Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Blaðsíða 36
Vinningstölur miðvikudaginn 02.06. ’99 4*8 14 19 <41 <47 æT ■ ' . H.. . >V HeildarvinningAu; 150.975.060 Á ÍAlandi 4.832.500 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. v 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1999 Eyrarbakki: Tveir ungir drengir ■ brenndust Tveir ungir drengir á Eyrarbakka, 10 og 11 ára, brenndust nokkuð illa þegar þeir voru að leik í gær um kl.18. Drengimir voru inni í stóru kapalkefli og er talið að þeir hafi kveikt eld þar inni. Þeir hafa haft bensín með í fór og slettist logandi bensín á þá báða í hita leiksins sem olli þó nokkrum brunasárum. Drengimir komust með naumindum út úr keflinu og gátu leitað eftir að- stoð. Kallað var á sjúkrabíl og fluttu tveir bílar þá félaga á slysamóttöku Landspítalans þar sem þeir gengust undir meðferð. Báðir drengimir voru brenndir á höndum og annar einnig í % andliti. Annars vegar er um að ræða annars stigs bmna en hins vegar djúpan annars stigs brana. Hvoragur drengjanna er í lífshættu. -hvs Kio Brix og Islandssagan I Fókusi sem fylgir DV á morgtm er ítarlegt viðtal við Kio Alexander * Brix en hann hefur setiö í íslensku fangelsi í átta mánuði. Hann er í far- banni og leyfir lesendum að kíkja að- eins inn í höfuðið á sér. Stefán Karl Stefánsson leikari skiptir síðan frá karlpersónu yfir í kvenpersónu á ör- fáum sekúndum og Laddi tekur tím- ann. Þá eru brúðhjón sem giftu sig ‘79 fengin til að gefa ungum hjónum ráð og segja frá því hvað fór úrskeið- is og hvað heppnaðist. Haraldur veð- urfræðingur ræðir um stríðsrekstur og vindstig og stærsta kirkja lands- ins, sjónvarpsstöðin Omega, er heim- sótt. Fókusi fylgir einnig aukablað um Vísi að íslandssögu en það blað er nauðsynlegt öllum sönnum íslend- ingum. Popp, bíó, gleði og glens á s»sínum stað eins og vanalega. Lífið eftir vinnu er nákvæmur leiðarvísir um skemmtana- og menningcirlífið. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup héit upp á áttræðisafmæli sitt í gær á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þar snæddu þau Pétur og Sólveig Ásgeirsdóttir, eiginkona hans, venjulegan miðvikudagskvöldverð í heilsustofnuninni ásamt sín- um allra nánustu - fjölskyldunni. Bjart var yfir þeim hjónum rétt fyrir kvöldverðinn. Á myndinni smellir Sólveig afmæliskoss á bónda sinn. DV-mynd Eva Miklar verðhækkanir hjá opinberum aðilum: Vænti aðgerða ríkisstjórnarinnar - segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna „Þetta kemur mér mjög á óvart þegar ríkisstjórn stöðugleikans sem mynduð var til að viðhalda stöðug- leikanum er að ragga bátnum eins og þeir eru að gera núna,“ segir Jó- hannes Gunnars- son, formaður Neytendasamtak- anna. Miklar verð- hækkanir hafa dunið yfir lands- menn undanfarið og nú síðast hækk- aði rafmagn um 3% og hiti um 5%. Þar áður hafði áfengi og bensíns- gjald verið hækkað auk þess sem mjög miklar hækkanir á bifreiða- tryggingum vora kynntar í vikunni. Jóhannes Gunnarsson. „Eg vek athygli á því að hér er um að ræða opinber fyrirtæki sem eru að hækka rafmagn, hita, áfengi og bensíngjald. Maður fyllist svart- sýni þegar maður sér ráðamenn þjóðarinnar ganga fram fyrir skjöldu með þessum hætti þegar verið er að tala um ofþenslu og vax- anda verðbólgu og