Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 Fréttir Stuttar fréttir Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps: Nýr fréttatími leggst vel í fólk - ana ekki út í neitt, segir Páll Magnússon DV, Þingeyri: Starfsfólk hraðfrystihúss Rauð- síðu á Þingeyri hóf setuverkfall klukkan tvö eftir hádegi í gær þar sem laun höfðu ekki verið greidd á tilskildum tíma. Voru aðgerðir þess- ar samþykktar á starfsmannafundi á mánudagskvöldið þar sem engar upplýsingar lágu þá fyrir um laun sem borga átti út sl. fimmtudag. Einhugur ríkti um þessar aðgerðir á meðal starfsmannanna 100 en ríf- lega 60 þeirra eru Pólverjar. Gunnhildur Elíasdóttir, trúnaðar- maður starfsfólks, sagði eftir fund þess sem lauk um kl. hálffjögur í gær að samkomulag hefði náðst um að starfsfólkið hyrfi aftur til vinnu að loknu kaffihléi og ynni til kl. 5 síðdegis eins og venja væri. Var þetta samþykkt gegn því skilyrði að Ketill Helgason, einn af aðaleig- endum fyrirtækisins, mætti til fund- ar með starfsfólkinu nú í morgun kl. sjö og gerði grein fyrir stöðu mála. Fyrirtæki Ketils Helgasonar hafa undanfama mánuði beðið eftir af- greiðslu Byggðastofnunar á lánsum- sókn vegna ijárhagslegrar endur- skipulagningar en fyrirtækið rekur nú frystihús á Þingeyri, Bíldudal og í Bolungarvík. Þar sem svar hefur enn ekki fengist frá stofnuninni er lausafjárstaðan orðin erfið sem lýs- ir sér meðal annars í erfiðleikum með að greiða út laun til starfsfólks á Þingeyri. „Þessi óánægja starfsfólks er ekki alveg nýtilkomin. Það hefur viljað brenna við að launagreiöslur hafa ekki verið lagðar inn á reikninga starfsfólks fyrr en eftir bankalokun á föstudögum. Það hefur komið sér DV-myndir Hörður hér og höfum atvinnu hvað sem á bjátar." - Nú er enginn kvóti hér lengur, hvað með rétt íbúanna tO að veiða fisk? „Það er höfuðmálið. Við verðum einhvern veginn að segja okkur úr lögum við íslenska ríkið og fá að stofna hér smáríki og sjá um okkur sjálf. Það má segja að það þurfi að girða fyrir fiskinn svo hann syndi ekki á land. það liggur við að hann syndi upp í pottana hjá okkur. Þó við megum að vísu borða hann þá megum við samt ekki hafa atvinnu af fiskinum sem syndir hér við fæt- uma á okkur. Það er grátlegt að svona byggðarlag skuli nánast eng- an kvóta hafa. Við biðjum alls ekki um neina ölmusu. Við viljum bara fá að njóta þess sem við höfum héma og að það sé ekki tekið frá okkur eins og gert er í dag.“ Fyrirtækið hóf rekstur á Þingeyri fyrir tveim árum eftir langvarandi ördeyðu í atvinnulífinu. Hefur það haldið uppi fullri atvinnu i plássinu síðan sem byggst hefur nær ein- göngu á vinnslu á Rússafiski. Fyrirtækið á um 500 tonn af ótoll- afgreiddum fiski í geymslu á ísa- firði og von er á flutningaskipi frá Rússlandi eftir 3 vikur. -HKr. Gunnhildur Elíasdóttir trúnaðarmaður í vinnslusal Rauðsíðu. Hluti af starfsfólki Rauðsíðu í reykpásu eftir að setuverkfall hófst í gær. mjög illa fyrir þá sem ekki eru með bankakort. Það er svolítið erfitt að láta vísa sér út úr bankanum klukk- an Qögur á föstudegi og vera síðan auralaus yfir helgina," sagði Gunn- hildur. „Þá keyrði um þverbak í síðustu viku er engin laun vom greidd út. Eftir að við hófum setuverkfall voru viðbrögð ráðamanna mjög snögg. Ketill samþykkti þá að halda með okkur fund og vonandi verður hægt að hefja vinnu aftur eftir þann fund.