Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1999, Blaðsíða 1
15
NBA í nótt:
Indiana
svaraði
með sigri
Indiana Pacers sigraði New
York Knicks í annari viðureign
liðanna í undanúrslitnm banda-
riska körfuknattleiksins í nótt
með 88 stigum gegn 86. Staðan er
því jöfn, 1-1, en næstu tveir leik-
ir verða í Madison Square Gar-
den í New York.
Það var greinilegt að Indiana
ætlaði að selja sig dýrt eftir ósig-
urin í fyrsta leiknum. Liðið lék
mjög vel í fyrri hálíleik og í leik-
hléi hafði liðið ellefu stiga for-
ystu, 57-46. New York minnkaði
muninn jafnt og þétt og undir
lokin var leikurinn orðinn
æsispennandi. Það var Reggie
Miller sem tryggði Indiana sig-
urinn með því að skora úr
tveimur vítaskotum undir lokin.
„Þetta var lífsspursmál fyrir
okkur að vinna og núna er allt
opið. Það eru erfiðir leikir fram
undan í New York en við ætlum
okur í úrslit," sagði Miller eftir
leikinn.
Mark Jackson skoraði 17 stig
fyrir Indiana, Reggie Miller 16
stig og Dale Davis 15 stig. Larry
Johnson var stigahæstur hjá
Knicks með 22 stig. Alan Hou-
ston skoraði 15 stig og Latrell
Sprewell gerði 15 stig.
-JKS
Helgi Jónas til Antwerpen:
Helgi Jónas Guðfinnsson, landsliðsmaður í körfuknattleik hjá
Donar Groningen í hollensku A-deild-
inni, hefur gert samning við belgíska
efstu deildar liðið Racing Basket Ant-
werpen.
Helgi var laus allra samninga hjá
Donar í vor en liðið datt út úr 8 liða
úrslitum í úrslitakeppni um hol-
lenska meistaratitilinn. Helgi segir að
hlutimir hafi ekki farið að gerast fyrr
en fyrir viku þó svo að hann vissi að
Belgamir hefðu skoðað hann í vetur.
Helgi þekkir aðeins til liðsins, spilaði
með gegn því einn leik í vetur og lít-
ur á þetta sem næsta skref upp á við
sem hafi alltaf verið stefnan.
Antwerpen-liðið spilaði til úrslita um belgíska meistaratitilinn í
vor og er því um sterkt lið að ræða og ljóst að Helgi Jónas er á góðri
leið sem atvinnumaður í körfubolta. -ÓÓJ
Tryggvi fyrir Eiö?
Eiður Smári Guðjohnsen dró sig í
gær út úr landsliðshópi íslands í knatt-
spyrnu fyrir Evrópuleikinn við
Armeníu á LaugardalsveOinum næsta
laugardag, vegna meiðsla.
Guðjón Þórðarson tilkynnir í dag
hver komi í staðinn en eflaust verður
það Tryggvi Guðmundsson, Arnar Gunnlaugsson eða Stef-
án Þ. Þórðarson. Þessir þrír hafa allir verið í landsliðinu að
undanfomu en voru ekki valdir í 18 manna hópinn á dög-
unum. Af þessum þremur hefur Tryggvi verið heitastur með sínu liði upp á
síðkastið. -VS
Bland * 1 ffl 33
Jóhannes B. Jóhannesson er kominn í 16
manna úrslit á Evrópumeistaramótinu í
snóker í Hollandi. Brynjar Valdimarsson
er hins vegar úr leik.
KA-menn geta ekki tekiö á móti Skalla-
grími í 1. deildinni í knattspymu í kvöld
vegna slæmra vailarskilyrða á Akureyri.
Leikurinn hefur veriö færöur yfir í Borgar-
nes og verður spilaður þar á fóstudags-
kvöld.
KVA getur heldur ekki leikið á heimavöll-
um sinum i Fjarðarbyggð gegn Viði og sá
leikur verður í Garðinum í kvöld kl. 20. Að
auki leika í 1. deildinni í kvöld Þróttur R-
Stjaman og Fylkir-ÍR.
Almenningi gefst kostur á að fylgjast með
æfmgu hjá landsliðinu í knattspymu i dag
kl. 17. Sú æfing verður á svæði Þróttara i
Laugardalnum.
Egyptaland sigraði Brasilíu, 28-19, i opn-
unarleik heimsmeistaramótsins í hand-
knattleik sem fram fór í Kaíró i Egyptalandi
í gærkvöld. Uppselt var á leikinn en hvorki
fleiri né færri en 23 þúsund áhorfendur
vom í höllinni risastóm. Mabrouk skoraði
mest fyrir Egypta, 5 mörk, en þeir höfðu
mikla yfirburði og leiddu 16-8 í hálfleik.
í dag fara fram 11 leikir í keppninni i
Egyptalandi og i flestöllum tilvikum
mætir sterk þjóð veikri. Helst að Suður-
Kórea geti staðið í Svíþjóð, Noregur i
Rússlandi og Kúba í Þýskalandi.
Kilmarnock frá Skotlandi fékk í gær sæti
það í UEFA-bikamum i knattspyrnu sem
úthlutað er sérstaklega fyrir háttvísi og
prúðmennsku. Skotar voru með besta út-
komu ailra Evrópuþjóða á sérstökum hátt-
vísiskala UEFA og Kilmamock var efst í
„háttvisideildinni" þar í landi. í næstu viku
verður dregið um tvö háttvísisæti til viðbót-
ar frá átta þjóðum en ísland náði ekki inn í
þann hóp. Þar er hins vegar Leicester, liö
Arnars Gunnlaugssonar, fulltrúi Eng-
lands.
Flest bendir til þess að Egil „Drillo“ 01-
sen, fyrrum þjálfari norska landsliðsins i
knattspymu, taki við enska A-deildar liðinu
Wimbledon i júli. Drillo stýrir nú liði Váler-
enga í Noregi en lið hans eru fræg fyrir að
leika afspyrnuleiðinlega en árangursrika
knattspymu. Joe Kinnear þarf að hætta
hjá Wimbledon af heilsufarsástæðum en
hann hefur stýrt liðinu frá 1992.
Á heimasiöu knattspyrnudeildar Fram er
látið að því liggja að félagið hafi hug á að
leigja Þorbjörn Atla Sveinsson frá Brönd-
by en hann hefur leikið þar með varaliðinu
frá síðasta sumri. Þorbjöm Atli er kominn
heim til aö spila með 21-árs landsliöinu
gegn Armeníu á laugardag. -VS