Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 7 :r«f?U*StWII Græni herínn er sjálfboðaliðaher stofnaður með það að leiðarljósi að taka ærlega til hendi um gjörvallt ísland og að hafa gaman af þvi um teið. Markmiðið er að sameina krafta áhugasamra sjálfboðaliða til að rækta og fegra byggðir og ból með samstilltu átaki. Hvert byggðarlag tekur sinn „Gestasprett", þar sem liðsmenn Græna hersins einbeita sér að gróðursetningu, hreinsun, málun og fjarlægingu hættulegra efna en verkefnin, sem ráðist verður í á hverjum stað, verða valin í samráði við viðkomandi bæjar- og sveitarfélög. SJONVARPJÐ Sjónvarpið og Rás 2 munu jylgja Græna hernum um landið ogflytja vikulega fréttir af kærleiksríkum afreksverkum hans og annarra sem láta gott afsér leiða í byggðum landsins. n@rkwaðning Herínn er opinn öllum einstaklingum 16 ára og eldri, félögum og samtökum sem áhuga hafa á ræktun og fegrun landsins og vilja Ijá góðu málefni lið. Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi treysti sér til u.þ.b. 6 klst. vinnu eftir hádegi tiltekinn föstudag, laugardag eða sunnudag á tímabilinu 4. júní til 4. september 1999. Fjöldi liðsmanna verður takmarkaður við 50 á hverjum stað. Þeir sem fyrstir skrá sig ganga fyrir. Best er að skrá sig á heimasíðu Græna hersins: www.graeniherinn.is. Einnig er hægt að nálgast skráningarblað hjá helstu styrktaraðilum. S'imjy !«!mI Við skráningu í Græna herinn undirgangast nýliðar eftirfarandi skyldur: Að taka þátt i bráðskemmtilegu 6 klst. átaki á ákveðnum stað og tíma. Að koma fram af hæversku í hvívetna. Að ganga vel um gróna jörð. Að ástunda náttúruvænt líferni. w irni!»MSi Stuðmannaball! Umbun til hermanna er m.a. fólgin i: Fríum aðgangi að skemmtun Stuðmanna i þvi byggðarlagi sem vinnan er innt af hendi; einkennisbúningi Græna hersins; líkamlega og andlega hressingu á undan og við skyldustörf og grillveisla að verki loknu; fullnægju og gleði sem fylgir vel unnum störfum. TOYOTA SAMSKIP BB * HIvar »g hivenær Áættað er að heimsækja eftirfarandi staði á umræddu tímabili: Suðumes 4. og 5. júni Akureyri 11. og 12. júní Hrísey 13. júní Patreksfjörður 18. júní Hnífsdalur 19. júni Ólafsvik 25. júni Hofsós 26. júni Blönduós 2. júli Borgarnes 3. júlí Kópavogur 4. júlí Selfoss 9. og 10. júli Seyðisfjörður 15. júlí Húsavík 16. júli Ólafsfjörður 17. júli Vík i Mýrdal 22. júli Höfn 23. júlí Egilsstaðir 24. júlí Siglufjörður 25. júli Mosfellsbær 6. ágúst Seltjarnarnes 7. ágúst Sauðárkrókur 13. ágúst Hafnarfjörður 14. ágúst Vopnafjörður 20. ágúst Neskaupsstaður 21. ágúst Hveragerði 27. ágúst Aðaldalur 28. ágúst Reykjavik 3. og 4. september UMHVERFISRAÐUNEYTIÐ SPARISJOÐIRNIR & -M ÍSLANDSFLUG ÁFÖRM Vistvænt ísland Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu Græna hersins • www.graeniherinn.is • graeniherinn@simnet.is • sími: 561 3800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.