Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Page 7
FEVtMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 7 Fréttir Hálfur Cadillac, sem prýtt hefur framhlið Hard Rock í Kringlunni, svífur hér yfir byggingarverkamönnum á leið í klössun. Hann var farínn að ryðga og það þarf að setja á hann nýjan stuðara. Þegar hann kemur af verkstæðinu verður hann settur upp aftur en þá verður hann kominn inn í hús, eins og reyndar allt Hard Rockið eftir að byggt hefur verið við Kringluna. Afturendinn á Cadillacnum hef- ur alltaf verið innandyra og hefur ekkert ryðgað -EIR/DV-mynd S SkagaQörður: Fyrrum þingmaður stjórnarformaður KS DV, Skagafiröi: Stefán Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið kjörinn formað- ur stjórnar Kaupfélags Skag- firðinga. Hann tekur við for- mennsku í stjórninni af Stef- áni Gestssyni sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu á aðalfundi fé- Stefán Guðmunds- son - nú stjórnar- formaður KS. lagsins fyrir skömmu. Varaformaður stjórnar KS er nú Bjarni Marons- son og Guðrún Sighvats- dóttir er ritari. Stefán Guð- mundsson hefur setið í stjórn KS um árabil og var varaformaður stjórnarinn- ar síðasta starfsár. -ÖÞ Verösprengingin í miðbænum: Tvö herbergi á 14,2 milljónir Fasteignasalan Eignabær hefur auglýst...afar fallega og rúmgóða 2ja herb. glæsiíbúð í miðbænum" á 14,2 milljónir króna. Með þessari auglýs- ingu þykir fasteignasölum að verð- sprengingin á fasteignamarkaðnum í mið- og vesturbæ Reykjavíkur sé að ná hámarki. Samkvæmt sömu heim- ildum hefði auglýst íbúð kostað um 10 milljónir fyrir tæpu ári. „Þetta er íbúð sem ætti heima í Hús og híbýli eða á forsíðu DV. Þarna eru bestu græjur og gas í eldhúsi, ljónabaðker, frístandandi vaskur á baðherbergi og innréttingar úr kirsu- berjaviði," sagði Steinbergur Finn- bogason, fasteignasali hjá Eignamiðl- un. „íbúðin er 108 fermetrar og vissu- lega dýr. Mér reiknast til að fermetra- verðið sé um 130 þúsund krónur. í vesturbænum, Þingholtunum og Hlíð- unum hefur fermetraverðið farið ört hækkandi og er nú í kringum 100 þús- und krónur, ef ekki meira. Við sjáum ekki fyrir endann á þessari þróun,“ I þessu húsi við Laugaveginn kostar tveggja herbergja íbúð rúmar 14 milljónir. sagði Steinbergur en gat ekki svarað spurningunni hver markhópurinn væri fyrir tveggja herbergja íbúð á rúmar 14 milljónir. Umrædd íbúð stendur við Laugaveginn og á henni eru engar svalir. -EIR því að ef ég get hlaupið km á 3.01 get ég það fjandakornið á 2.59. Air Max karla. Air Max kvenna þrískiptur TL loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sóh, stöðugleikaplata undir il,léttur skór með hámarksdempun, frábær aðlögun að fætinum, leiðbeinandi smásöluverð 14.990 kr. r International Triax Air Converge Triax kvenna MX + loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sób, stöðugleikaplata undir sóla.rpjög góð dempun og stöðugleiki, leiðbeinandi smásöluverð 9.990 kr. Air Rollin karla loftpúöi í hæl, BRS 1000 jrtri sób, mjúkur Phylon milbsób, léttur alhUða æfingaskór, leiðbeinandi smáaöluverð 4.990 kr. TL - air - 82% af miðsóla er loft. MX - Loftpúði í hæl og tábergi. Regrind - Ytri sóU úr sterku endurunnu giimmíi. Air Mantra karla loftpúði í hæl, nyúkur Phylon milUsóU, stöðugleikaplata undir sóla,léttur alhUða æfingaskór, leiðbeinandi smásöluverð 5.990 kr. BRS 1000 sérstyrktur ytri sóU með mjög góðu gripi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.