“ - Situr enn ótti í Þingeyringum eftir gjaldþrot Fáfnis fyrir tveim árum og margra mánaða vinnu- stöðvun í kjölfarið? „Já, sjálfsagt situr enn ótti í fólki. Við erum þó alltaf að heröast og gef- umst ekkert svo auðveldlega upp. Við ætlum að vera hér og verðum Davíö hjá Bilderberg Davíð Oddsson forsætisráðherra er nú staddur í Portúgal á árleg- um fundi Bilder- berg-samtak- anna. Á Bilder- berg-fúndi koma margir af helstu auðjöfrum og embættismönnum heims, þjóðarleiðtogar, jafnt fyrrver- andi, núverandi sem verðandi, og fjölmargir áhrifamenn úr viðskipta- heiminum. Vísir.is sagði frá. Þensla á fasteignamarkaöi Þenslan á húsnæðismarkaði er áhyggjuefni. Fasteignaverð hefur rok- ið upp og Seðlabankinn segir að ef húsnæðisverð hækki mikið á skömm- um tíma, geti það reynst upphafið að krepputima. Dagur sagði frá. Má ekki hrifsa Rikisstjómin stefnir að því að lækka fasteignaskatt á landsbyggð- inni á kjörtimabilinu. Framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga tekur hugmyndunum með fyrir- vara og segir ekki hægt að hrifsa tekjur með einu pennastriki. Vísir.is sagði frá. Mótmæla hækkunum Stjóm Eflingar - stéttarfélags mót- mælir harðlega hækkunum trygg- ingafélaga á bDatryggingum. Þær séu tilefnislausar með hliðsjón af verulegum hagnaði tryggingafélaga mörg undanfarin ár og digrum og sí- stækkandi bótasjóðum. Afleidd stærð Sólveig Péturs- dóttir, dómsmála- ráðherra og fyrr- verandi formaður allsherjamefndar Alþingis, segir við Dag hækkun tryggingafélag- anna á iðgjöldum vera ívið meiri en hún hafi búist við vegna skaðabótalaganna. Iðgjöld séu yfirleitt afleidd stærð af tjónakostn- aði en skipti ekki öllu máli þegar verið er að koma á réttlátu bótakerfi. VSÍ vill skaöabætur VSÍ hefur krafist skaðabóta af verkalýðsfélaginu Baldri vegna sam- úöarverkfalls vorið 1997. Pétur Sig- urðsson, formaður félagsins, segir við Dag að krafan hljóti að tengjast kjarasamningaviðræðum sem standa fyrir dyrum. Orkan hækkar Stjórn veitustofnana Reykjavíkur samþykkti í gær að hækka verð á hita um 4,6% og rafmagni um 3%. Hækkunin er sögð tilkomin vegna nýlegrar hækkunai- Landsvirkjunar og almennra kostnaðarhækkana. ASÍ ókyrrist Miðstjómarfundur ASÍ í gær telur að verðlagshækkanir undanfama daga muni draga úr kaupmætti launafólks. Þær séu flestar afleiðing- ar ákvarðana Alþingis og á ábyrgð ríkisstjómarinnar. Það sé vond hag- stjóm að kynda uhdir verðbólgu með auknum sköttum á bensín. Þrengt aö þingforseta Verið er að koma 12 ráðherrastól- um fyrir í sal Alþingis. Þrengt er að þingritara og þingforseta. Fram- kvæmdum verður lokið fjTÍr þing- setningu á þriðjudag. Fleiri reknir? Haraldur Har- aldsson, stjómar- formaður Áburðar- verkmiðjunnar, segir verið að end- urskipuleggja reksturinn og mögulegt sé að _________ fleiri starfsmönnum verði sagt upp en þeim 4 sem fengu uppsagnarbréf fyrir mánaðamót. Mönnum verði hjálpað að frnna ný störf, komi tii uppsagna. RÚV sagði frá. Flokkur stofnaöur Framkvæmdastjóm Alþýðuflokks- ins - Jafhaðarmannaflokks