Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
Fréttir
Lífeyrissjóður VestQarða kaupir i Básafelli:
Kvótinn tryggir
fjárfestinguna
- segir Guðrún Guðmannsdóttir framkvæmdastjóri
. ,i
'si
• !»
Orri ÍS-20 er ein tryggingin fyrir fjárfestingu lífeyrissjóðsins.
Lífeyrissjóður Vestfjarða keypti á
dögunum 12 milljónir kr. að nafnvirði
í sjávarútvegsfyrirtækinu Básafelli
hf. á ísafirði og ekki er útilokað að
keypt verði meira. Sjóðurinn keypti
af fyrirtækinu sjálfu þannig að fjár-
hagsstaða félagsins batnar nokkuð
við þessi kaup. Eins og greint hefur
verið frá í DV eru nýleg kaup
Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja á
hlutabréfum í Vinnslustöðinni hf.
umdeild og talið að verið sé að leggja
lífeyrisspamað í óþarfa áhættu. Þeg-
ar Guðrún Guðmannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vest-
Qarða, er spurð hvort ekki sé vafa-
samt að leggja lífeyrisspamað heima-
manna í Básafell bendir hún á kvóta-
stöðu og flotann. „Færi fyrirtækið á
hausinn þá er það með mjög vel bú-
inn flota og á mjög mikinn kvóta sem
sem yrði væntanlega seldur, þannig
að við mundum aldrei tapa á því,“
segir Guðrún.
Guðrún leggur hins vegar mikla
áherslu á að fjárfestingarstefna sjóðs-
ins sé íhaldssöm og aðeins 10-15% af
sjóðnum era fjárfest í hlutabréfum.
Sjóðurinn á mjög lítið í fyrirtækjum
fyrir vestan og er Básafell aðeins ann-
að fyrirtækið sem sjóðurinn fjárfestir
í en hitt var Hraðfrystihúsið í Hnífs-
dal. Eignaraðildin er dreifð um allt
land og áhættan lítil. Enn fremur
stendur sjóðurinn vel og langstærsti
hluti hans er bundinn í öraggum
skuldabréfum. Guðrún Guðmanns-
dóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins,
segir að þau telji að hér sé um ábata-
söm kaup að ræða og ekkert annað en
ábatasjónarmið ráði ferðinni. Guðrún
segist ekki hafa orðið vör við neina
gagnrýni heimamanna á þessa ráð-
stöfun lífeyrissjóðsins.
Þetta er einfaldlega rangt
Fjármálasérfræðingar sem DV
ræddi við og gjörþekkja rekstur og
stöðu Básafells segja þetta hins vegar
vera rangt og benda á sjóðurinn hefði
alveg eins getað keypt kvóta af fyrir-
tækinu, það sé ekkert betur statt eftir
þessi kaup lífeyrissjóðsins. Til þess að
fjárhagsstaöa fyrirtækisins batnaði
hefði þurft að gefa út nýtt hlutafé en
slíkt var ekki gert. Almennt séð er
staða fyrirtækisins slæm og þrátt fyrir
kvóta og flota fyrirtækisins eru dæmi
um mjög rangar ákvarðanir hjá því.
Básafell er að skipta á fullu yfir í
rækju á meðan flest önnur fyrirtæki
leggja ofuráherslu á bolflskvinnslu. Á
sama tima er það yfirlýst stefna sjávar-
útvegsráðuneytisins að rækta upp
þorskstofninn, sem kemur niður á
rækjunni. Hér er því klárlega um
ranga ákvörðun og stefhu að ræða og
er fyrirtækinu og sjóðfélögum Lífeyris-
sjóðs Vestfjarða ekki góð. Einnig má
benda á að samkvæmt stjórnarskránni
er kvótinn eign þjóðarinnar og heimilt
er að skattleggja hann og breyta út-
hlutun hans. Þannig má segja að vafa-
samt sé að treysta á að kvóti tryggi
inneignir sjóðfélaga.
Viðmælendur DV ítrekuðu að lífeyr-
issjóðir ættu einungis að huga að sem
hæstri ávöxtun handa sjóðfélögum sín-
um en þau sjónarmið virðast ekki vera
höfð að leiðarljósi hér. -BMG
Afskaplega hættulegt
„Þetta er afskaplega hættulegt," seg-
ir Pétur Blöndal alþingismaður.
Nokkrir lífeyrissjóðir hafa tekið upp
þá stefnu að fjárfesta í afar áhættu-
sömum fyrirtækjum sem margir sjóð-
félagar þeirra vinna hjá. Þetta er gert
undir því yfirskini að hér sé um góða
fjárfestingu að ræða en mörg þessara
fyrirtækja, eins og BásafeU og
Vinnslustöðin, standa höUum fæti.
