandi. Þrír voru færðir í
fangageymslur. Þá voru fjórir teknir,
grunaðir um ölvun við akstur. -aþ
VORU MENN AÐ
KAUPA TÍMA?
Veðriö á morgun:
A5 mestu
þurrt vest-
anlands
Norðaustangola eða kaldi
verður á landinu, rigning suð-
austanlands, skúrir eða slydduél
norðanlands en að mestu þurrt
vestanlands, hiti 1 til 10 stig,
mildast suðvestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 53.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA