Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1999, Side 1
19
Fimmtudagur 27. maí 1999
Leikmenn Man-
chester United
hefja Evrópubik-
arinn á ioft eftir
frækinn sigur á
Bayern Munchen f
úrslitaleiknum í
Barcelona í gær-
kvöld.
Reuter
Einar í banni
gegn Val
Einar Þór Daníelsson leikur ekki með KR-ingum
gegn Val í þriðju umferð úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu í kvöld. Hann á eftir að taka út
eins leiks bann frá því 1 fyrra en leikurinn
í kvöld er sá fyrsti hjá KR síðan Einar'
fékk leikheimild með félaginu eftir að
hafa leikið með OFI í Grikklandi í
vetur.
Bjarki Gunnlaugsson verður hins
vegar í leikmannahópi KR í fyrsta
sinn. „Það hefur lítið reynt á formið
hjá honum en mér líst vel á Bjarka
og hann mun taka þátt í þessum
leik,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari
KR, við DV í gærkvöld.
KR er enn án þeirra Þorsteins
Jónssonar og Bjarna Þorsteinssonar
sem eru meiddir.
Tveir aðrir en Einar Þór taka út
leikbann í leikjum 3. umferðar í
kvöld. Hlynur Stefánsson verður
ekki með ÍBV gegn Grindavík og
Gunnlaugur Jónsson verður ekki
með ÍA í Keflavík. -VS
Hlynur Stefánsson:
Sá fyrsti
í 17 ár
Hlynur Stefánsson, fyrirliði Eyja-
manna, tekur út leikbann þegar lið
hans mætir Grindavík í úrvalsdeild-
inni í knattspymu í kvöld. Þetta
verður í fyrsta skipti í 17 ár sem
Hlynur missir af leik í efstu deild
hér á landi.
Hlynur hefur spilað alla leiki sem
hann hefur átt kost á í efstu deild frá
árinu 1982. Síðast missti hann af leik
hér á landi árið 1987 þegar hann lék
með ÍBV í gömlu 2. deildinni.
Hlynur lék í Svíþjóð árin 1992-
1995 og þá spilaði hann 99 deilda-
leiki af 104 sem hann átti kost á með
Örebro. -VS
Manchester-
borg á hvolfi
Manchester-borg í Englandi fór
gersamlega á hvolf í gærkvöld eftir
frækinn sigur Manchester United í
Evrópukeppninni í knattspyrnu.
Fólk flykktist út á göturnar og allir
veitingastaðir troðfyUtust strax og
leiknum lauk og hljómsveitir settu
upp tónleika á götum úti. Búast má
við því að fagnaðarlátunum í
borginni linni ekki næstu dagana.
-VS
Smáþj óðaleikarnir:
ísland
meö
flest
verðlaun
(2&2p