Margir viija meina að fjárfestingar líf-
eyrissjóða í slíkum fyrirtækjum undir
þessum kringumstæðum geti verið
afar hættulegar.
„Hlutverk lífeyrissjóða er að ávaxta
fé sjóðfélaga sinna. Það stríðir gegn
því markmiði að ávaxta féð með sem
tryggustum hætti að íjárfesta í fyrir-
tækjum í því skyni að viðhalda at-
vinnu. TU skamms tíma eru
það hagsmunir sjóðfélaga
að halda vinnu sinni en lif-
eyrissjóöur á að horfa tU
langs tíma til að vera fær
um að borga sjóðfélögum
lífeyri. Margir lífeyrissjóðir
lenda í þeirri stöðu að þurfa
velja um að styrkja fyrir-
tæki og viðhalda þannig
vinnu þefrra sem borga inn
í sjóðinn en þetta er afskap-
lega áhættusamt og menn verða gera
sér grein fyrir hvaöa hagsmuni er ver-
ið að veija.
Hins vegar er þetta ekki alveg ein-
hlítt. TU dæmis geta lífeyrissjóðir lent
í slæmri stöðu ef þeir grípa ekki inn í
með því að kaupa í hlutabréf. Ef þeir
sjóðféiagar sem borga í sjóðinn
missa vinnuna fær lifeyrissjóð-
urinn engin iðgjöld. Þá má
segja að sjóðfélagar séu verr
settir en áður. Það sem getur
líka gerst er að ef menn fjár-
festa svona nálægt sér er verið
að stigmagna áhættu sjóðfélaga
því ef aUt fer á versta veg
missa sjóðfélagar ekki aðeins
vinnuna heldur einnig hluta
lífeyrisréttinda sinna. í grund-
vallaratriðum eiga lífeyrissjóðir ekki
að fjárfesta í eöa lána tU fyrirtækja
sem sjóðfélagar vinna hjá. Þeir eiga
frekar að dreifa áhætíunni sem víðast
og fjárfestingar erlendis eru hluti af
þeirri stefnu,“ segir Pétur Blöndal al-
þingismaður. -BMG
Pétur Blöndal
aiþingismaður.
Kærleikurinn á biskupsstofu
Á næsta ári verður
haldið upp á það að
kristindómurinn
hefur lafað í þúsund
ár í landinu sam-
kvæmt kenningunni:
Haltu kjafti, hlýddu
og vertu góður. Sér-
stök kristnitökuhátíð-
amefnd hefur setið að
störfum við að skipu-
leggja atburði tU að
minna íslendinga á að
þeir séu enn þá
kristnir. í nefndinni
eru aUir helstu höfð-
ingjar landsins, enda
dugar ekki minna
þegar jafnáríðandi
mál er á dagskrá og
það að halda upp á að
kristnin í landinu sé
enn við lýði. Stórar
hátíðir verða að hafa
stóra menn og mikla
sem hafnir eru yfir almúgann og dægurþras.
Nefndin hefur haft sérstakan ritara, Örn Bárð
Jónsson, sem skipaður er af biskupsstofu enda
þykir viöeigandi að biskupinn yfir íslandi hafi
hönd í bagga um það hvernig verður með það far-
ið þegar kristindómurinn verður rifjaður upp.
Það gæti komið sér illa fyrir kirkjuna ef allt yrði
sagt úr þúsund ára sögu kristindómsins. Því hef-
ur biskupinn yfir íslandi því hlutverki að gegna
að hafa aUa góða og styggja nú engan - allra síst
þá höfðingja sem sitja með honum í nefndinni og
ráða landinu.
Það var auðvitað áfaU fyrir biskup og kristin-
dóminn þegar áðurnefhdur ritari kristnitökuhá-
tíðarnefndcU’, sem hefur það verkefni að skrifa
niður það sem höfðingjarnir í nefndinni segja og
leggja tU, tók sér það fyrir hendur að skrifa smá-
sögu í lesbók Morgunblaðsins um ímyndaða höfð-
ingja sem seldu landið tU útlanda.
Það var líka áfaU fyrir biskup þegar fréttist að
forsætisráðherra hefði lesið smásöguna og það
var ennþá meira áfaU fyrir hann þegar forsætis-
ráðherra skrifaði biskupi bréf og lét vanþóknun
sína í ljós.
