Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1999, Síða 1
Torfæruhjól
27
Vélhjólaíþróttaklúbburinn
Mikil uppsveifla hefur veriö í
innflutningi mótorhjóla síðustu
ár og er það að stórum hluta
vegna torfæruhjóla. Nokkur ný
umboð hafa orðið til og er það
hrein viðbót við þau sem fyrir
eru. Umboðin hafa hingað til ver-
ið fyrir japönsk hjól en þau nýju
eru öll með hjól frá Evrópu, eins
og KTM, Gas Gas og Husaberg.
ísland er eitt þeirra landa í
heiminum sem best eru fallin til
aksturs slíkra tækja. Um 75% af
vegakerfi okkar eru malarvegir
og landslagið er vel til þeirra
hluta fallið, með flölbreyttu yfir-
borði og fáum trjám sem er kost-
ur í augum torfæruökumanna. Á
íslandi er starfræktur klúbbur í
þessu sporti og kallast hann Vél-
hjólaíþróttaklúbburinn eða VÍK.
VÍK er 20 ára gamall klúbbur og
Keppnir í sumar
29. maí motocross við Sandskeið
19. júní motocross á Akureyri
10. júlí enduro Ólafsvík
24. júlí motocross Sandskeið
31. júlí motocross Akureyri
25. september enduro Reykjavík
Næstu helgi verður haldin
fyrsta motocross-keppni sumars-
ins á braut VlK uppi við Sand-
skeið. Keppt verður þar í þremur
„moto“ og má búast við skemmti-
legri keppni í nýlagaðri braut-
inni sem er með nokkrum
skemmtilegum beygjum í viðbót.
íslandsmeistarinn frá því í fyrra,
Ragnar Ingi Stefánsson, kemur
hingað alla leiðina frá Svíþjóð til
að verja titilinn og má gera ráð
fyrir því að einhverjir ætli sér að
veita honum hörkukeppni.
Keppnin hefst klukkan fjögur fyr-
ir þá sem vilja fylgjast með. -NG
1
var stofnaður 1978, stuttu eftir að
menn fóru að aka að einhverju
ráði á torfærumótorhjólum.
Keppt hefur verið til íslands-
meistara i motocrossi frá 1979,
einu sinni í fjórhjólacrossi (1991)
og í fyrra var keppt í fyrsta skipti
í enduro sem er eins konar
þolakstiu- á torfæruhjólum. Mót-
orhjólaeign og virkni klúbbsins
hefur verið misjöfn og einna
helst má tengja það við hugtakið
góðæri.
Keppt hefur verið á vélhjólum frá
upphafi aldarinnar, þegar þau voru
fundin upp. Hér á íslandi hefur
keppni á vélhjólum verið stunduð
með skipulögðum hætti frá því á átt-
unda áratugnum. Áður höfðu menn
oft reynt með sér með óskipulögðum
hætti og þá oftar en ekki í óþökk yf-
irvalda og landeigenda. Þær keppnis-
greinar sem stundaðar eru á vélhjól-
um eru eftirfarandi (beöist er afsök-
unar á því að íslensk heiti vantar):
MOTOCROSS
Motocross er keppni á sérsmíðuð-
um vélhjólum á lokaðri braut með
lausum jarðvegi. í brautinni er mikið
af beygjum og stökkpöllum, auk þess
að oft er brautin lögð þannig að brött
brekka sé í henni. Keppt er í mismun-
andi flokkum eftir aldri, reynslu, getu
og vélarstærð. Margir halda að keppni
á vélhjólum sé eingöngu fólgin í því
að setjast á bak og gefa í botn. Það á
alls ekki við um íþrótt eins og
motocross sem er mjög krefjandi og
ökumaðurinn þarf að hafa fulkomið
vald á líkama sinum, jafnt sem vél-
hjólinu. Auk þess þarf ökumaðurinn
að hafa mikið úthald og hefur oft ver-
Starfsemi VÍK
Eins og er eru virkir félagar um
100. Mánaðarlega kemur út frétta-
bréfið „Drullumallið" þar sem hægt
er að fmna fréttir af meðlimum og
keppni, ásamt ýmsu léttmeti.
Markmið og tilgangur félagsins er
samkvæmt lögum þess að vinna að
útbreiðslu og eflingu vélhjólaíþrótta
og skapa meðlimum þess aðstöðu til
að stunda íþrótt sína á ákveðnum
lokuðum svæðum, viðurkenndum af
ið sagt að motocross sé ein af erfíð-
ustu íþóttagreinum heims. Á íslandi
er þetta sú grein sem hefur átt hvað
mestum vinsældum að fagna og hefur
verið keppt reglulega í henni til ís-
landsmeistara siðan 1978.