íslands hefur samþykkt að veita forystu ílokksins umboð til þess að efna til viðræðna við stjómir annarra sam- starfsflokka innan Samfylkingarinn- ar um stofnun og skipulag nýs stjómmálaafls. RÚV sagði frá. -SÁ Lokanir sjúkrahúsa: Heilsugæsl- an hleypur undir bagga Heislugæslustöðvar munu hlaupa undir baga með stóru sjúkrahúsunum þegar sumarlok- anir ýmissa deilda koma til fram- kvæmda. „Nú er í gangi meiri undirbún- ingur hvað þetta varðar en áður, því sumarlokanir verða meiri á sjúkrahúsunum en áður,“ sagði Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslustöðvar Reykjavíkur, við DV. Hjúkrunarforstjórar heilsugæslunnar og héraðslækn- irinn í Reykjavík hafa verið í við- ræðum við forsvarsmenn sjúkra- húsanna vegna þessa. „Þetta lýt- ur bæði að heimahjúkruninni og bráðamóttöku," sagði Guömund- ur. Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi veröa lokanir svipaðar og í fyrra. Á Landspítalanum verða þær heldur meiri en tvö undanfarin sumur. Það kemur helst niður á hand- og lyflækn- ingadeildunum. Á þessu ári hefur skortur á starfsfólki verið viðvarandi. Hef- ur vantað að meðaltali í stöður 70 hjúkrunarfræðinga á hvort sjúkrahúsið um sig. Þá hefur ekki tekist að ráða í allar stöður unglækna, meinatækna eða röntgentækna. -JSS Eins og flestum er kunnugt hóf breyttur út- sendingartími frétta Sjón- varpsins göngu sína nú á þriðjudaginn. Fréttirnar, sem áður voru kl. 20, færðust fram um klukku- tíma og sömuleiðis út- varpsfréttimar sem áður voru kl.19. Almennt virð- ist þessi breyting talin mjög góð. „Við vorum undir þaö búin að þaö væri miklu meiri andstaða við breyttan tíma en virðist vera,“ segir Bogi Ágústs- son, fréttastjóri Sjónvarpsins. „Við höfum fengið örfá símtöl í dag þar sem fólk er að kvarta en ekkert í líkingu við það sem við bjuggumst við. Þessi tími hentar auðvitað ekki öllum frekar en fréttatími kl. 20. Breytingamar era langtímaverk- efni hjá okkur og við teljum okkur vera að bæta þjón- ustuna. Þeir sem era ánægðir með breytingarnar hringja auðvitað ekki inn þannig að þetta virðist líta ágætlega út.“ Mótleikur Stöðvar 2 Þessi breytti tími skákar frétta- tíma Stöðvar 2 kl.19.30 sem hafði öll tromp á hendi sér þegar Sjónvarps- fréttimar voru kl. 20 og sýndi það sig best í minnkandi áhoríi Sjón- varpsfréttanna á meðan Stöð 2 sótti á. Ætlar Stöð 2 að mæta þessum breytingum Sjón- varpsins? „Við ætlum að bíða róleg- ir, ekki að ana út í neitt. Við munum mæla áhorfið ná- kvæmlega á næstkomandi f; vikum og sjá hvað breyting- arnar hafa að segja með áhorfið á 19:20 og Sjónvarps- fréttimar. Síðan skoðum við niðurstöðurnar og ákveðum okkar næsta leik í framhaldi af því, hvort hann verður einhver og hvemig hann verður. Ég skil mjög vel þessa breytingu hjá Sjónvarp- inu, tölur sýndu að þeirra fréttatími var á undanhaldi og ef þeir hefðu ekkert aðhafst hefðu þeir lent undir á endanum," segir Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2. -hvs Bogi Ágústsson. Páll Magnússon. Starfsfólk Rauösíöu á Þingeyri í setuverkfall: Hriktir í stoðum Rauða hersins - laun ekki greidd út meöan beöið er eftir láni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.