stjómendur opin- bera fyrirtækja eru að taka svona ákvarðanir. Ég segi fyrir mina parta: hvað era menn að setja í gang núna? Er þetta virkilega ríkisstjóm stöðugleikans sem er þama að verki? Ég vænti þess að forystu- menn þessarar ríkisstjómar grípi inn í þessa atburðarás," segir Jó- hannes Gunnarsson. -BMG Biða eftir Byggðastofnun Ketill Helgason, framkvæmda- stjóri fiskvinnslufélaganna Rauð- síðu, Rauðfeldar og Bolfisks, sagði við DV á fundi sem hann átti með starfsfólki hraðfrystihúss Rauðsíðu á Þingeyri í morgun að fyrirtækin biðu eftir því að Byggðastofnun efndi 100 milljóna króna lánsloforð. Þegar það skýrðist yrði hægt að greiða út laun sem ekki voru greidd út sl. föstudag. Lánsloforðið hefði verið háð ákveðnum skOyrðum sem búið væri að uppfylla af hálfu fyrir- tækjanna. Nánar á bls. 2. -SÁ ER RAU9I HERINN Á UNDANHALDI?. Veöriö á morgun: Léttir til sunnan- og vestanlands Á morgun verður norðaustan 8-13 m/s suðaustan til á morgun en annars hægari. Súld með köflum austanlands og á annesj- um norðanlands en léttir til sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu 6-13 stig að deg- inum, hlýjast suðvestan tiL Veðrið í dag er á bls. 37. Tölur viö vindörvar sýna vindhraða í metrum á sekúndu. Skaðabótakrafa VSÍ: Sérkennileg viðbrögð - segir forseti ASÍ „það er ákaflega sérkennilegt að bregðast við á þennan hátt og í ann- an stað mjög merkilegt að þetta skuli vera að koma upp núna löngu eftir þessa at- burði,“ sagði Grét- ar Þorsteinsson, forseti Alþýðusam- bands íslands, um skaðabótakröfu Vinnuveitenda- sambands íslands á tvö verkalýðsfélög og sjö einstak- linga á Vestíjörðum. Vinnuveitendasamband íslands hefur kraflð tvö verkalýðsfélög á Vestíjörðum og sjö einstaklinga inn- an þeirra um 6 milljónir króna í skaðabætur vegna verkfallsaðgerða þeirra árið 1997. Um er að ræða verkalýðsfélögin Baldur á ísafirði og Sjómanna- og verkalýðsfélagið Álftfirðing í Súðavík. VSÍ hótar málssókn ef ekki verði farið að kröf- unni um greiðslu á upphæðinni. „Við munum heyra í félögum okkar fyrir vestan og ráða síðan í framhaldið," sagði Grétar. „Ég á ekki von á að félagar mínir fyrir vestan dragi upp budduna og greiði þessar sex milljónir.“ -JSS Þónokkur eldur kom upp í skipi í slippnum í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Ver- ið er að búta skipið niður og ertalið að eld- urinn hafi kviknað út frá logsuðu. Tók það slökkviliðið rúma tvo tíma að slökkva eldinn. DV-mynd S Morðhótanir „Málið er í rannsókn," sagði Ómar Smári Ármannsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn um morðhótanir Steingríms Njáls- sonar á hendur tveimur mönnum um siðustu helgi. Lögð var fram kæra á Steingrím vegna þessa og er nú beðið niður- stöðu rannsóknar. Steingrímur hefur látið af hótunum sínum, eftir að lög- reglan handtók hann aðfaranótt síð- astliðins sunnudags. STÓRSÝNING Bfla- og búvélasýningar Ingvars Helgasonar og Bflheima um landió Á morgun föstud. 4. júní Laugar..........................10-11.30 Mývatn............................ 13-15 Húsavík........................... 17-20 Iföuionht. Bílheimar ehf. Saccrktfla 2 Satvarhöfða 2a ■ Súnl S2S 9000 uTLxí9000 www.bHbeimar.il 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 14 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.