Menn héldu í fyrstu að biskupinn hlýddi á
erkibiskups boðskap ofan úr ráðuneyti en hefði
hann að engu. En svo komu kosningar og forsæt-
isráðherra varö aftur forsætisráðherra og það
var þá sem biskupinn sá að sér og áttaði sig á því
að það er engan veginn i þágu þúsund ára sögu
kristindómsins að Öm Bárður sitji áfram sem rit-
ari við hlið forsætisráðherra í nefndinni góðu og
ákvað því að skipta um ritara.
Það var ekki vegna þess að Örn Bárður hafði
skrifað smásöguna og ekki vegna þess að forsæt-
isráðherra hafði skrifað biskupi og ekki vegna
þess að þetta væri mikið starf heldur vegna þess
að biskup hafði yfir að ráða miklu betri ritara
sem hefur reynslu af ritarastörfum frá útlöndum.
Með brottrekstri Arnar Bárðar úr ritarastarf-
inu hefur framtíð kristninnar verið tryggð, í sam-
ræmi við þann sögulega kristindóm sem hér hef-
ur ríkt, að sá einn geti þjónað Kristi og kirkjunni
og biskupnum og höfðingjunum sem heldur
kjafti, hlýöir og er góður.
Dagfari
I -
Ríkisrisinn
Ríkisrisinn Landssími íslands
fær nú í haust i fyrsta skipti í
heila öld samkeppni frá nýju fyr-
irtæki í símtölum almenna síma-
kerfisins þegar Íslandssími hefur
starfsemi. Áður
\ hefur Tal hf. farið
\ \ á markað í far-
símakerfinu. Hjá
Landssímanum
eru æðstu menn
hjá Guðmundi
Björnssyni for-
stjóra sagðir
skjálfandi
vegna innkomu hins
nýja fyrirtækis, íslandssima, á
markaðinn en voru áður nokkuð
rólegir þar sem loðið orðalag í
stjómarsáttmála Sjálfstæðis-
flokksins og Iframsóknarflokks-
ins benti til að ekki yrði ráðist í
einkavæðingu ríkisrisans á kjör-
tímabilinu. Nú heyrast hærri
raddir með hverjum deginum frá
Landssímanum um að það eina
sem geti bjargað fyrirtækinu frá
hraðri grotnun sé einkavæðing,
og það sem fyrst.
Hafnaði laununum
Bæjarstjóri Akureyringa,
Kristján Þór Júlíusson, ákvað á
dögunum að
hafna launa-
hækkun sem full-
trúar sveita-
stjóma fengu í
kjölfar úrskurð-
ar kjaradóms
um launahækk-
anir alþingis-
manna. Launa-
hækkanirnar voru
tilkynntar á snyrtilegan hátt
stundu eftir að kjörstaðir lokuðu
til þess að enginn færi með
siæma samvisku af kjörstað. Vek-
ur það nokkra athygli að Kristján
skuli vera eini maðurinn sem af-
þakkar launahækkunina en
mönnum er það enn í fersku
minni þegar fulltrúi Þjóðvaka,
Jóhanna Sigurðardóttir, af-
þakkaði launahækkun sem al-
þingismenn fengu á sínum tíma.
Hún hefur hins vegar ákveðið að
þiggja hana núna.
Seðlabankastjóri
Nú er heilt ár liðið frá því að
verkffæðingurinn Steingrímur
Hermannsson lét
af störfum sem
seðlabankastjóri
eftir langt og far-
sælt starf. Nokk-
ur styr stóð um
ráðningu Stein-
grims en Ágúst
Einarsson,
fyrrverandi al-
þingismaður og þá-
verandi formaður bankaráðs Seðla-
bankans, sagði m.a. af sér. Nú er
allt dottið í dúnalogn enda Ólafur
G. Einarsson sestur í stól banka-
ráðsformanns. Biða menn nú
spenntir eftir lyktum Lindarmáls-
ins til að hægt verði að ganga end-
anlega frá skipun i stólinn.
Flugstjóraslagur
í Kópavoginum fer fram sér-
stök keppni milli tveggja flug-
stjóra sem eru búsettir í bænum.
Keppnin felst í
því hvorum tekst
að gera
skemmtilegri
breytingar á
húsi sínu og
lóð. Fyrstu
breytingarnar
voru gerðar á
þaki húsanna.
Þau eru látin glansa og
varla sést nokkuð lauslegt á lóð-
unum. Ástæðan er einföld.
Keppnin felst í því hvort húsið er
fallegra úr lofti séð. Næstu breyt-
ingar á húsunum munu vera
fólgnar í því að byggja sólpall
sem skemmtilegastan i laginu.
Umsjón Hjálmar Blöndal
Netfang: sandkorn @ff. is