Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Blaðsíða 40
*
Vinnmgstölur Iaugardaginn: 29. 05
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5af 5 0 2.032.360
2. 4 af 5+rrÍ5‘r 2 325.760
3. 4 af 5 42 10.230
4. 3 af 5 1.652 600
Jókertölur
vikuntiar:
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 31. MAÍ1999
Pitsustaður á Akureyri:
Evróvisjón
varð rafkerf-
inu ofviða
DV, Akureyri:
„Þaö var alveg kolbrjálað að gera
og á mesta álagstímanum sprengdi
bakarofninn af sér rafmagnið svo
kalla varð til menn utan úr bæ til
að gera við inntakið í húsið,“ segir
Helgi Sigurösson en hann á og rek-
ur pitsustaðinn Jón Sprett á Akur-
eyri.
Helgi segir að oft hafi álagið ver-
ið mikið á ofninn, en erillinn hafi
verið slíkur á laugardagskvöldið
þegar Evróvisjónkeppnin stóð yflr
Helgi Sigurðsson við pitsuofninn
sem „gekk af göflunum" á laugar-
dagskvöldið. DV-mynd gk
að það hafi ekki verið neinu líkt.
Akureyringar hafl greinilega viljað
hafa pitsur við höndina á meðan
keppnin stóð yfir og pantanimar
hlaðist upp. Ofninn hafi verið
keyrður á fullu þar til hann
„sprengdi af sér rafmagnið“ og tók
um klukkustund að koma þeim
málum í samt lag. -gk
Líkamsárás
DV, Akureyri:
Lögreglunni á Akureyri var á
sunnudagsmorgun tilkynnt um að
maður væri að sparka í höfuðið á
öðrum fyrir utan Fosshótel KEA á
Akureyri.
^ Þegar að var komið fann lögregl-
an mann liggjandi i götunni með
talsverða höfuðáverka, og var hann
fluttur á slysadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins. Árásarmaðurinn var
handtekinn á staðnum og fluttur í
fangageymslur.
Bæjarstjóri ráðinn
Bæjarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti í gærkvöld að ráða Stefán
Kalmansson í starf bæjarstjóra.
Gengið verður frá ráðningarsamn-
ingi við hann á næstu dögmn. Hann
er viðskiptafræðingur frá viðskipta-
háskólanum í Árósum og hefur
gegnt starfi forstöðumanns fjárhags-
”5» deildar Eimskips hf. -DVÓ
Gríðarleg vonbrigði og depurð breyttust skyndilega í ofsafögnuð og hamingju í iþróttahúsinu í Kaplakrika þegar íslensku hand-
boltastrákarnir fengu óvæntar fréttir um að þeir kæmust áfram í Evrópukeppninni. Þeir unnu Sviss, 32-23, í gærkvöld en töp-
uðu 20-29 ytra. í leikslok héldu allir að Sviss kæmist áfram á fieiri mörkum á útivelii. Eftir mikla rekistefnu kom svo á daginn að
ekki er stuðst við þá reglu heldur líka tekið mið af leikjum liðanna við Kýpur. Þar kemur ísland betur út. Myndin er tekin talsvert
löngu eftir leikinn þegar fréttirnar bárust. DV-mynd Hilmar Þór
Arnar glímir
við „tröllið"
„Ja, héma. Þetta er nú það geggjað-
asta sem maður hefur heyrt og sýnir
að það er líf eftir dauðann í þessum
Iþróttum," sagði Arnar Bjömsson,
íþróttafréttamaður á Stöð 2, þegar DV
færði honum tíðindi í gærkvöld um að
ísland komist áfram en Sviss detti út í
Evrópukeppninni í handbolta - löngu
eftir að ahir reiknuðu með i leikslok
að ísland dytti út á færri mörkum á
útivelli gegn Sviss, þrátt fyrir að hafa
unnið upp 9 marka mun.
Arnar sagði fyrir leikinn í gær að
hann myndi skora á Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfara í glímu ef ísland ynni
upp þennan 9 marka mun og kæmist
áfram. Ætlar hann að efna það?
„Ég reiknaði ekki með að þurfa að
gera þetta þegar leiknum lauk. En jú,
núna þarf maður að rifja upp glímu-
tökin, hælkrókana og mjaðmahnykk-
ina til að beita á stóra tröllið.“ Að-
spurður hvort hann telji að spennandi
glíma sé fram undan, sagði Amar:
„Að minnsta kosti munu nú mætast
tveir menn sem eru komnir vel á ann-
að hundrað kíló,“ sagði Arnar.
-Ótt
Smásaga dregur dilk á eftir sér:
Erni Bárði vikið frá
kristnihátíðarnefnd
„Ég get staðfest að biskupinn
tilkynnti mér á fimmtudaginn að
ég væri ekki lengur ritari kristni-
hátíðarnefndar en því starfi hef
ég gegnt undanfarin ár. Annað
kýs ég ekki að segja um þetta
mál,“ sagði séra Örn Bárður
Jónsson, fræðslustjóri Þjóðkirkj-
unnar, í gær en séra Öm skrifaði
sem kunnugt er smásöguna „ís-
lensk fjallasala hf.“ sem birtist í
Lesbók Morgunblaðsins fyrir
skemmstu. Olli sagan bréfaskrift-
um á milli forsætisráðherra og
biskups en á myndskreytingu
með smásögimni mátti gjört
þekkja Davíð Oddsson meðal
annarra. í bréfi sem forsætisráð-
herra skrifaði biskupi taldi hann
ekki við hæfi að fræðslustjóri
kirkjunnar fengist við skáldskap
sem þennan.
í kristnihátíðamefnd sitja for-
seti íslands, forsætisráðherra,
forseti Alþingis, forseti Hæsta-
réttar og biskup íslands. Spurður
um brottvikningu séra Arnar
Bárðar sagði Karl Sigurbjörns-
son biskup í gær:
„Séra Erni var ekki vikið úr
starfi ritara nefndarinnar. Á
biskupsstofu er kominn maður
til starfa sem hefur umsjón
með öllu sem viðkemur
kristnihátíðinni. Þessi maður
er séra Bernharður Guð-
mimdsson og það er eðlilegt að
hann sé einnig ritari kristni-
hátiðamefndar. Þó tek ég fram
að ekki hefur verið gengið
formlega frá þessu,“ sagði Karl
Sigurbjömsson biskup.
- Hafðir þú ekkert samráð
við forsætisráðherra varðandi
þessar breytingar?
„Þetta mál hefur ekki verið
rætt í kristnihátíðarnefnd.“
- En hafið þið Davíð Odds-
son rætt málið einslega?
„Ég ræði ekki við þig um
það sem ég ræði við forsætis-
ráðherra eða aðra,“ sagði Karl
Sigurbjörnsson biskup.
Séra Örn Bárður Jónsson með smásöguna í Lesbók Moggans. DV-mynd HH -EIR
Veðrið á morgun:
Skúrir
og milt
Á morgun verður norðaustlæg
átt, kaldi á Vestfjörðum en
annars fremur hæg. Skúrir og
hiti 2 til 8 stig, mildast sunnan
til.
Veðrið í dag er á bls. 43
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ FINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐWR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i