Enduro
Enduro er spænskt orð og þýðir
úthald. Orðið vísar til þess hvað
keppnin gengur út á. Lögð er braut
sem er að minnsta kosti 400 km löng
og er ekið á ferju og sérleiðum líkt
og f ralli á bifreiðum. Þessi íþrótt er
stunduð allan ársins hring og hefur
átt vaxandi vinsældum að fagna á
íslandi undanfarin ár. Þau vélhjól
sem notuð eru til aksturs í enduro
eru í mörgu svipuð þem sem notuð
eru í motocross. Þau eru hins vegar
með ljósabúnað þar sem þeim er oft
ekið í umferð á ferjuleiðum og til og
frá æfingu. Á Islandi hefur verið
keppt til íslandsmeistara í enduro
síðan 1997 og er keppnisgreinin sem
slík rétt að slíta bamsskónum.
Trial
Trial er eins konar þrautakóngur
á vélhjólum. Þar er lögð lokuö braut
yfirvöldum. Markmið félagsins er að
ná til sem flestra vélhjólaíþrótta-
manna og gefa þeim gott fordæmi um
umgengni og verndun landsins.
Nú er verið að vinna í að fá gott
svæði undir starfsemina þar sem
mikil aukning hefur verið í innflutn-
ingi á mótorhjólum í ár. Of mörg
mótorhjól á heiðum og hálendi gætu
skapað vandræði og leiðindi en ef
gott svæði finnst fyrir starfsemina á
það eftir að gera gæfumuninn.
Stefnan er að geta boðið upp á
þar sem ýmsar hindranir verða á
vegi manna og væru af flestum tald-
ar óyfirstíganlegar á vélhjólum. Síð-
an gengur keppnin út á það að kom-
ast í gegnum brautina án þess að
stíga niður fæti. Hér er því ekki um
keppni í hraða að ræða heldur frek-
ar jafnvægiskúnstir. Trial hefur
unnið sér sess á undanfornum árum
sem leikvangssport þar sem brautir
eru lagðar út á íþróttaleikvöngum í
borgum og mikill fjöldi áhorfenda
hópast að. Ekki hefur verið lögð
shmd á keppni i Trial á Islandi en
nokkrir einstaklingar hafa þó flutt
inn vélhjól sem ætluð eru til notk-
unar í þessari íþróttagrein.
Supermoto
Supermoto er yngsta grein keppn-
isíþrótta á vélhjólum. Hún er stund-
uð á lokuðum brautum sem eru
byggðar upp á því að ekið er til
skiptis á köflum með bundnu slit-
lagi og lausum jarðvegi. Oft eru sett-
ir inn einn eða tveir stökkpallar í
brautina. Þau vélhjól sem eru notuð
til keppni í þessari grein eru ætluð
til notkunar í motocross eða end-
uro. Hérlendis hefur verið áhugi á
því að koma á keppni í supermoto á
góða aðstöðu fyrir æfingar og keppni,
bæði í motocrossi og enduro, og auka
félagsstarfið. Félagsmönnum VÍK er
umhugað um vemdun landsins, eins
og flestum öðrum íslendingum, og
hafa þeir sótt um aðild að SAMÚT
sem eru samtök útivistarfélaga. Þeir
sem vilja forvitnast meira um starf-
semi félagsins geta kíkt á nýtt heima-
svæði VÍK á Netinu á
www.motocross.is, en það verður
opnað á allra næstu dögum.
rallíkrossbrautinni í Kapelluhrauni
en af því hefur enn ekki orðið.
Speedway
Keppt er í speedway á lokaðri
braut. Brautin er hringur og getur
verið malar-, gras- eða ísbraut. Á ís-
landi hefur eingöngu verið keppt á ís
á vetuma og hafa verið notuð til þess
hjól sem era ætluð til keppni í
motocross og enduro. Ekki hafa verið
flutt til íslands hjól sem era sérsmíð-
uð til notkunar í speedway svo vitað
sé.
Hér hefur verið leitast við að gefa
sem stysta lýsingu á hverri einstakri
keppnisgrein vélhjólaíþróttanna fyrir
sig. VÍK mun með glöðu geði veita
nánari upplýsingar um hverja grein
fyrir sig sé þeirra óskað. Tekið skal
fram að mikið er lagt upp úr öryggi
einstaklinganna sem stunda vélhjólaí-
þróttir og era settar um það strangar
reglur hvernig brautir skuli lagðar og
hvernig staðið sé að keppnishaldi (sjá
meðfylgjandi kafla úr reglubók LÍA).
Einnig eru kröfur um hlífðarbúnað og
klæðnað ökumanna og er í því sam-
bandi stuðst við alþjóðlega staöla.
-NG
-NG
Hvernig er keppt á vélhjólum?