Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1999 41 Myndasögur Veiðivon Og hvað æ,la.aö s ‘iviss um að vera herna ^cd Ö) o (d co -l-H II y Hvernig viljið þiðNHI/ 5 hafa fyrsta |_rj i \ heimilið ykkar? x J1-^FASTEIGNASALa| VJ X" X 1» tíj2 rs þjgy —r^— (fs;™ Hvað Aj eruð þið 1 með? / Lfu, \j^^r==:===:===í^j r f o ... .Búgarð, einbýlishús, raðhús. •s parhús, íbúðir, litlar og stór- ar, gamlar og nýjar. nýuppgerðar og aðrar illa útlítandi! f í tn Oi • rH cn ’Tommi er hrifinn af Spáni og Italíu. ^ Ég vil heldur Grikkland og hýskaland. hess vegna komumst viö aö samkomulagi ‘og eyðum stuttum tíma I hverju landi! ' ŒJ r Það er það sem ég segi við þig, — Sólveig. Þetta er algjörlega . ! ófyrirgefanlegt að ég skuli þurfa að j splaesa ís... .veistu hvaö hann kostar? ©pib WlMUl / Þú mátt nú þakka fyrir það að j þekkja stúlku sem vill heldur einn \ is en minkapels. , ^ N Naest þegar við erum úti á kanónum og ég leyfi þér að kyssa • m'9-......... \ ... viltu þá ekki hoppa svona af gleði. \ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnaði Elliðaárnar í morgun og renndi í Fossinn. Elliðaárnar opnaðar í morgun: Ég er ekki enn hlaðin spennu - segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Ég er ekki enn hlaðin spennu að renna í fyrramálið fyrir laxana í El- liðaánum. Ég vona að ég fái eitt- hvað en ég finn ekki fyrir þessum mikla veiðispenningi,“ sagði Ingi- björg Sólrún Gisladóttir borgar- stjóri í gærdag, en Elliðaárnar voru opnaðar klukkan sjö í morgun með þvi að borgarstjórinn renndi fyrst í Fossinn. „Mér finnst skemmtilegast að renna aðra daga í Elliðaárnar en Fyrsta veiðisaga sumarsins Laxá á Ásum hefur aldrei verið talin ódýrasta veiðiá landsins en hún er núna sú fengsælasta sem við eigum. Veiðimenn sem renndu í ána um helgina hugsuðu gott til glóðar- innar að veiða vel. Þeir voru mætt- ir sólarhring áður en þeir áttu að renna til að kíkja á aðstæður. Það átti að kíkja vel á allt svæðið og hvar fiskurinn var. En þeir feil- reiknuðu sig aðeins, það voru nefni- lega hinir fiskarnir í ánni, urriðam- ir og laxaseiðin, sem þeir reiknuðu ekki með. Þeir félagar, sem voru þrír, tóku með sér 120 laxamaðka og byrjuðu að renna, en alls staðar voru afætur og sums staðar mikið af þeim. Maðkurinn var búinn en veiðifélagarnir björguðu þeim um nokkra maðka. Nú skyldi reynt í Duslunum, þar var laxinn og þeir voru ekki með nema 20 maðka. Afætan var strax komin í maðkinn og allt var búið. Þá var ákveðið að skella sér í Fluguhyl, þar væri hægt að reyna íluguna, ekki myndu ur- riðarnir og laxaseiðin eyðileggja þær. Eitthvað var nú fiskurinn treg- ur að taka í Fluguhylnum, svo þeir skiptu liði og tveir fóru niður eftir. Sá þriðji ætlaði að bíða við Flugu- hylinn og sjá hvort hann sæi ein- hverja hreyfingu. Eitthvaö var vin- urinn þreyttur og leggur sig á milli þúfna og sofnar. Allt í einu hrekkur hann upp og stekkur á fætur. Torfa af laxi var að renna sér upp úr Fluguhylnum og hann maðklaus. Hann hleypur af stað upp með ánni, en missir af laxinum. Skömmu seinna komu veiðifélagarnir með tvo tveggja punda urriða, sem tóku síðasta maðkinn. Næst eða seinna í sumar ætluðu þeir aftur í Laxá og þá með 500 maðka að minnsta kosti. Minna gat það ekki verið. opnunardaginn. Þá er meiri ró yflr veiðiskapnum og maður meira ein með sjálfri sér. í fyrradag fór ég og leit í teljann, hlutur sem maður hef- ur ekki gert áður. Það voru komnir 12 laxar.“ Nú veiðir þú á maðk, tínir þú hann sjálf? „Nei, nei, ég hef aldrei komist upp á lagið með tína hann,“ sagði Ingibjörg Sólrún í lokin. Veiðieyrað: Veiðin er byrjuð í Hópinu og hafa margir veitt þónokkuð. Enda er bleikjan farin að ganga á þessum slóðum og þá er ekki að sökum að spyrja. Við fréttum af tveimur sem fóru um daginn og veiddu 7 bleikjur. Þeir fóru út á vatnið á báti sem annar átti og veiddu en þegar þeir ætluðu í land kom babb í bátinn. Utan- borðsmótorinn vildi ekki fara í gang og þeir félagar urðu að róa í land með höndunum. Góð æf- ing fyrir næsta sundmót sem verður haldið í júlí. Skyldu þeir verða með? c Umsjón Gunnar Bender Utskorinn lax í veiðihúsið Víðidalsá í Húnavatnssýslu var opnuð í morgun, en á laug- ardagskvöldið var haldið matar- boð fyrir landeigendur við ána. Þótti það takast vel og mættu margir. Einn kom þar skemmti- lega á óvart með að gefa í veiði- húsið útskorinn lax sem þykir listavel gerður. Það var Sigur- bjartur Frímannsson frá Sól- bakka sem gerði listaverkið og gaf það í veiðihúsið. Og geta menn séð það þegar þeir koma í veiðihúsið Tjarnarbrekku við Víðidalsá. ■*.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.