Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1999, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
33
Myndasögur
• H
tj)
tn
• H
in
<; rauix
'Ég hel kynnst monnum \ oins og þóf fyrr. - Þoir bjöða manni upp á drykk J Yog halda aó þá sój
/^AIIl 1 lagi. - Kauptu þá drykkinal > - Þá crt þú okkert yx V skuldbundin mórl
||b e|| jJ) hypjaou \lfTliiSl pÚÁxr/" WGI \ ::|r\ BURTU'J rj
öb—l Jmj /M1
Hvað verðurðu lengi
þama inni, Múna?
Veiðivon
Þeir Vignir Vignisson og Marteinn Pálsson hafa verið iðnir við kolann á
bryggjunni á Blönduósi. Þessa bleikju veiddi Marteinn fyrir fáum dögum.
DV-mynd G. Bender
Norðurá:
Yfir 250 laxar
„Norðurá í Borgarfirði er komin
yfir 250 laxa, sem er nokkuð gott,“
sagði Bergur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur, í gærdag, er við spurð-
um frétta af veiði. „Hítará á Mýrum
hefur gefið 10 laxa en opnunin gaf 4
laxa. Veiðimenn eru byrjaðir að
veiða lax í Stóru-Laxá í Hreppum,
og þá á svæði fjögur, 0g fengu þeir
fjóra fyrir fáum dögum. Við höfum
enn ekki frétt af laxi úr Soginu en
það kemur,“ sagði Bergm- enn frem-
ur. Núna, 25. júní, verða Laxá í Döl-
um og Leirvogsá opnaðar og verður
gaman að sjá hvernig veiðist í þeim
opnunum. Leirvogsáin gæti gefið
vel.
7,5 punda urriði
úr Meðalfellsvatni
Fyrir fáum dögum veiddist í Með-
alfellsvatni í Kjós 7,5 punda urriði
sem er líklega með þeim stærri sem
Umsjón
Gunnar Bender
hafa veiðst í vatninu. Fiskurinn
veiddist fyrir neðan bæinn Meðal-
fell. Vænir urriðar hafa verið að
veiðast í Þingvallavatni núna í sum-
ar og vor.
Á þyrlu til veiða
Þórarinn Sigþórsson var við veið-
ar með Árna Baldurssyni í Kjcirrá
fyrir fáum dögum og gekk veiði-
skapurinn vel. Þeir fengu víst í
kringum 20 laxa úr ánni. Þórarinn
hefur alltaf farið inn í Starir, sem er
innsti veiðistaðurinn í ánni, í byrj-
un veiðitímans. Þessar ferðir hefur
hann fariö á hestum en eitthvað
klikkuðu hestarnir. Þórarinn dó þó
ekki ráðalaus og leigði sér þyrlu til
að komast til veiðanna. Hvað gera
menn ekki ef fiska er von?
Flassarinn gaf í Aðaldalnum
Flassarinn sem við sögðum frá að
gefið hefði lax í Laxá á Ásum gaf
fisk fyrir fáum dögum i Laxá í Aðal-
dal. En þaðan er flugan víst ættuð
og hefur gefið þar töluvert af fiski.
Við erum samt enn þá að velta því
fyrir okkur hvort maður þarf að
flassa fyrir....
Tvíburarnir veiddu
fyrsta laxinn
Veiðin hefur verið feiknagóð í
Fitjá, hliðaránni í Víðidalsá, og hef-
ur megnið af laxinum sem hefur
veiðst í Víðidalnum veiðst þar. Lax-
inn er farinn að veiðast í Víði-
dalsánni og veiddu tvíburarnir
Gunni og Maggi Gunnarssynir
fyrsta laxinn ofarlega í ánni. Mest
hefur veiðst i Fitjánni í strengnum
fyrir neðan Kerið og eru komnir um,.
40 laxar þaðan.
Erfitt að sjá
hver er stærsti fiskurinn
Laxinn hefur verið nokkuð gjarn
að taka strikið ofarlega í árnar,
hann er kannski að veiðast í efstu
veiðistöðum. Þetta skeður vegna
þess að vatnið er svo mikið í ánum.
Laxinn lætur sig vaða tugi kíló-
metra og veiðist grálúsugur.
Fyrst við erum að tala um laxa er
kannski rétt að ræða aðeins um
nýju veiðibókina sem fiskurinn er
skráður i. Mörgum finnst nokkuð
erfitt að sjá hver er stærsti fiskur-
inn sem veiðist vegna vigtar á hon-
um. En núna er þetta allt skrifað í
kílóum. Þetta hlýtur allt að verðá
gott meö tíð og tíma.
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
INTER
SPORT'
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is
Áskrifendur fá 10%
aukaafslátt af 1
smáauglýsingum DV ^ mm\
TÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆJT ___550 5000___