Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 3 REyKJAVIK í SPARIFÖTIN Göngum hreint til verks! Átaksvikur hverfanna Tún, Holt, Norðurmýri, Hlíðar og Suðurhlíðar: 27. júní - 4. júlí. Grafarvogur og Ártúnshöfði: 4. - ll.júlí. Múlar, Háaleiti, Hvassaleiti, Kringla, Smáíbúðahverfi, Bústaðahverfi, Fossvogur og Blesugróf: 11. - 18. júlí. Kjalarnes: 18.-25. júlí. Árbær, Ártúnsholt, Selás og Bæjarháls: 25. júlí- l.ágúst. Af því gleðilega tilefni að Reykjavík verður ein af menningarborgum Evrópu árið 2000 standa borgaryfirvöld, í samvinnu við Bylgjuna, fyrir allsherjar umhverfis- og fegrunarátaki í sumar. Markmiðið er að klæða borgina í sparifötin og munu borgaryfirvöld leggja sitt af mörkum til þess að hún skarti sínu fegursta. Allir borgarbúar og forsvarsmenn fyrirtækja eru hvattir til þess að taka þátt í hreinsun og fegrun hverfanna, taka fram sópa, pensla, hrífur og skóflur, svo við getum öll verið stolt af umhverfi okkar og umgengni þegar ný öld gengur í garð. Unnið verður að hreinsun og fegrun um alla borg með sérstöku vikuátaki í hverjum borgarhluta fyrir sig og er mikilvægt að allir kynni sér hvenær átakið verður í þeirra hverfi. Reykjavíkurboi^ msmmm 989 BYLGJAN, Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt og Seljahverfi: 1. - 8. ágúst. S@RPA Borgarholt: 8. - 15. ágúst. Melar, Hagar, Skjól, Grandahverfi, Skildinganes, Háskólahverfi og flugvallarsvæðið: 15. - 22. ágúst. Laugarnes, Lækir, Kleppsholt, Laugarás, Sund, Heimar og Vogar: 22. - 29. ágúst. Miðbærinn, gamla höfnin, gamli vesturbærinn og gamli austurbærinn: 29. ágúst - 5. september. Borgin, Bylgjan og íbúar bregða á leik í lok hverrar átaksviku og blása til hátíðar í hverfinu sem þá skartar sínu fegursta. -----------------Blómahátíð á Jónsmessu! ^ Skólavörðustígur blómagata Hátíð á Skólavörðuholti í dag kl. 17.00 Létt suðræn tónlist. Borgarstjóri hleypir átakinu aff stokkunum. Blómastúlkur Blómavals. Götuleikhús. Pylsur á grillinu. Bein útsending á Bylgjunni. Taktu þátt, taktu til og góða skemmtun!---------------- >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.